Morgunblaðið - 30.09.2017, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
Með hverri pantaðri ferð hjá Hreyfli, styrkir þú
Krabbameinsfélagið til stuðnings krabbameinsgreindum
og aðstandendum þeirra.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar
enn á ný með bleikum taxaljósum.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Hreyfill er styrktaraðili
árvekniátaks Krabbameinsfélagsins
í október og nóvember
Styrkjum starfsemi
Krabbameinsfélagsins
Fögnum 10 ára
samstarfi
Hreyfils og
Bleiku slaufunnar
2007 - 2017
Tökumbleikan
bíl!
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Talsverður skortur er á starfsmönn-
um í grunnskóla í Reykjavík. Frá
þessu er greint á vef Reykjavíkur-
borgar. Samkvæmt nýjustu talning-
um er enn óráðið í 17 stöðugildi í
grunnskólum: Vantar þar einn kenn-
ara, 11 stuðningsfulltrúa, 3 skólaliða
og 2 starfsmenn í mötuneyti. Enn
fleiri starfsmenn vantar í stöður á
leikskólum borgarinnar: 3 deildar-
stjóra, 51 leikskólakennara, 14
stuðningsfulltrúa og 15 aðra starfs-
menn. Aðeins 27 leikskólar eða 43%
leikskóla í Reykjavík eru fullmann-
aðir.
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, segir tölurnar
þó ekki segja alla söguna. Algengt sé
um land allt að leiðbeinendur án til-
settrar menntunar séu ráðnir í kenn-
arastörf vegna skorts á framboði
menntaðra kennara. Menntaðir
kennarar leiti í miklum mæli í launa-
hærri störf en grunnskólakennslu
enda sé fólk með kennaramenntun
eftirsótt í ýmsum öðrum starfsgrein-
um. Ólafur telur að ómenntaðir leið-
beinendur sem hafi verið ráðnir á
landsvísu séu hátt í 300 talsins.
Samkvæmt talningu undanþágu-
nefndar grunnskóla hjá Mennta-
málastofnun var sótt um 370 undan-
þágur frá kröfum um kennara-
menntun við ráðningar í grunnskóla
um land allt á skólaárinu 2017-2018.
Þar af voru 324 umsóknir samþykkt-
ar, en það eru um 19% allra sam-
þykktra starfsumsókna. Af veittum
undanþágum voru 47 umsóknir frá
skólastjórum grunnskóla í Reykja-
vík.
Aðspurður hvort hann telji ráðn-
ingu leiðbeinenda án kennararétt-
inda hafa slæm áhrif á menntun
barna svarar Ólafur játandi. „Við
verðum að ætla að menntaðir kenn-
arar skili betri árangri en leiðbein-
endur. Annars væri enginn tilgangur
í kennaranámi.“
Fyllt í kennaraeyðurnar um land allt
Morgunblaðið/Þorkell
Ekla Mikill skortur er á kennurum.
Fjölmargir leiðbeinendur án kennaramenntunar ráðnir vegna skorts á menntuðum kennurum
Evrópusamtök frjálslyndra stúd-
enta og samtök frjálslyndra fram-
haldsskólanema efna til ráðstefnu í
stofu V101 í Háskólanum í Reykja-
vík í dag, laugardag, klukkan 11 til
16.
Meðal ræðumanna verður David
D. Friedman prófessor, sonur hins
kunna hagfræðings Miltons Fried-
man. David Friedman telur ein-
staklinga geta með frjálsum við-
skiptum leyst úr flestum eða öllum
málum, segir ma. í tilkynningu.
Á ráðstefnunni ræðir dr. Daniel
Michell rökin fyrir skattalækk-
unum og Edward Stringham pró-
fessor lýsir hlutverki frumkvöðla í
frjálsu atvinnulífi. Þá munu nokkr-
ir ræðumenn kynna hreyfingu
frjálslyndra stúdenta.
Ráðstefnan er öllum opin.
David D. Friedman
ræðumaður á ráð-
stefnu frjálslyndra
Hæstiréttur Íslands tilkynnti á
fimmtudaginn að framvegis mundi
rétturinn birta á vef sínum fréttir
og tilkynningar svo sem um dóma,
starfsmannabreytingar, heimsókn-
ir og fleira sem fréttnæmt þykir.
Fram til þessa hafa einungis birst á
vef réttarins dómar og ýmsar upp-
lýsingar um réttarhaldið.
„Markmiðið með þessu er að auð-
velda almenningi að fylgjast með
starfsemi réttarins og dóms-
úrlausnum hans. Er þetta í sam-
ræmi við það sem þekkist hjá dóm-
stólum annars staðar á Norður-
löndum,“ segir í fyrstu fréttinni á
vefnum.
Ein fyrsta fréttin fjallaði um
breytingar á starfsliði. Þar segir að
hinn 31. ágúst sl. hafi Eiríkur Tóm-
asson látið af störfum sem dómari
við réttinn sökum aldurs. Þá féll
skipun Ingveldar Einarsdóttir sem
setts hæstaréttardómara niður 15.
september sl. Starfaði hún í fjar-
veru Páls Hreinssonar dómara við
EFTA-dómstólinn en honum var
veitt lausn frá embætti hæstarétt-
ardómara sama dag. „Ekki verður
skipað í stöður þeirra dómara sem
nú hafa látið af störfum þar sem
gert er ráð fyrir því að dómurum
við réttinn fækki niður í sjö í
tengslum við stofnun Landsréttar,“
segir í fréttinni á vef Hæstaréttar.
sisi@mbl.is
Fréttaþjón-
usta hjá-
Hæstarétti
Fordæmið frá
Norðurlöndum
Morgunblaðið/Ófeigur
Hæstiréttur Framvegis er ætlunin
að birta fréttir á vef réttarins.