Morgunblaðið - 30.09.2017, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
ÚR BÆJARLÍFINU
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Það var mikið í hlegið í Einars-
stofu í Safnahúsi Vestmannaeyja
fyrir skömmu þar sem þær frænk-
ur, Anna Óskarsdóttir og Guðrún
Einarsdóttir og Katrín Theódórs-
dóttir, Guðrún Garðarsdóttir og
Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir
rifjuðu upp æskuárin í Vest-
mannaeyjum upp úr miðri síðustu
öld. Hvert sæti var skipað eins og
venjulega og engin þreyta komin í
dagskrána sem nú var haldin í
sjötta skiptið.
Og í fyrsta sinn voru það kon-
urnar sem áttu sviðið. Vest-
mannaeyjar á þessum árum voru
einstakur staður þar sem flestir
deildu kjörum sem hjá flestum
voru knöpp og þröngt var búið. En
heimurinn var ekki stór. Anna og
Guðrún áttu sinn Faxastíg þar sem
var pláss fyrir öll trúarbrögð og
skoðanir.
Miðbærinn var svæðið hennar
Katrínar þar sem rúnturinn var
miðpunktur heimsins. Ingibjörg
ólst upp í 19 manna stórfjölskyldu
að Kirkjubæjarbraut 4 og var
Austurbærinn hennar festa í lífinu.
Guðrún í Þorlaugargerði sýndi ótví-
rætt að fólk ofan girðingar er og
verður með sín sérkennilegheit og
sérvisku eða kannski frekar visku.
Eins og alltaf er það hlýja og
væntumþykja sem skín í gegn þeg-
ar æskuárin í Eyjum eru rifjuð
upp. Og Eyjahjartað hefur sýnt
hvað við eigum mikið sameiginlegt
og þegar upp er staðið eru það
Vestmannaeyjar og það mannlíf
sem hér þrífst sem gerir okkur öll
að Eyjamönnum. Sama hvar við
búum.
Svo lengi sem elstu menn
muna hafa börn og unglingar í
Vestmannaeyjum þyrpst út á
kvöldin þegar von er á að pysj-
urnar í fjöllunum í kringum bæinn
fari að yfirgefa hreiðrin. Fljúga
þær á ljósið og þegar best lét hér á
árum áður gat afraksturinn verið á
annað hundrað pysjur á nóttu.
Þeim er safnað í kassa og sleppt út
á sjó daginn eftir.
Pysjutíminn er nokkuð rokk-
andi, getur verið frá lokum ágúst
og út september. Undanfarin ár
hefur lundastofninn í Eyjum verið í
lægð en ef marka má fjölda pysja á
þessu hausti gæti hann verið á
uppleið á ný.
Í mörg ár hefur pysjuvaktin
verið starfandi í Eyjum í Sæheim-
um. Þangað er komið með pysj-
urnar og þær mældar og vigtaðar.
Á heimasíðu Sæheima á fimmtu-
daginn segir: –Alls komu 4808
pysjur inn á borð á Sæheimavigt-
ina og ævintýrið alveg að klárast.
Sú síðasta fannst um borð í Sig-
urði VE inni í Friðarhöfn í vikunni
og spurning hvort fleiri bætast við.
Í ár var leyft að veiða lunda í
þrjá daga í Vestmannaeyjum og
nær leyfið til heimalandsins og út-
eyja þar sem veiðifélögin hafa
komið sér upp myndarlegum hús-
um með öllum nútíma þægindum.
Ekki er vitað til þess að bjarg-
veiðimenn hafi nýtt sér þessa
glufu, vilja láta lundann njóta vaf-
ans.
Það er því ekki Vestmanna-
eyjalundi sem verður á borðum á
Lundaballinu í Höllinni í kvöld.
Löngu er uppselt í mat og
skemmtun en í allt er gert ráð fyr-
ir 450 manns í mat og skemmtun.
Félög innan Bjargveiðimanna-
félags Vestmannaeyja skiptast á
um að halda Lundaballið og nú er
komið að Suðureyingum sem
stefna á að það verði það flottasta
frá upphafi.
Lundinn sem á borðum verður
var m.a. veiddur í Grímsey sem nú
er ein af úteyjum Vestmannaeyja.
Koma gestir þaðan og líka 70
manns frá Götu í Færeyjum sem
líka tilheyra Vestmannaeyjaklas-
anum. Það verður því mikið um
dýrðir á Lundaballinu og fullyrða
Suðureyingar að þar verði toppn-
um náð.
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Fulltrúar Eyjahjartans Kári Bjarnason, Guðrún Einarsdóttir, Guðrún Garðarsdóttir, Þuríður Bernódusdóttir, Atli
Ásmundsson, Katrín Theódórsdóttir, Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir, Einar Gylfi Jónsson og Anna Einarsdóttir.
Lundinn er ljúfastur fugla
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Kostnaður Sjúkratrygginga Ís-
lands (SÍ) vegna innanlandsflugs
sjúklinga var 176,2 milljónir á síð-
asta ári, sem er um 3 milljóna
króna hækkun frá árinu 2015.
Ferðum fjölgaði á sama tímabili úr
6.384 ferðum í 6.677 ferðir en með-
alkostnaður á hverja ferð lækkaði
hins vegar úr 27.146 kr. í 26.396 kr.
Kostnaður SÍ vegna flugferða
innanlands hefur farið hækkandi á
síðustu árum en árið 2010 var
kostnaður um 105 milljónir króna,
fjöldi ferða var 5.365 og meðal-
kostnaður var 19.555 kr. Ferða-
kostnaður vegna innanlandsflugs
tekur til sjúklinga sem ferðast með
almennu flugi til að nota heilbrigð-
isþjónustu. Kostnaðurinn er
greiddur sem ferðakostnaður og er
sjúkraflug ekki með í kostnaðartöl-
unum hér að ofan. Berglind Ýr
Karlsdóttir, deildarstjóri slysa- og
sjúkratryggingasviðs SÍ, segir að
oft sé um að ræða ferðakostnað
þegar fólk þarf að komast til sér-
fræðinga á sjúkrahúsum í Reykja-
vík. „Langoftast er þetta fólk hvað-
anæva af landinu, þar sem ekki er
hægt að fá ákveðna sérfræðiþjón-
ustu. Það á þá rétt á að fá ákveðið
margar ferðir á ári til að sækja sér
þjónustuna. Þetta er ekki bráð-
veikt fólk sem þarf sjúkraflug,
heldur kaupir það flugmiðana sjálft
og fær svo endurgreitt,“ segir
Berglind.
Skráning SÍ er ekki með þeim
hætti að ávallt sé ljóst hvort kostn-
aður vegna ferðar fram og til baka
sé vegna tveggja flugferða eða
einnar. Því er ómögulegt að áætla
meðalverð á greiddum flugmiða og
því er stuðst við meðalkostnað á
hverja ferð fyrir sig.
842 flugmiðar til útlanda
Ferðakostnaður SÍ árið 2016
vegna flugferða til útlanda var 84,1
milljón króna vegna 842 flugmiða,
sem er að meðaltali 99,9 þúsund
fyrir hvern miða. Ferðakostnaður
sjúklinga sem fljúga utan flokkast
ekki sem sjúkraflug heldur sem
hluti af liðnum „brýn meðferð er-
lendis“ í skráingum SÍ. Á árunum
2010 til 2015 voru keyptir um 3.000
flugmiðar vegna sjúklinga og
fylgdarmanna erlendis en á því
tímabili voru flestar ferðirnar til
Kaupmannahafnar, (PET, hjart-
veik börn sem fara til Lundar í Sví-
þjóð fljúga á Kastrup), Gautaborg-
ar (líffæraþegar) og til Stokkhólms
vegna samninga við Karólínska
sjúkrahúsið (beinmergsskipti o.fl.).
Allt sjúkraflug til Svíþjóðar
Á árinu 2016 var farið 18 sinnum
í sjúkraflug. Sjúkraflug er þær
ferðir þar sem ekki var hægt að
nota áætlunarferðir heldur var
nauðsynlegt að fá sérstakt sjúkra-
flug. Allar 18 ferðirnar voru til Sví-
þjóðar og langflestar vegna líf-
færaígræðslu. Kostnaður fyrir
sjúkraflug til og frá Íslandi var
69,7 milljónir króna árið 2016.
Ferðakostnað-
ur SÍ hækkar
176 milljónir í innanlandsflug til að
tryggja aðgang að heilbrigðisþjónustu
Morgunblaðið/Kristján
Innanlandsflug Meðalkostnaður
ferða í fyrra var 26.396 krónur.
Kostnaður SÍ vegna
ferða sjúklinga 2016
» 176.247.119 krónur í innan-
landsflug.
» Fjöldi ferða var 6.677 á
árinu.
» Meðalkostnaður á hverja
ferð er um 26.396 kr.
» Ferðakostnaður erlendis var
84.123.135 kr.
» 18 ferðir í sjúkraflugi til og
frá Íslandi á árinu.
» Kostnaður við sjúkraflug var
69.755.491 kr.
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
Merk tímamót eru hjá leikskól-
anum í Stykkishólmi um þessar
mundir en 60 ár eru liðin frá því
að leikskólinn tók til starfa. Það
var í október 1957 sem St. Frans-
iskussystur opnuðu leikskóla hér í
Stykkishólmi. Tímamótanna verð-
ur minnst með ýmsum hætti á
næstunni.
Í ljósi sögunnar er þetta mjög
merkilegt þar sem á þessum tíma,
eða árið 1960, voru 12 leikskólar í
Reykjavík og enn liðu 20 ár þar til
stofnaðir voru leikskólar í ná-
grannasveitarfélögum okkar. Þær
systurnar voru því mjög framfara-
sinnaðar og þessi viðbót við heim-
ilisuppeldi vel þegin því árið 1963
voru um 60 börn í leikskólanum.
St. Fransiskussystur höfðu víð-
tæk áhrif á bæjarbraginn í Stykk-
ishólmi og létu margt gott af sér
leiða.
Afmælis leikskólans verður
minnst á margvíslegan hátt í
næstu viku með barnamenningar-
hátíð. Formleg afmælishátíð verð-
ur svo í Tónlistarskólanum laugar-
daginn 7. október og hefst kl. 16.
Sigrún Þórsteinsdóttir skólastjóri
segir að vandað verði til undirbún-
ings. Þar mun m.a. forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannesson mæta,
ásamt Elízu Reed forsetafrú, og
flytja ávarp á hátíðinni.
Húsnæðið sprungið
Nýr leikskóli í Stykkishólmi var
vígður árið 2007 og var reiknað
með að húsnæðið væri það stórt að
ekki þyrfti að hafa áhyggjur af því
næstu árin.
Árið 2010 var byrjað að taka á
móti eins árs gömlum börnum. Nú
10 árum seinna er leikskólinn orð-
inn of lítill svo að ekki er hægt að
taka á móti öllum börnum sem
vilja koma. Margt ungt fólk hefur
flutt í bæinn og það hefur sín
áhrif. Í vor voru farnir að myndast
biðlistar.
Bæjaryfirvöld brugðust fljótt
við til að mæta brýnni þörf á
stærra húsnæði. Keypt var 60 fer-
metra færanleg kennslustofa sem
áður þjónaði sem kennslustofa fyr-
ir Listaháskóla Íslands.
Húsið var flutt vestur fyrir
stuttu og staðsett við hlið leikskól-
ans. Þar verða í skóla börn á aldr-
inum eins til tveggja ára.
Sigrún Þórsteinsdóttir er ánægð
með hvernig til hefur tekist og
segir að nýja húsnæðið muni nýt-
ast vel. Hægt verði að taka á móti
öllum sem þess óska og öll börn,
eldri en eins árs, geti fengið skóla-
vist.
Í haustbyrjun eru nemendur 78
og hefur þeim fjölgað mikið á síð-
ustu árum. Að sögn Sigrúnar hef-
ur gengið vel að ráða starfsmenn.
Nokkrir þeirra eru af erlendu
bergi brotnir og hefur þeim gengið
vel í starfi. Starfsmenn við skólann
eru samtals 23.
Leikskólinn fagnar 60 ára afmæli
Öll börn 12 mánaða og eldri komast
að í leikskólanum í Stykkishólmi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmur Sigrún Þórsteinsdóttir við nýja færanlega kennslustofu.