Morgunblaðið - 30.09.2017, Side 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
✝ Freyja Ey-steinsdóttir
fæddist á Húsavík
18. ágúst 1958. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Norður-
lands á Húsavík 22.
september 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Álfheiður
Eðvaldsdóttir, f. 4.
nóvember 1918, d.
7. október 1997, og
Eysteinn Gunnarsson, f. 15.
október 1921, d. 30. apríl 1995.
Bræður Freyju eru Kristján
Gunnar Eysteinsson, f. 25. febr-
úar 1945, Hreinn Jónsson, f. 16.
desember 1946, og Sigfús Eð-
vald Eysteinsson, f. 23. sept-
ember 1962.
Eiginmaður Freyju er Ing-
ólfur Hilmar Árnason, f. 4. sept-
ember 1956. Þau eiga þrjú börn:
a) Helena Eydís Ingólfsdóttir, f.
15. júlí 1976. Sambýlismaður
hennar er Hallbjörn Eðvarð
Þórsson, f. 15. júní
1970. Barn þeirra
er Arna Júlía, f. 10.
apríl 2013. Börn
Hallbjörns af fyrra
sambandi eru: Ey-
dís Agla, f. 28. mars
2002, d. 12. janúar
2015, og Hera Kar-
ín, f. 3. október
2003. b) Sigmar
Ingi Ingólfsson, f.
3. september 1981,
eiginkona hans er Kiddý Hörn
Ásgeirsdóttir, f. 18. desember
1985. Börn þeirra eru Fannar
Ingi, f. 5. febrúar 2006, Karen
Linda, f. 14. ágúst 2009, og Hall-
grímur Freyr, f. 28. desember
2015. c) Arnar Vilberg, f. 1. apr-
íl 1987. Sambýliskona hans er
Karen Erludóttir, f. 2. ágúst
1993.
Freyja verður jarðsungin frá
Húsavíkurkirkju í dag, 30. sept-
ember 2017, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Allt hefur sinn tíma, að lifa
hefur sinn tíma og að deyja hefur
sinn tíma. Freyja tengdamóðir
mín fékk allt of stuttan tíma.
Ég kynntist Freyju fyrir tæp-
um sjö árum þegar ég kom inn í
fjölskyldu hennar og Inga. Þau
hjónin tóku mér og dætrum mín-
um afskaplega vel og strax við
fyrstu kynni höfðu stelpurnar
mínar eignast ömmu Freyju og
afa Inga.
Freyja var ekki aðeins tengda-
móðir mín heldur tókst fljótt með
okkur góður vinskapur og sann-
arlega gerði hún flutning minn til
Húsavíkur miklu auðveldari með
því að láta mig finna hversu vel-
kominn ég væri. Glaðværð
Freyju fær mig til að hugsa til
baka og ekki minnist ég annars
en að hún hafi alltaf verið með
bros á vör, þegar hún tók sinn
síðasta andardrátt fór hógvært
bros um andlit hennar.
Freyja var stolt af uppruna
sínum og ósjaldan rifjaði hún upp
sögur af Flateyjardal og eyjunni
hennar á Skjálfanda, sögur af
harðduglegu fólki, og sannarlega
var hún sjálf vitnisburður um
dugnaðarfork sem lét til sín taka
á hverjum þeim vettvangi sem
hún léði krafta sína. Haustið 2012
þegar sauðfé fennti í kaf og
björgunarsveitarmenn af öllu
landinu komu norður til hjálpar,
þá var Freyja eins og drottning í
ríki sínu þegar hún dag eftir dag
ásamt öðrum góðum eldaði ofan í
stóran hóp af sársvöngum mönn-
um sem komnir voru til aðstoðar,
og þakklátir voru þeir.
Seinna þetta sama haust veitti
Freyja mér gríðarlegan stuðning
þegar ég greindist með krabba-
mein. Hún og Ingi óku ófáa kíló-
metrana, jafnvel daglega, til að
vera til staðar fyrir mig í veik-
indum mínum. Þegar Eydís Agla
dóttir mín dó voru Freyja og Ingi
ómetanlegir bakhjarlar fyrir
okkur í sorginni. Það fæ ég aldrei
að fullu þakkað.
Þrátt fyrir að ég minnist
Freyju sem hins sterka bakhjarls
sem hún var, þá er hlýja hennar
og glaðværð minningin sem ég
geymi sterkast um hana. Húm-
orinn, stundum fast skotið (en
heiðarlega), tengdi okkur sterk-
um böndum og oft var hlegið.
Freyja eignaðist þrjú börn og
sex ömmubörn sem hún var svo
stolt af og þau öll hænd að henni
enda gaf hún sér alltaf tíma fyrir
fólkið sitt, allir fengu tíma hjá
ömmu Freyju.
Mig langar að lokum að þakka
Freyju fyrir samfylgdina, stuðn-
inginn og vinskapinn sem aldrei
bar skugga á, við hittumst seinna
fyrir hinum megin og fáum okkur
vel kæsta skötu.
Blessuð sé minning Freyju
Eysteinsdóttur.
Hallbjörn Eðvarð Þórsson.
Fósturlandsins Freyja,
fagra vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
(Matt. Joch.)
Það er engin leið að lýsa því
hvernig mér líður. Hjarta mitt
hamast við að vera sorgmætt en
ég finn að mestu bara þakklæti í
staðinn. Ég veit að þú ert ánægð
að heyra það elsku Freyja mín
enda vaktir þú yfir mér með
hlýju og ást þar til þú sjálf þurftir
að berjast við öfl sem því miður
var ekki ráðið við.
Ég er svo þakklát fyrir þig! Þú
ert engri lík. Þú ert í mínum huga
fósturlandsins Freyja, nafngiftin
fullkomin fyrir þá persónu sem
þú hefur að geyma. Alltaf að at-
huga með mig, hvort krakkana
vantaði eitthvað og svo full af
hlýju og væntumþykju til okkar.
Þú veist að þessar sömu tilfinn-
ingar eru endurgoldnar til þín.
Þú veist að ég mun halda áfram
að tala við þig þó að þú sért kom-
in í aðra vídd núna. Ég mun
áfram elska þig eins og þú elskar
mig. Þú passar mig, litla Hildu
tetrið og knúsaðu fólkið okkar frá
mér.
Elsku Freyja, þó að þú sért
farin þá verður þú aldrei farin.
Þú hefur fyllt hjörtun okkar með
kærleika þínum um ókomna tíð
og fyrir það er ég þakklát. Takk
fyrir að vera besta föðursystir
mín. Takk fyrir allt! Þín
Hilda.
„Ég segi nú allt gott,“ sagði
Freyja í síðasta skipti sem við
hittumst. Hún sagði það reyndar
alltaf. Gaf alveg til kynna að hún
vildi hvorki eyða tímanum í vol
né víl. Við rifjuðum upp skemmti-
lega ferð þar sem gengið var á
Herðubreið með Björgunarsveit-
inni Garðari. Hún stóð vaktina í
„grunnbúðum“ eins og hún
nefndi tjaldið sem reist var við
rætur fjallsins. Þegar göngu-
menn komu til baka biðu þeirra
að sjálfsögðu krásir á borðum.
Freyja var um nokkurra ára
skeið í Slysavarnadeild kvenna á
Húsavík og var þar ötull liðsmað-
ur. Hún brást alltaf skjótt við
þegar leysa þurfti einhver verk-
efni. Ég á sérlega góðar minn-
ingar frá súpugerð og sölu á
Mærudögum, þar stóðum við
vaktina langt fram á nótt.
Freyja gekk til liðs við Björg-
unarsveitina Garðar. Hún var
alltaf til taks að elda ofan í liðs-
menn sveitarinnar, hvort heldur
sem var í útköllum eða fyrir
skemmtanir. Þegar útkall var ut-
an opnunartíma verslana var tínt
til það sem hendi var næst og
soðin saman einhver naglasúpa.
Minningar um þetta bardús í
kringum björgunarsveitina eru
dýrmætar og í því naut Freyja
sín mjög vel, hrókur alls fagn-
aðar og gat veitt styrk og hlýju ef
á þurfti að halda. Freyja lifði með
reisn og hennar verður sárt
saknað. Vertu sæl, kæra vinkona,
og takk fyrir allar góðu minning-
arnar sem þú skilur eftir.
Ingólfur, Helena, Sigmar,
Arnar og fjölskyldur, við sendum
ykkur okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Fanney og Guðmundur.
Þegar fréttin barst um að
Freyja væri fallin frá eftir snarpa
baráttu við illvígan sjúkdóm fór
hugurinn að reika um liðna tíð.
Efst er í huga þakklæti fyrir að
hafa fengið að kynnast Freyju í
leik og í starfi.
Freyja reyndist Björgunar-
sveitinni Garðari afskaplega vel.
Leiðir okkar lágu saman fyrst í
gegnum samstarf á milli Slysa-
varnadeildar kvenna og Björgun-
arsveitarinnar Garðars en að öll-
um ólöstuðum þá tengdi Freyja
þessi tvö félög saman tryggðar-
böndum svo eftir því var tekið á
landsvísu. Freyja gekk svo skref-
inu lengra og gerðist meðlimur í
Garðari og það skipti ekki máli
hvort útkallið var stórt eða
smátt, alltaf mætti Freyja og
hellti upp á kaffi, smurði brauð,
eldaði súpu eða snaraði fram
stórsteikum því það var henni
kappsmál að enginn væri svang-
ur í útkalli eða í frágangi eftir
það.
Freyja var kjarnakona og lá
hún aldrei á skoðunum sínum og
var það oft gaman að vera henni
ekki sammála því þá færðist oft
fjör í rökræðurnar og rómurinn
hækkaði og svo þegar hún sá í
gegnum þá stríðni var hlegið hátt
og lengi.
Freyja fylgdist vel með öllu
sem gekk á hjá björgunarsveit-
inni og hafði hún einstakt lag á
því að þegar yfir okkur gekk ein-
hver þreyta á starfinu þá barði
hún okkur saman svo við urðum
sterkari á eftir þegar hún hafði
lokið máli sínu, slíkur var eld-
móður hennar. Í björgunarsveit-
ina er höggvið skarð, skarð sem
ekki verður fyllt.
Björgunarsveitin Garðar
sendir aðstandendum sínar
dýpstu samúðarkveðjur á þess-
um erfiðu tímum. Minning
Freyju mun lifa í hjörtum okkar
um ókomna tíð.
Fyrir hönd Björgunarsveitar-
innar Garðars,
Eysteinn Heiðar
Kristjánsson.
Freyja
Eysteinsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku besta amma.
Takk fyrir að vera alltaf
svona góð við mig.
Þú hugsaðir alltaf vel um
okkur af því að við erum
fjölskylda og það er það
sem maður gerir.
Þín ömmustelpa
Arna Júlía.
Elsku amma, þú varst
besta amma í heimi.
Þú varst skemmtileg og
það var mjög gaman að
vera hjá þér.
Það var svo gaman þeg-
ar við fórum saman til Dan-
merkur.
Þegar ég kom til Húsa-
víkur kom ég alltaf til þín
og það var mjög gott að sjá
þig. Þú varst mjög glöð
þegar ég kom til ykkar.
Það var gaman að vera
hjá þér um jól og nýár og
þegar ég átti afmæli.
Eftir að Eydís systir dó
hugsa ég oft um hana og ég
á eftir að hugsa oft um þig
líka.
Ég elska þig svo mikið.
Með bestu kveðju
Hera.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum.
Minningargreinar
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti
undirbúnings og framkvæmd
útfarar ásamt vinnu við dánar-
bússkiptin. Við þjónum með
virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Sigrún Óskarsdóttir,
guðfræðingur
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vináttu og hlýju við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÁSTU GUÐMUNDU ÁSGEIRSDÓTTUR,
Skarðsbraut 19,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Akraness fyrir
einstaka umhyggju og alúð.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hlini Eyjólfsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát ástkærrar
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞÓRLAUGAR GUÐMUNDSDÓTTUR.
Baldvin G. Heimisson
Guðmundur Baldvinsson Guðbjörg Ósk Ragnarsdóttir
Hrannar Baldvinsson Thelma Ólafsdóttir
Baldvin Þór Baldvinsson Valgerður Ósk Steinbergsd.
Arnar Baldvinsson Brynja Björgvinsdóttir
Sif Guðmundsdóttir Ægir Blöndal
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
TÓMAS EINARSSON,
Fögrubrekku 24,
Kópavogi,
lést á blóðlækningadeild Landspítalans
föstudaginn 15. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug.
Selma Tómasdóttir Jón Magnússon
Sigurgeir Tómasson Bára Hjaltadóttir
Guðrún Tómasdóttir Páll Ævar Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
UNNAR GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Tóarseli, Breiðdal.
Ragnhildur Pétursdóttir
Oddur Guðjón Pétursson Ingunn Ása Bjarnadóttir
og ömmubörnin
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og fallegar kveðjur við fráfall
ástkærs eiginmanns míns,
JÓNS HELGA EINARSSONAR,
Borgarbraut 65a,
Borgarnesi,
Guðbjörg Andrésdóttir
Hjartans þakkir til allra þeirra sem heiðruðu
minningu föður okkar, bróður, tengda-
föður og afa,
JÓNS HILMARS RUNÓLFSSONAR
endurskoðanda,
Drápuhlíð 20,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við þeim sem af alúð og elskusemi
önnuðust hann í veikindum hans, starfsmenn göngudeildar
blóð- og krabbameinslækninga Landspítala háskólasjúkrahúss
undir handleiðslu Friðbjarnar Sigurðssonar, öldrunardeildar
Markar, aðhlynningar Karitasar heimahjúkrunar og
öldrunardeildar Landspítala háskólasjúkrahúss.
Guðný Jónsdóttir
Hilmar Jónsson
Runólfur Þór Jónsson
Brynja Dís Runólfsdóttir
tengdabörn og barnabörn
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800