Morgunblaðið - 30.09.2017, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
ÁMön fer fram þess dag-ana fram sterkasta opnamót ársins og þar semefsti flokkurinn er opinn
skákmönnum sem eru með 2.100-
elo stig og meira fannst mér alveg
tilvalið að Skákskóli Íslands byði
nokkrum nemendum sínum upp á
ferð á þetta mót þar sem þátt taka
margir af snjöllustu skákmönnum
heims með heimsmeistarann
Magnús Carlsen í broddi fylk-
ingar.
Svo skemmtilega vildi til að
Bárður Örn Birkisson dróst á móti
heimsmeistaranum í fyrstu umferð
en í þeirri umferð var sú undan-
tekning gerð frá viðurkenndri
„pörn“ að parað var óháð elo-
stigum samkvæmt slembireglu og
þannig vildi til að Kramnik og
Caruana mættust og lauk viður-
eigninni með sigri þess síðar-
nefnda og Kramnik tapaði svo aft-
ur í 3. umferð fyrir 65 gömlum
Bandaríkjamanni, James Tarjan. Í
höfuðstaðnum Douglas þar sem
mótið fer fram er teflt í gömlu
leikhúsi og þar eru aðstæður með
besta móti, hátt til lofts og vítt til
veggja. Íslensku skákmennirnir
eru ellefu talsins, átta í efsta flokki
og þrír í neðri flokkunum. Að tefla
í slíku móti er mikil reynsla og
mörg góð úrslit geta fengist.
Heimsmeistarinn Magnús Carl-
sen er vitanlega miðpunktur at-
hyglinnar en framganga og tafl-
mennska ljómar bókstaflega af
sjálfstrausti og sigurvilja. Hann
gerir sér fara um að sneiða hjá
þekktum byrjunarleiðum, í skákum
hans á Mön sjást byrjunarleikir
með svörtu eins 1. e4 g6 , 1. e4
Rc6 eða 1. Rf3 b6. Nú er það ekk-
ert nýtt að skákmenn vilji koma
andstæðingnum „út út teóríunni,“
eins og það er stundum orðað en
Magnús færir þessa stefnu upp á
allt annað plan. Pavel Eljanov er
einn sterkasti skákmaður heims, 1.
borðsmaður Úkraínu á stundum og
hann tapar yfirleitt ekki oft með
hvítu. Hann virtist sleginn út af
laginu þegar Magnús dró upp úr
hattinum byrjun sem sjaldan sést
tefld. Eftir 29 leiki var hann búinn
að fá nóg og gafst upp. Við það
komst norski heimsmeistarinn einn
í efsta sætið og teflir næst við lítt
þekktan en geysiöflugan indversk-
an skákmann, Vidit:
Pavel Eljanov – Magnús Carl-
sen
Owens-byrjun
1. Rf3 b6 2. e4 Bb7 3. Rc3
Það er talið heppilegra fyrir
hvítan að hafa riddarann á d2 í
þessu afbrigði en það var ekki svo
auðvelt að koma því við.
3. … e6 4. d4 Bb4 5. Bd3 Rf6 6.
De2 d5 7. exd5 Dxd5 8. 0-0 Bxc3
9. bxc3 Rbd7 10. c4 Dh5 11. Bf4
Hc8 12. a4 a5 13. Hab1 0-0 14.
Hb5 c5 15. dxc5?
Þessi uppskipti veikja stöðu
hvíts. Eftir 15. c3 er staðan í jafn-
vægi en sennilega hefur Eljanov
ekki viljað sætta sig við að tefla
stöðuna peði undir eftir 15. … Bc6
16. Hb1 Bxa4 o.s.frv. )
15. … Hxc5 16. Bd6 Hxb5 17.
cxb5 Hc8 18. c4 Rc5 19. Bc2 Rce4!
Eins og hendi séð veifað hefur
Eljanov ratað í nær óyfirstígan-
lega erfiðleika.
20. Bf4 Rc3 21. Dd3 Dg4!
Hótar biskupinum og hefur c4-
peðið í skotmáli, 22. Dxc3 hefði
verið svarað með 22. … Rd5
o.s.frv.
( STÖÐUMYND )
22. Be5 Dxc4 23. Dxc4 Hxc4 24.
Bd3 Hc8 25. Ha1 Rfd5 26. Rd2 f6
27. Bd6 Rb4 28. Bc4 Bd5 29. Bf1
Rba2
– og Eljanov gafst upp. Hann
tapar a-peðinu til viðbótar og eftir
það er frekari barátta vonlaus.
Staðan efstu mann þegar þrjár
umferðir eru eftir: 1. Magnús
Carlsen 5½ v. (af 6) 2. Vidit 5 v.
Síðan kom 15 skákmenn með 4½
vinning þar af nokkur kunnugleg
nöfn Anand, Caruana, og Nakam-
ura. Mótinu lýkur á morgun
sunnudag.
Magnús Carlsen
efstur á sterkasta
opna móti ársins
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Mætti heimsmeistara Bárður Örn Birkisson mætti Magnúsi Carlsen í fyrstu umferð mótsins á Mön.