Morgunblaðið - 30.09.2017, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
✝ GuðmundurBjörnsson,
fyrrverandi flutn-
ingabílstjóri á
Hólmavík, fæddist
á Kleppustöðum í
Staðardal í Stein-
grímsfirði f. 18. júlí
1931. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á
Hólmavík 16. sept-
ember 2017.
Foreldrar Guðmundar voru
hjónin Björn Sigurðsson frá
Grænanesi og Elín Sigurðar-
dóttir frá Geirmundarstöðum.
Systkini Guðmundar eru: Sig-
ríður, f. 1918, d. 2007, Ingólfur,
f. 1920, d. 1965, Sigmundur, f.
1923, d. 1973, Þórdís, f. 1925,
Guðbjörg Sigrún, f. 1927, Sigur-
laug, f. 1929, Sigurður Kristján,
1956, kona hans er Guðrún Egg-
ertsdóttir. Þau eiga fjögur börn
og sjö barnabörn. 2) Jósteinn
Gunnar, f. 1958, kona hans er
Sigrún María Kolbeinsdóttir.
Þau eiga fjögur börn og fimm
barnabörn. 3) Haraldur, f. 1959.
4) Sigurður Björn, f. 1961, kona
hans er Kristín Guðmundsóttir.
Þau eiga fjóra syni og eitt
barnabarn. 5) Margrét, f. 1963.
Hún á einn son og þrjú barna-
börn, eitt á lífi. 6) Elín, f. 1964,
d. 3. apríl 1983. 7) Guðbjörg Ás-
geirs, f. 1967, maður hennar er
Hjalti Dagsson. Þau eiga þrjár
dætur og eitt barnabarn.
Guðmundur var bóndi á
Stakkanesi en vann hann alltaf
samhliða búskapnum, m.a. við
vegagerð og snjómokstur. Sum-
arið 1978 fluttu þau inn á
Hólmavík og þá hóf hann eigin
rekstur, stofnaði flutningafyr-
irtæki, og starfaði hann við það
þar til hann hætti störfum.
Útför Guðmundar fer fram
frá Hólmavíkurkirkju í dag, 30.
september 2017, og hefst at-
höfnin kl. 13.
f. 1930, Ólöf Sess-
elja, f. 1933, d.
2015, Arndís, f.
1934, Þuríður, f.
1938, d. 2016, Skúli,
f. 1940, d. 2009.
Eiginkona Guð-
mundar er Sigríður
Guðmundína Jó-
steinsdóttir, f. 2.
október 1935 í
Birgisvík. Foreldr-
ar hennar voru
hjónin Jón Jósteinn Guðmundur
Guðmundsson og Sumarlína
Margrét Kristjánsdóttir.
Guðmundur og Sigríður
gengu í hjónaband hinn 13. jan-
úar 1957. Þau hófu búskap á
Stakkanesi í Steingrímsfirði og
bjuggu þar til ársins 1978 er þau
fluttu til Hólmavíkur.
Börn þeirra eru 1) Kristján, f.
Elsku pabbi minn, margar
minningar á ég frá æsku minni
um þig. Ég á minningar um
grenjasögur sem þú sagðir. Oft
þegar einhver hringdi og ég
svaraði þá fór ég að segja
grenjasögur sem ég var búin að
læra utan að eftir þér. Þú komst
stundum með yrðlinga heim sem
mér fannst spennandi að fylgjast
með. Þú hafðir gaman af að
segja ísbjarnarsögur og hafðir
óbilandi áhuga á þeim.
Ef einhver þurfti hjálparhönd
varst þú alltaf fyrstur á svæðið.
Ég fór margar ferðir í flutn-
ingabílnum með þér til Reykja-
víkur. Þú sagðir manni öll bæj-
arnöfn á leiðinni og þú mundir
líka öll símanúmer hjá fólki og
fyrirtækjum. Þegar þú komst
heim úr ferðum og ég sá þig
koma fyrir hornið á Hrófbergi
þá passaði ég að það væri til ný-
lagað kaffi þegar þú kæmir
heim.
Hvíl í friði, elsku pabbi minn,
þín
Guðbjörg (Gógó).
Elsku afi, hvar á ég að byrja?
Ég held að enginn viti nákvæm-
lega hvar maður á að byrja
kveðju. En minningar um þig
eru alveg óendanlega margar
enda varstu maður með sterkan
persónuleika. Þegar ég var lítil
var alltaf svo mikið sport að fá
að fara suður með þér á flutn-
ingabílnum og geta bara sofið í
kojunni. Á leiðinni suður var
alltaf sama áherslan, það var að
kunna alla bæina inn sýslu.
Það var nú ekkert lítið sport
að geta fengið kakó úr kakóvél-
inni sem þú varst með í flutn-
ingabílnum. Svo var alltaf stopp-
að í Ferstiklu í Hvalfirði,
randalína og kaffi var málið.
Þú áttir líka til að svara svo
skemmtilega, eins og þegar þú
varst spurður: hvenær kemurðu,
Guðmundur? Nú, ég kem þegar
ég kem, og hvenær heldurðu að
þú leggir af stað? Nú ég fer þeg-
ar ég fer. Þér var mikið í mun að
kenna mér að hnýta pelastikk og
alltaf kom þessi spurning reglu-
lega: Sissa, hvernig er hnútur-
inn? Manstu ekki örugglega
hvernig hann er?
Jú, afi, ég man. Eins man ég
þegar það fór að nálgast bíl-
prófið hjá mér.
Þig langaði nú að segja mér
svolítið til eins og með gírana,
Sissa, þetta er hálfi … en afi,
þetta er vörubíll, það þarf varla
að læra um hálfa gírinn í bíl-
prófi? Þá var líka eitthvað við
það að fara með þér og ömmu á
kúlusúkkanum í berjamó, alltaf
var amma með nestið á hreinu.
Þið voruð alveg ótrúleg þegar
kom að því að tína aðalbláber,
alltaf voru tíndir fleiri fleiri lítr-
ar af berjum.
Þvílík forréttindi að fá á
haustin allt upp í 10 lítra af
hreinsuðum aðalbláberjum, það
toppar það ekkert. Enda ekki
allir sem geta montað sig af því
að afi þeirra hafi tínt aðalbláber
og fært forsetanum þau, sem
hann fékk svo þakkarbréf fyrir
frá honum.
Kúlusúkkinn, þá sé ég fyrir
mér páskana og þú og Eddi afi í
fjallaferð, tveir alveg eins og
kaffibrúsakallarnir (enda alltaf
með kaffibrúsann og nesti), það
máttu yfirleitt engir aðrir en þið
Eddi afi vera í bílnum, þú og
Eddi afi á kúlusúkkanum. Nú
getið þið eflaust skroppið saman
í fjallaferð hinumegin.
Ég man að þegar Elín mín
var skírð þá varstu svo stoltur,
og þegar mamma spurði
hneyksluð af hverju ég hefði
bætt Ósk við nafnið hennar svar-
aðir þú: veistu það ekki? … þetta
var mín ósk. Já, það eru nú for-
réttindi fyrir mín börn að getað
sagt og munað eftir langafa Guð-
mundi. Ekki bara afa heldur
langafa. Ég kveð þig með sökn-
uði, en ég veit að þú ert kominn
á góðan stað og líður vel og ert
ekki langt undan.
Þín afastelpa,
Sigríður Ella (Sissa).
Ég kynntist Guðmundi
Björnssyni fyrir rúmum 30 ár-
um, ég þá nýkominn með meira-
próf og ók flutningabíl á milli
Reykjavíkur og Ísafjarðar. Á
þessum tíma var þjóðvegurinn
vestur um Djúp nýkominn í
gegnum Hólmavík um Stein-
grímsfjarðarheiði. Og það var
merkilegt hvað við gamli náðum
vel saman frá fyrstu stund enda
alltaf stutt í glens og gaman hjá
honum, auk þess að vera hálf-
gerður táningur í anda alla tíð.
Af þessum meistara gat ég
lært mikið um akstur við erfið
skilyrði og hann var alltaf klár í
að tala um vonda vegi, illa mok-
aða vegi og illa hannaða vegi.
Skyldi ekkert í þessum kján-
um hjá Vegagerðinni að hafa
þessa beygjuna svona krappa,
eða hina brekkuna svona bratta,
þegar miklu betri lausnir voru til
að hans mati. Guðmundur lá
aldrei á skoðunum sínum, tók
þátt í alls konar umræðum um
daginn og veginn, jafnt á kaffi-
stofunni á Vöruflutningamið-
stöðinni, í talstöðinni bíla á milli
eða þegar hann hringdi sem oft-
ast í Rás 2 og las mönnum pist-
ilinn. Þessir gömlu flutningabíl-
stjórar voru sko karlar í
krapinu, allir miklir persónu-
leikar og grjótharðir í alla staði.
Man eftir nokkrum ferðum þar
sem við guttarnir að vestan elt-
um kallinn í hin ýmsu ævintýri
upp á Holtavörðuheiði eða
Ennisháls, enda var bíllinn
hans með drif á öllum hjólum,
eitthvað sem við hinir vildum
gjarnan hafa við slíkar aðstæð-
ur. Já, maður sleppir ekki góðu
brasi ef það býðst. Góður bíl-
stjóri, beitti bílnum ætíð til
fullnustu, ekkert verið að spara
takkana og „vinkilsplittunin“
óspart notuð. Á milli túra stökk
hann upp í „Súkkann“ sinn og
fór upp á heiði í jeppaleik með
strákunum.
Alltaf viljugur að hjálpa til ef
menn lentu í vandræðum og var
t.d. snöggur að kippa í „Pálínu“
þegar ég velti henni við Sævang
er við strákarnir ætluðum aðeins
að kíkja á ball með Bítlavina-
félaginu. Var afar grobbinn með
vin sinn í rallinu hér í den, sér-
staklega er keppnir voru haldn-
ar nærri Hólmavík.
Hann var litli maðurinn í
rekstri í mikilli samkeppni við
erkióvininn Kaupfélagið og við
gátum alltaf áttað okkur á því
hvort bíllinn var mikið lestaður
eftir því hvað hann pantaði í
kvöldmatinn í Brú í Hrútafirði.
Pylsa ef lítið var að gera, en
kótelettur ef mikið var að gera.
Já, Guðmundur Björnsson er
farinn í sinn síðasta túr, blessuð
sé minning hans. Sendi fjöl-
skyldunni allri og vinum hans
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Páll Halldór Halldórsson.
Þegar fjölskylda mín flutti frá
höfuðborgarsvæðinu norður á
Strandir breyttist mjög margt.
Sennilega vorum við í margra
augum algjörir kjánar úr borg-
inni sem vissum ekkert hvað við
værum að fara út í, sem senni-
lega var að mörgu leyti alveg
rétt.
Sem betur fer kynntumst við
góðu fólki sem ráðlagði, leiðrétti,
bjargaði okkur úr klípum, redd-
aði málum og sagði okkur sögur.
Guðmundur Björnsson var
einn af þeim, hann keyrði til
okkar byggingavörur, matvörur
og allt annað á milli himins og
jarðar. Hann hafði um árabil
sinnt flutningi á vörum frá
Reykjavík yfir Holtavörðuheiði,
norður Hrútafjörð sem leið lá til
Hólmavíkur og þaðan norður í
nyrstu byggð á Ströndum, Ár-
neshrepp.
Guðmundur var góður í að
segja okkur sögur um menn og
málefni, en var raunar sjálfur
orðinn eins konar þjóðsagnaper-
sóna. Það komumst við að raun
um eftir því sem við kynntumst
honum betur.
Við heyrðum líka ýmsar sögur
af svaðilförum hans á yngri ár-
um og reyndar var hann sko
ekkert af baki dottinn þótt ár-
unum hefði fjölgað. Hann var
alltaf tilbúinn að taka á sig
áhættusamar ferðir í vafasömu
veðri og hann bauð veðurguð-
unum byrginn þegar á þurfti að
halda.
Ég mun aldrei gleyma þeirri
upplifun að verða vitni að því
fyrsta haustið okkar hérna í
Djúpavík þegar Guðmund bar að
garði og var í það sinn að flytja
heila fjölskyldu á brott úr sveit-
inni. Þetta var seint í október og
hafði snjóað heilmikið. Hann var
sem sagt með alla búslóðina í
flutningabílnum, en svo var fjöl-
skyldan sem í hlut átti, á sínum
fjölskyldubíl. Ferðin hafði alls
ekki gengið vel, til þess var of
mikill snjór, það hafði jú snjóað
látlaust nánast allan daginn á
meðan verið var að hlaða bílinn.
Það var komið myrkur og ekki
eftir neinu að bíða, svo Guð-
mundur tók það ráð að keðja bíl
sinn og binda bara spotta í
minni bílinn og halda þannig
áfram yfir hinn torfæra Veiði-
leysuháls. Ég, borgarbarnið,
var full af undrun og aðdáun
þegar ég horfði á afturljós
bílanna hverfa fyrir síðustu
beygjuna. En ég var ósköp feg-
in að vera ekki í fólksbílnum
sem dansaði á eftir flutninga-
bílnum út í nóttina.
Lífið varð pínulítið fátæk-
legra þegar Guðmundur hætti
að keyra norður í Árneshrepp
eftir áratuga þjónustu við
íbúana. En það var þó til bóta
að hann hringdi nokkuð oft til
okkar og þá var nú spjallað
mikið.
Hann fylgdist með okkur ef
veður voru slæm, vitandi að
samgöngurnar til okkar voru
nokkuð verri en víðast hvar í
sveitinni.
Nú að leiðarlokum þökkum
við Guðmundi fyrir okkur hérna
í Djúpavík, ég leyfi mér enn-
fremur að þakka honum fyrir
hönd íbúa Árneshrepps. Við
sendum Sissu konu hans og allri
fjölskyldunni innilegar samúð-
arkveðjur. Minning hans mun
lifa á meðal okkar á meðan góð
saga er sögð í góðra vina hópi.
Eva Sigurbjörnsdóttir,
oddviti Árneshrepps,
Djúpavík.
„Þú verður að koma heim í
kaffi. Það tefur þig ekkert.
Sissa frænka þín á von á þér.“
Hann sótti þetta af kappi og
ekkert annað en að þiggja gott
boð. Innan stundar var setið við
rjúkandi kaffibollann og góð-
gerðir í stofu þeirra hjóna.
„Ég vissi að það myndi koma
einhver frá Asparvík. Ég var
vakinn upp klukkan sjö í morg-
un við að barið var á dyrnar. Ég
hljóp niður en þá var þar eng-
inn.
Ég bað Sissu að fara að baka
pönnukökur því það kæmu
bráðlega gestir.“
Ég kynntist Guðmundi á síð-
ari árum er hann var hættur í
fastri vinnu. Sum augnablik á
lífsleiðinni verða manni dýr-
mætari en önnur.
Mér er afar minnisstæð
heimsókn til þeirra hjóna fyrir
nokkrum árum. Við sátum í
stofunni og rifjuðum upp gamla
og nýja tíma. Lítill dóttursonur
með í för kunni afar vel að meta
móttökurnar og var leystur al-
sæll út með gjöfum, skreyttum
steinum og skeljum.
Nokkru síðar var ég í pönnu-
kökukaffi með öðrum afastrák.
„Þetta er eitt skemmtilegasta
heimili sem ég hef komið á,“
sagði sá stutti eftir að hafa hrúg-
að í sig bakkelsinu. Guðmundur
spjallaði um heima og geima,
hafði skoðanir, deildi þeim og
hlustaði.
Hann átti svo gott með að
halda uppi samræðum hvort sem
viðmælendur voru háir eða lágir
í loftinu. Þannig kynntist ég
Guðmundi sem einstaklega hlýj-
um manni, brennandi í andanum
og gestrisnum. Það var gott að
eiga Guðmund að vin.
„Ég segi alltaf það sem ég
meina beint út og hverjum sem
er,“ sagði Guðmundur með ljúfu
brosi.
Eftirminnileg er barátta hans
fyrir veginum um Arnkötludal
eða Þröskulda. Brýndi hann oft
okkur þingmennina til dáða:
„Það sér hver heilvita maður þó
hann hafi ekki nema annað aug-
að opið hversu hagkvæmt þetta
verk er,“ sagði Guðmundur í
blaðaviðtali 2004. Spurður um
hvort hann óttaðist ekki vond
veður á Arnkötludal var svarið
einfalt: „Ég hef ekki enn komið
á þann stað þar sem ekki getur
gert vont veður. Eiga menn að
hætta að fara undir Hafnarfjall
eða um Kjalarnes af því að þar
getur gert vont veður?“
Guðmundur hafði kynnst
ýmsu um dagana sem einyrkja-
bílstjóri í áratugi með flutninga
milli Stranda og Reykjavíkur,
oft í ófærð og um lélega vegi.
Á efri árum mátti hann horfa
á húsið sitt brenna ásamt aleig-
unni. Þá fóru erfiðir tímar í
hönd.
En sama hverju gekk á þá
stóð Guðmundur keikur, bar-
áttuglaður, bjartsýnn og hvatti
aðra til dáða.
Nýja húsið reis og þau hjónin
fluttu inn. Því miður fékk Guð-
mundur ekki að njóta hússins
eins lengi og skyldi því heilsunni
hrakaði.
Nú er Guðmundur kominn á
víða velli handan fljótsins mikla.
Hann mun örugglega benda þar
á hvar vantar nýja brú eða fylla
þarf í holur á vegi. Við þökkum
athafnamanninum Guðmundi
Björnssyni fyrir samfylgdina.
Hann setti svo sannarlega
sterkan svip á samtíð sína og
samfélag. Við minnumst þess
hve vinnulúin hönd hans var hlý
og handtakið þétt og fast. Því
hlýja handtaki skilar Guðmund-
ur til okkar sem eftir stöndum.
Blessuð sé minningin um
heiðursmanninn Guðmund
Björnsson frá Stakkanesi.
Sissu og fjölskyldunni sendum
við einlægar samúðarkveðjur.
Ingibjörg Kolka og
Jón Bjarnason.
Guðmundur
Björnsson
Högni Skaftason,
skipstjóri frá Fá-
skrúðsfirði, er lát-
inn eftir erfið veik-
indi.
Högni fæddist á Fáskrúðs-
firði 30. mars 1946, hans ævi-
starf var sjómennska, sem
hann stundaði mestallan sinn
starfsferil. Hann lauk meira
fiskimannaprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík
1965.
Högni var skipstjóri á skut-
togaranum Hoffelli SU 80 frá
árinu 1977 þar til skipið var
selt 1996 eða 19 ár. Áður hafði
hann verið 1. stýrimaður á
Högni Skaftason
✝ Högni Skafta-son fæddist 30.
mars 1946. Hann
lést 7. september
2017.
Högni var jarð-
sunginn 16. sept-
ember 2017.
togaranum Ljósa-
felli SU 70 syst-
urskipi Hoffells
SU og þar áður
skipstjóri á eldra
Hoffelli 180 lesta
skipi.
Skuttogarinn
Hoffell SU 80 var
mikið happaskip
undir stjórn
Högna Skaftason-
ar og ávallt í hópi
mestu aflaskipa á Austurlandi.
Ég kynntist Högna þegar
hann hætti tímabundið sjó-
mennsku og hóf störf sem
skipaskoðunarmaður hjá Sigl-
ingastofnun á Fáskrúðsfirði ár-
ið 1997.
Við náðum góðu vináttusam-
bandi sem ég kunni vel að
meta. Það var alltaf skemmti-
legt að tala við Högna bæði
þegar við hittumst og tókum
bryggjurúnt í bænum og þegar
við stundum áttum löng og
skemmtileg símtöl. Hann hafði
ákveðnar skoðanir á hlutunum
og var ófeiminn að segja skoð-
anir sínar umbúðalaust.
Við ræddum mest um sjó-
mennsku, pólitík og ég held að
við höfum sjaldan sleppt því að
ræða um mat, enda báðir
áhugasamir um matargerð.
Við vorum oftast sammála í
pólitíkinni, báðir flokkaflæking-
ar eins og við kölluðum það, en
stundum kom það fyrir að við
vorum ekki sammála um flokk.
Þá sagði hann í gamni að ef ég
kysi vitlausan flokk þá talaði
hann ekki við mig meir og svo
var hlegið. Högni hafði
skemmtilegan húmor fyrir hlut-
unum. Ég á eftir að sakna
þeirra mörgu skemmtilegu
samtala sem við Högni áttum
saman.
Seinustu árin gerði hann út
sinn eigin bát, Sæberg SU 112,
á strandveiðar og má segja að
það hafi verið hans líf og yndi.
Hann var búinn að útbúa bát-
inn vel, setja í hann nýja vél og
endurnýja öll tæki þegar hann
veiktist, þannig að báturinn var
tilbúinn á strandveiðar síðasta
vor. Hann vildi alltaf hafa Sæ-
bergið í góðu lagi þegar hann
færi á sjó, allan öryggisbúnað
og allt snyrtilegt, hann eyddi
því drjúgum tíma í að halda
bátnum í góðu standi.
Högni sagði að það væri ekk-
ert skemmtilegra en að vera á
sjó á Sæbergi SU í góðu veðri á
færum og veiða fisk. En því
miður naut hann þess ekki að
vera á bátnum sínum sl. sumar
vegna alvarlegra veikinda sem
leiddu til þess að hann lést 7.
september 2017.
Högni kvæntist eftirlifandi
konu sinni Ingeborgu Eide
Hansdóttur 12. september
1971, þau eignuðust fjögur börn
þau eru: Kristín, Elín, Hjörvar
Sæberg og Katrín.
Með þessum fátæklegu orð-
um kveð ég minn góða vin
Högna Skaftason, blessuð sé
minning hans.
Kæra Ingeborg og fjöl-
skylda, við Kolbrún sendum
ykkur innilegar samúðarkveðj-
ur.
Sigmar Þór Sveinbjörnsson.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
INGIBJÖRG STELLA
SIGURÐARDÓTTIR,
til heimilis að Hæðarbyggð 13,
Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans aðfaranótt
28. september.
Sérstakar þakkir til Karitas hjúkrunarþjónustu.
Útförin verður auglýst síðar.
Pétur Jónsson
Jón Pétursson Vala Steinunn Guðmundsd.
Sigurður Pétursson
Pétur Ingi Pétursson Marijana Stanarevic
og barnabörn