Morgunblaðið - 30.09.2017, Page 5

Morgunblaðið - 30.09.2017, Page 5
Í tilefni af útgáfu skýrslu um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi efna Samtök iðnaðarins og Félag ráðgjafarverkfræðinga til opins fundar í Kaldalóni í Hörpu, fimmtudaginn 5. október kl. 8.30–10.00. Íslenskt samfélag er óhugsandi án þess að hér séu traustir innviðir líkt og flugvellir, vegir, hafnir, fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, sorphirða og förgun, orkuöflun og orkuflutningar ásamt fasteignum ríkis og sveitarfélaga á borð við skóla og sjúkrahús. Saman mynda þessir innviðir lífæðar samfélagsins. Með fjárfestingum í innviðum er fjárfest í lífsgæðum þjóðarinnar, samkeppnishæfni atvinnulífsins og hagvexti framtíðarinnar. Heildstæð skýrsla um ástand innviða hér á landi er nú gefin út í fyrsta sinn. Ávarp Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI Setning Tryggvi Jónsson, fundarstjóri og formaður Félags ráðgjafarverkfræðinga Mikilvægi innviða og helstu niðurstöður Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Vegir og flugsamgöngur Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá Mannviti Fráveitur og sorpmál Helga Jóhanna Bjarnadóttir, verkfræðingur og sviðstjóri hjá EFLU Orkuöflun og orkuflutningar Hörn Hrafnsdóttir, verkfræðingur á orkusviði hjá Verkís og Eymundur Sigurðsson, verkfræðingur á orkusviði Lotu Dagskrá Innviðir á Íslandi Ástand og framtíðarhorfur HVÍTAHÚSIÐ /S ÍA – 17 -2 22 9 Morgunverður frá kl. 8.00. Skráning á www.si.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.