Morgunblaðið - 30.09.2017, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.09.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 Skoðanakannanir um fylgi flokkaeru áhugaverðar og segja sína sögu um stemninguna í þjóðfélaginu þegar þær eru gerðar, en segja svo sem ekki mikið meira en það. Þær segja til að mynda ekki fyrir um úrslit kosninga, en fara stundum nærri um þau.    Í vikunni fyrir þingkosningarnar ífyrra var Pírötum spáð 21,2% fylgi, en þeir enduðu með 14,5%.    Sjálfstæðisflokknum var spáð 22,5%fylgi, en fékk 29% í kosning- unum.    Þetta þarf ekki að þýða að könn-unin hafi verið röng, en það get- ur margt gerst á fáum dögum. Og í fyrra leist kjósendum skiljanlega ekk- ert á þegar stefndi í vinstri stjórn og færðu sig til.    Könnun Félagsvísindastofnunarfyrir Morgunblaðið, sem birt er í dag, er athyglisverð þó að henni verði að taka með hefðbundnum fyrir- vörum.    Hún segir að tveir stjórnarflokk-anna missi alla þingmenn sína og er óhætt að segja að það yrði sögu- legt afhroð ef þeir ólánsflokkar hrykkju báðir af þingi eftir að hafa misst fótanna og oltið út úr ríkis- stjórn.    En könnunin sem Morgunblaðiðbirtir í dag segir sennilega um- fram annað að enn er margt mjög óljóst um hvert stefnir í kosningunum.    Í það minnsta fjögur framboð mæl-ast á mörkum þess að ná inn manni og það ásamt öðrum hrær- ingum gerir kosningarnar vissulega áhugaverðar. Falla tveir stjórnarflokkar? STAKSTEINAR Veður víða um heim 29.9., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 6 súld Akureyri 8 rigning Nuuk 2 rigning Þórshöfn 13 rigning Ósló 13 skýjað Kaupmannahöfn 14 heiðskírt Stokkhólmur 12 skýjað Helsinki 11 heiðskírt Lúxemborg 21 léttskýjað Brussel 22 léttskýjað Dublin 14 léttskýjað Glasgow 15 rigning London 15 rigning París 22 skýjað Amsterdam 20 skúrir Hamborg 20 skýjað Berlín 18 heiðskírt Vín 17 léttskýjað Moskva 6 alskýjað Algarve 24 heiðskírt Madríd 16 heiðskírt Barcelona 24 léttskýjað Mallorca 24 léttskýjað Róm 22 heiðskírt Aþena 19 skýjað Winnipeg 12 léttskýjað Montreal 12 léttskýjað New York 17 léttskýjað Chicago 18 léttskýjað Orlando 29 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 30. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:35 19:01 ÍSAFJÖRÐUR 7:42 19:04 SIGLUFJÖRÐUR 7:25 18:47 DJÚPIVOGUR 7:05 18:30 Allt um sjávarútveg Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2018 Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna. Áhersla er lögð á eftirfarandi:  Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.  Árangursríkar áfengis, vímu- og tóbaksvarnir.  Árangursríkar forvarnir sem tengjast kynheilbrigði.  Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði svefni og hreyfingu.  Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu.  Verkefni sem tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar. Við úthlutun verður tekið mið af lýðheilsustefnu velferðarráðuneytisins, sbr. skjalið Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi – með sérstakri áherslu á börn og ungmenni að 18 ára aldri. (Útg. 2016) Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang: - Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu. - Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun. Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið. Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2017 og skal sótt um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/. Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef Embættis landlæknis. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins. Embætti landlæknis - Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is Laufásvegur 49-51 hefur nú verið auglýstur til sölu en það er eitt reisulegasta húsið í Þingholtunum. Er þar í raun um tvö hús að ræða með tengibyggingu. Voru húsin reist af bræðrunum Sturlu og Friðriki Jónssonum og er byggingarárið 1924. Einar Erlendsson bygginga- meistari teiknaði þau bæði. Saman- lagt eru húsin 786 fm og þau standa á 1.442 fm lóð. Fasteignamat þeirra árið 2018 verður rúmar 248 milljónir króna. Sögufræg hús í miðborginni Íslenska auglýsingastofan hefur um langt árabil haft starfsemi sína í húsunum, en breska sendiráðið leigði húsin áður í um fjörutíu ár. Í þorskastríðum Íslands og Bretlands kom nokkrum sinnum til mótmæla við sendiráðið. Við útfærslu fisk- veiðilögsögunnar í 200 mílur enduðu mótmæli með því að nær allar rúður hússins voru brotnar. Fasteignasölurnar Ásbyrgi og Eignamiðlun hafa eignirnar til sölu og eru þær í auglýsingu sagðar nýt- ast hvort sem er saman eða hvor í sínu lagi. Í hvoru húsi eru tvær hæð- ir og kjallari, en þeim fylgir einnig nítján fm bílskúr. Í bók Guðjóns Friðrikssonar, „Indæla Reykjavík“, segir að húsin séu „stórfenglegustu einbýlishús“ borgarinnar. Til sölu Íslenska auglýsingastofan er nú til húsa við Laufásveg 49-51. Söguleg hús til sölu í miðbænum  Sturluhallir frá 1924 auglýstar í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.