Morgunblaðið - 30.09.2017, Qupperneq 10
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Stjórnmálaflokkarnir eru þessa
dagana að vinna að frágangi fram-
boðslista sinna vegna þingkosning-
anna þann 28. október nk.
Þórður Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
segir að Reykjavíkurlistarnir í báð-
um kjördæmunum verði kláraðir í
dag. Listarnir verða óbreyttir frá
því í prófkjörinu í fyrrahaust, nema
hvað Brynjar Níelsson færist upp í
fyrsta sæti í Reykjavík suður, og
tekur þar með sæti Ólafar heitinnar
Nordal. Listarnir í Suðurlands-,
Norðvestur- og Norðausturkjör-
dæmi verði frágengnir á morgun og
listi flokksins í Suðvesturkjördæmi
verði afgreiddur á mánudag.
Þorgerður Jóhannsdóttir, starfs-
maður Samfylkingarinnar, segir að
flokkurinn gangi frá framboðslist-
um sínum í Reykjavík á fundi á Hót-
el Natura, kl. 10 í dag. Flokkurinn
gangi frá lista sínum í Norðvestur-
kjördæmi á morgun á kjördæmis-
þingi sem hefst kl. 13, í Suðvest-
urkjördæmi á þriðjudag, í Norð-
austurkjördæmi á morgun kl. 14 og
í Suðurkjördæmi á þriðjudagskvöld
og hefst fundurinn kl. 20.00
Þorgerður segir að stillt verði
upp listum í öllum kjördæmunum
nema Norðvesturkjördæmi, þar
sem aukið kjördæmisþing muni
kjósa um fjögur efstu sætin.
Forval í einu kjördæmi
Björg Eva Erlendsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Vinstri hreyfingar-
innar – græns framboðs, segir að
einungis verði forval hjá flokknum í
Suðvesturkjördæmi og fer það fram
á mánudag, 1. október, vegna þess
að þar eru þrír sem gefa kost á sér í
annað sæti listans.
Í öðrum kjördæmum sé meining-
in að stilla upp listum. Uppstilling-
arnefndir hafi tekið til starfa víðast
hvar og muni svo bera sínar nið-
urstöður undir fundi í kjördæmar-
áðunum í næstu viku. Listi VG í
Norðausturkjördæmi verði þó ekki
frágenginn fyrr en eftir landsfund
flokksins sem haldinn verði 6. til 8.
október. Ástæðan sé sú að í því
kjördæmi eru tveir frambjóðendur
sem sækjast eftir því að verða vara-
formaður flokksins, en varaformað-
ur verður kosinn á landsfundinum.
Sigurður Ingi Jóhannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, sagði
í samtali við mbl.is í gær að upp-
röðun á lista Framsóknar væri í
fullum gangi og gengi almennt
nokkuð vel.
Hjá Flokki fólksins fengust þær
upplýsingar í gær, að frambjóðend-
ur í efstu sætum listans í öllum
kjördæmum yrðu kynntir til sög-
unnar á fundi í Háskólabíói í dag.
Fundurinn hefst kl. 14.00.
Viðreisn er að stilla upp í öllum
kjördæmum og búist er við að list-
arnir verði kynntir í lok næstu viku.
Björt framtíð mun ganga frá
framboðslistum sínum í öllum kjör-
dæmum á mánudaginn kemur, þann
1. október. Í dag lýkur prófkjöri hjá
Pírötum í öllum kjördæmum og
verða efstu menn á listum kynntir á
fundi í Hörpu síðdegis í dag.
Stjórnmálaflokkar að
klára framboðslista sína
Listarnir verða líklega frágengnir um og eftir næstu helgi
Morgunblaðið/Eggert
Fundað Formenn stjórnmálaflokkanna funduðu stíft með forseta Alþingis síðustu dagana sem þing starfaði þar sem
reynt var að ná sáttum um starfslok þingsins. Samkomulag um starfslok náðist að lokum, þótt með herkjum væri.
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Gunnar Bragi Sveinsson, 2. þing-
maður Framsóknarflokksins í Norð-
vesturkjördæmi og fyrrverandi
utanríkisráðherra, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, lýsti því yfir í
gær að hann væri hættur við að
sækjast eftir að leiða lista framsókn-
armanna í kjördæminu og að hann
ætlaði að segja sig úr Framsóknar-
flokknum. Gunnar Bragi gerði þetta
með færslu á Facebooksíðu sinni.
„Ég kveð flokkinn minn með mik-
illi sorg en sáttur við framlag mitt til
hans. Ég mun sakna alls þess frá-
bæra fólks sem þar er en margir
þeirra hafa verið mér samferða
þennan tíma,“ segir Gunnar Bragi
m.a. í færslu sinni. Hann kveðst ekki
hafa ákveðið hvað hann geri nú.
Í yfirlýsingunni sagði Gunnar
Bragi jafnframt að hreinlyndi í
flokknum væri á undanhaldi og
grafið hefði verið skipulega undan
sér.
Ekki náðist í Gunnar Braga í gær,
en hann sagði í yfirlýsingu sinni, að
hann hygðist ekki ræða málið frekar
við fjölmiðla næstu daga. Gunnar
Bragi hefur verið oddviti Fram-
sóknarflokksins í Norðvest-
urkjördæmi frá því hann var kosinn
á þing árið 2009. Hann sóttist áfram
eftir oddvitasætinu í Norðvest-
urkjördæmi, en fyrir nokkru lýsti
Ásmundur Einar Daðason, fyrrver-
andi þingmaður flokksins í Norð-
vesturkjördæmi, því yfir að hann
sæktist eftir oddvitasæti flokksins í
kjördæminu.
Gunnar Bragi yfir-
gefur Framsókn
Segir að grafið hafi verið undan sér
Morgunblaðið/Golli
Kankvís Gunnar Bragi Sveinsson
og Lilja Alfreðsdóttir á Alþingi.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokks-
ins, sagði í samtali við mbl.is í gær að það væri eftirsjá
að Gunnari Braga Sveinssyni sem öflugum samherja í
pólitík.
Orðrétt sagði Sigurður Ingi um ákvörðun Gunnars
Braga: „Mér var kunnugt um að Gunnar Bragi vildi
draga sig út úr baráttunni og hætta. Eins og ég hef sagt
áður, þá er alltaf eftirsjá að öflugum samherjum úr póli-
tík og ég óska honum bara hins besta á nýjum vett-
vangi hver sem hann nú verður. “
Sigurður Ingi segir samstöðu ríkja meðal framsókn-
armanna. „Ég hef verið á nokkrum fundum þessa vikuna, sem á hafa ver-
ið staddir milli 80 og 100 manns, og það hefur verið gríðarlega jákvæður
andi og samheldni.“ Menn séu tilbúnir að taka saman höndum og ná góð-
um árangri í kosningunum.
„Við teljum það vera landi og þjóð fyrir bestu,“ segir hann. Það sé
mikilsvert að Framsóknarflokkurinn sé sterkur og öflugur flokkur.
Eftirsjá að öflugum samherja
FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Sigurður Ingi
Jóhannsson
KOSNINGAR 2017
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Þjóðvegur 1 mun frá 1. nóvember
ekki lengur liggja um Breiðdals-
heiði heldur um Austfirði. Þetta til-
kynnti Jón
Gunnarsson
samgöngu-
ráðherra á aðal-
fundi Sambands
sveitarfélaga á
Austurlandi
(SSA) á Breið-
dalsvík í gær.
„Þetta þarfn-
ast auðvitað
smá undirbún-
ings hjá Vegagerðinni, en þeir hafa
miðað við að þetta taki gildi 1. nóv-
ember,“ segir Jón í samtali við
Morgunblaðið.
Að sögn Jóns byggist ákvörðunin
á tillögum Vegagerðarinnar, sem
sveitarfélög á Austurlandi hafi
ályktað um að fara ætti eftir.
„Um þetta líkt og margt annað
eru skiptar skoðanir, en það hefur
verið ályktað á þingum SSA að það
bæri að fara eftir tillögum Vega-
gerðarinnar,“ segir Jón.
Leysir vanda ferðamanna
Ferðamenn hafa ítrekað lent í
vanda á Breiðdalsheiði að vetrarlagi
og Jón segir tillögur Vegagerðar-
innar sérstaklega hafa miðað að því
að koma í veg fyrir það. „Það hefur
verið mikið vandamál, sérstaklega á
vetrum, að útlendingar sem eru með
leiðsögutæki og eru með merktan
þjóðveg 1 inn á Breiðdalsheiðina,
þar sem er oft mikil ófærð, hafa ver-
ið að festa sig. Þetta hefur verið mik-
il vinna, bæði hjá björgunarsveitum
og öðrum að fara þarna upp og
hjálpa fólki sem hefur lent í vand-
ræðum.
Heilsársvegur um Öxi í forgang
Jón segir að þessi ákvörðun rýri
þó ekki mikilvægi þess að ráðast í
gerð heilsársvegar um Öxi, sem ráð-
herra telur rétt að setja í forgang,
enda sé hann mjög mikilvæg sam-
göngubót fyrir íbúa í fjórðungnum
og mikilvægur fyrir ferðamennsku.
„Ég tel að vegurinn yfir Öxi eigi
að vera í forgangi. Það fer síðan eftir
því fjármagni sem við höfum til ráð-
stöfunar á hverju ári, hversu mikið
verður hægt að gera.“
Þjóðvegur 1 liggi
um Austfirði
Vegnúmerum breytt 1. nóvember
Jón Gunnarsson