Morgunblaðið - 30.09.2017, Page 30

Morgunblaðið - 30.09.2017, Page 30
Ég get ekki látið hjá líða að tjá mig um grein í Fréttablaðinu nú fyrir skemmstu þar sem biskup okkar, frú Agnes M. Sigurðar- dóttir ræðir ásökun á hendur sóknarpresti í Grensáskirkju. Greindi biskup frá því að hún hefði leyst séra Ólaf Jóhannsson tíma- bundið frá störfum vegna ásökunar konu, (sem ekki kemur fram undir nafni a.m.k. í þessari blaðagrein) um ósæmilega framkomu prestsins í hennar garð. Mér fannst orðalag frú Agnesar ekki nógu skýrt þar sem hún segir: „Ég líð ekki svona nokkuð á minni vakt.“ Hvort áttu þessi orð að lýsa ósæmilegri framkomu prestsins, sem ekki er búið að sanna eða fullreyna, eða var þeim beint til um- ræddrar konu sem trú- lega hefur ekki vitni að atvikinu sem kom henni úr jafnvægi. Undirrituð tekur óhrædd upp hanskann fyrir sóknarprest sinn, séra Ólaf. Hef sóst eftir aðkomu hans í þágu eldra fólksins í húsinu þar sem ég bý. Sjálf fól ég honum að jarðsyngja eiginmann minn og nánasta vin og hef gert áætlun um mína eigin útför, á sömu forsendum. Stundum hefur mér flogið í hug að konur, sem eru svo fljótar að snúa vinsemd og hlýlegu viðmóti upp í andhverfu sína, séu einmitt að sækj- ast eftir athygli og njóti þess að tek- ið sé eftir þeim. Mér þykir ekki ósennilegt að menn sem hafa hlýjan persónuleika fari frekar í guðfræði og vígist síðar til prests, heldur en harðir og kald- rifjaðir menn. Ætlast fólk til að þeir kasti fyrir róða sínum bestu eigin- leikum þegar þeir eru komnir í emb- ætti og gerist kaldir spýtukarlar? Hvert stefnir í þessum málum? Eru Íslendingar hættir að gera greinarmun á vinsemd og hlýju við- móti og annarlegum tilburðum milli kynja. Hvar eru kennarar í leik- skólum eða í yngri bekkjum barna- skólanna staddir, ef þeir mega ekki taka barn í fangið og hugga það eftir slys eða áreitni annarra af ótta við að það sé túlkað sem kynferðislegt athæfi. Ég held að landinn sé búinn að horfa of mikið á sorann sem birt- ist í kvikmyndum og á öðrum sam- félagsmiðlum. (Sérlega óheppilegt fyrir börn og ómótaða unglinga.) Svona orti föðursystir mín, Oddný Kristjánsdóttir, en henni auðnaðist að gefa út tvær ljóðabækur, þá seinni á níræðisafmælinu sínu. Enginn kann á öllu skil ýmislegt þó lærist. Þar sem engin ást er til engin gleði bærist. Ertu að misskilja vináttuna? Eftir Maríu Krist- ínu Einarsdóttur »Hvernig sýnum við vináttu nema með hlýju faðmlagi og kannski kossi á kinn. María K. Einarsdóttir Höfundur er eldri borgari og hefur fengist við ljóðagerð og ýmsar aðrar listgreinar. 30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 Flestir munu þekkja að vandi sauð- fjárbúskapar í landinu er meiri en lengi hefur verið. Forsendubrest- ur er orðinn hjá mörg- um sauðfjárbændum vegna þess að greiðslur afurðastöðva til bænda á þessu hausti hafa lækkað um tugi prósenta. Lands- samtök sauðfjárbænda (LS) blésu til aukafundar í ágúst sem síðan var frestað til 19. september. Þar krufðu fulltrúar þeirra vandann í málefna- legum umræðum, en ljóst er að stjórnmálaástand í landinu er slíkt í augnablikinu að aðkomu stjórnvalda er ekki að vænta á næstunni að þeim djúpstæða vanda sem þarna er við að kljást. Eftir að hafa setið þennan fund og hlýtt á umræður þar eru tvö atriði sem mér eru öðru ofar í huga. Vil ég aðeins gera þau hér að umtalsefni. Tel ég mig jafnvel gjaldgengan í þá umræðu þar sem ég hef unnið að málum greinarinnar á fimmta ára- tug. Ég tel mig einnig þekkja það umhverfi í samningum við ríkið um sauðfjár- framleiðsluna sem verið hefur frá árinu 1985. Kom ég meira og minna að samningum nokkuð framyfir aldamót og vann þó enn meira hjá stofnunum landbún- aðarins að útfærslu þeirra. Þá starfaði ég með tugi nefnda sem á þessum árum unnu að greiningu á vanda sauð- fjárframleiðslunnar sem flestum var þá ljós og liggur fjöldi slíkra úttekta frá þeim tíma fyrir sem einhverjir gætu haft gagn af að skoða. Síðan hef ég reynt að fylgjast með gangi þessara mála. Síðasta áratuginn er ekkert álag í öllu falli að vera allvel heima í því sem unnið hefur verið af hendi BÍ og LS í þessum málum. Það er einfald- lega ekkert. Fyrra atriðið sem ég held að menn verði að velta fyrir sér, er að mér virðist að jafnvel bæði ríki og fulltrúum bænda sé ekki lengur al- veg ljóst um hvað er verið að semja í ríkisstuðningi við sauðfjár- framleiðsluna. Þegar ég kom fyrst að þessum málum var ljóst að verið var að semja um vissan stuðning við framleiðslu til að mæta þörfum markaðarins hér á landi. Sumir ræddu þá jafnvel líka um stuðning við byggðarlög þar sem framleiðslan fór fram. Því miður náðist aldrei nein víðtæk samstaða á þeim tíma með þjóðinni og bændum um stefnu í þessum málum. Á þeim áratugum sem eru liðnir síðan hafa öll stuðn- ingskerfi við landbúnaðarfram- leiðslu bæði hér á landi og erlendis gerbreyst og orðið miklu víðtækari en áður var. Formaður BÍ hélt því fram við síðasta búvörusamning að hann væri að gera slíkan víðtækan samning fyrir landbúnaðinn. Það held ég að hvorki bændur né aðrir þegnar þjóðarinnar hafi sannfærst um. Þvert á móti þveröfugt eins og ég hef margoft bent á í greinum frá því samningarnir birtust. Því miður held ég að það séu alltof margir sem hafa ekki lengur yfirsýn um þetta aðalatriði. Þar á meðal margir af for- ystumönnum BÍ. Hluti vandans er einnig sá að stærstu vandamálin sem ræða þarf hafa menn ætíð hlaupist undan að ræða. Bendi ég þar á greiningu sem ég birti á Stundinni. Í hnotskurn er vandinn sem snýr að sauðfjárbúskap í dag í megin- atriðum þessi: Greinin er að hluta háð ríkisstuðningi eins og í nánast öllum löndum Evrópu. Væri svo ekki mundu fáir ræða þetta sem vanda- mál. Vandinn er aftur á móti sá að útilokað er til frambúðar að nema viss hluti þeirra sem fá slíkan stuðn- ing í dag geti áfram notið hans ef markmiðið á að vera að þróa sjálf- bæra atvinnugrein. Það vona ég að sé framtíðarstefna. Hvernig taka á á þessum vanda, hluti greinarinnar með stuðning, aðrir án hans. Skipt- ing í innanlandsmarkað og mögu- legan útflutning, sem menn hafa verið að missa úr höndum sér á síð- ustu árum. Þannig má áfram telja verkefnin sem blasir við bændum sjálfum að ræða sig til lausnar á. Ég hélt að markmiðið væri að reyna að beina stuðningi að sjálfbærri fram- leiðslu, bættri umgengni við vist- kerfi landsins, sem hagkvæmastri framleiðslu, ákveðnum byggða- stuðningi og þannig mætti áfram telja. Í raun er þetta einfaldara en kann að virðast, og við vitum sem þekkjum greinina, vegna þess að þetta fer yfirleitt saman á sömu bú- um. Hafi síðasti sauðfjársamningur átt að vera stefnumótandi þá gekk hann því miður þvert á nánast allt þetta. Aðalatriði: Það þarf að verða mun skýrara en nú hvað þjóðin er að styðja við með ríkistuðningi til greinarinnar. Þar verða bændur að hafa forystu í umræðunni og leita sem víðtækastra sátta við þjóðina (Alþingi). Einnig að ná sátt innan greinarinnar um framkvæmd og er það þyngsta þrautin. Hitt atriðið sem mér er í huga er að í ljósi þeirrar pólitísku upplausn- ar sem er verður greinin að sýna einhvern framfarahug fyrir sína hönd. Í samanburði við bændafor- ustu í nágrannalöndum hafa hér- lendir aðilar aldrei verið flinkir að auglýsa styrk sinn faglega og gildi greinarinnar. Þar var þessi fundur ekki undantekning. Hann auglýsti í ályktunum sínum nær eingöngu vandamál. Þannig er ekki blásið til stórsóknar gagnvart nýjum fulltrú- um á Alþingi. Ég vil því í lokin að- eins minna á þá skoðun margra er- lendra aðila sem þekkja dilkakjötsframleiðslu um allan heim að þeir eru sammála um það að frá náttúrannar hendi er nær ekkert land sem stendur okkur framar nema Nýja-Sjáland að því leyti. Að afstöðnum aukafundi LS Eftir Jón Viðar Jónmundsson » Greinin er að hluta háð ríkisstuðningi eins og í nánast öllum löndum Evrópu. Jón Viðar Jónmundsson Höfundur er fv. starfsmaður BÍ og margra annarra landbúnaðarstofnana. jvj11@outlook.com Ný glæsileg heimasíða acredo.is Hátúni 6a Sími 577 7740 carat.is acredo.is Trúlofunarhringir Giftingarhringir Demantsskartgripir 10% afsláttur Það er eðlilegt að al- varlegir atburðir hreyfi við okkur og það taki einhvern tíma að jafna sig. Þegar við stöndum frammi fyrir ógn eða hættu, upplifum við oft mikla hræðslu, og jafn- vel skelfingu, hrylling eða vanmátt. Fara þá í gang ferli í líkamanum sem miða að því að verjast eða forðast ógnina. Um er að ræða frumviðbrögð sem hvetja okk- ur annaðhvort til að berjast eða flýja. Sterk tilfinningaviðbrögð eru því eðlileg eftir alvarlega atburði en þau einkenni eiga smám saman að minnka. Þó að flestir jafni sig fljótt eftir alvarlega atburði, er alltaf ein- hver hópur fólks, mismunandi eftir atburðum, sem þróar með sér áfalla- streitueinkenni sem valdið geta veru- legri vanlíðan og ef einkennin eru mikil þá nær fólk greiningarvið- miðum um áfallastreituröskun „post traumatic stress disorder“. Meira en mánuður þarf að líða frá atburði þar til greiningu um áfallastreituröskun er varpað fram. Það kemur einnig fyrir að einkenni séu lítil í kjölfar at- burðar og byrji ekki fyrr en árum síðar og þá stundum í tengslum við streituvaldandi aðstæður. Það hefur þó sýnt sig að ekki allir sem þróa röskunina með sér hafa upplifað hættulegan atburð heldur frekar at- burð sem ógnar öryggi okkar eða vellíðan á einhvern hátt. Skyndi- legur dauði ættingja getur, sem dæmi má gefa, einnig valdið áfallastreituröskun. Röskunin þróast á mismunandi hátt og margir ná bata innan fárra mánaða á meðan aðrir eru að fást við þetta árum saman. Margir sem lent hafa í áföllum fara í felur með þá líðan sem fylgt getur í kjölfarið og finna jafnvel til skammar yfir því að „jafna sig ekki“ eins fljótt og margir aðrir. Samansafn einkenna í hegðun, hugsun eða tilfinningalífi okkar ræð- ur úrslitum um hvort hægt er að greina áfallastreituröskun. Það eru einkenni eins og ágengar minningar, martraðir, endurupplifun af atburð- inum og sterkar tilfinningar og/eða líkamleg viðbrögð þegar eitthvað minnir okkur á atburðinn. Við höfum tilhneigingu til að forðast að hugsa og tala um eða upplifa tilfinningar eða mæta aðstæðum og/eða fólki sem minna á atburðinn. Forðunin leiðir jafnvel til breytinga á venjum okkar eða hegðun svo sem að vilja síður setjast undir stýri eftir bílslys þrátt fyrir að hafa alltaf viljað vera öku- maðurinn fyrir slysið. Vangeta til að muna mikilvægar upplýsingar um at- burðinn getur verið til staðar, rang- túlkun á því sem gerðist eða afleið- ingum þess sem leiðir oft til sjálfsásökunar eða ásökunar í garð annarra. Einnig getur borið á áhuga- leysi fyrir því sem áður var skemmti- legt, sumir fjarlægjast eða detta úr tengslum við fólk og tala um vangetu til að upplifa jákvæðar tilfinningar eða tilfinningadofa. Reiði og pirr- ingur er algengur, óábyrg eða sjálfs- eyðandi hegðun getur verið til stað- ar, við erum stöðugt á varðbergi og okkur bregður auðveldlega. Einbeit- ingarörðugleikar og svefntruflanir eru líka algengar. Þessi einkenni, sérstaklega reiði og pirringur, geta orðið til þess að okkur finnist erfitt að vera í kringum aðra eða aðrir forðast að vera í kringum okkur, sem verður oft til þess að félagslegur stuðningur minnkar. Áfallastreit- uröskun verður því oft félagslegur sjúkdómur sem áhrif getur haft á nærumhverfi og fjölskyldu. Eins og áður sagði reyna margir að fela einkennin eða finna til skammar yfir líðan sinni á meðan margir þættir spila inn í hvort ein- staklingur þrói með sér áfallastreitu- röskun eða ekki. Að greinast með áfallastreituröskun þýðir ekki að við séum á einhvern hátt ekki jafn seig og aðrir. Það skiptir til dæmis máli hvort lífshætta var upplifuð, hvort um líkamleg meiðsli hafi verið að ræða, hvort við höfum góðan félags- legan stuðning af nánasta umhverfi eða hvort aðrir erfiðir atburðir eru að gerast á sama tíma, s.s. alvarleg veik- indi í fjölskyldu og hvort saga sé um fleiri alvarleg áföll. Sálfræðingar hafa náð góðum ár- angri í meðhöndlun áfallastreitu- röskunar og eru ákveðnar tegundir hugrænnar atferlismeðferðar og þá sérstaklega hugræn úrvinnslu- meðferð mjög árangursríkar. Einnig hefur EMDR (Eye Movement De- sensitization Reprocessing) reynst vel. Að leita sér sálfræðimeðferðar sem fyrst, þegar ljóst er að einkenni minnka ekki þegar frá líður, hefur sýnt sig að dregur úr líkum á að þróa með sér langvarandi áfallastreitu- röskun. Auk þess hjálpar góð með- ferð fólki að snúa fyrr til góðrar virkni og/eða vinnu og dregur jafnvel úr líkamlegum einkennum, s.s. krón- ískum verkjum. Þegar áfallastreit- uröskun er látin ómeðhöndluð getur hún haldið áfram að leiða af sér mikla vanlíðan, þunglyndi, félagslega ein- angrun, samskipta- og tengslavanda og jafnvel misnotkun á vímugjöfum. Ef þú hefur lent í alvarlegum at- burði og kannast við þessa líðan er gott að leita sér aðstoðar sem fyrst til að vinna gegn þeim áhrifum sem ein- kennin eða röskunin getur haft á þig og þá sem standa þér næst. Hver fær áfallastreituröskun? Eftir Sigríði Björk Þormar » Áfallastreituröskun verður oft félagsleg- ur sjúkdómur sem áhrif getur haft á nærum- hverfi og fjölskyldu. Sigríður Björk Þormar Höfundur er doktor í áfallasálfræði sirry@salfraedingarnir.is Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.