Morgunblaðið - 30.09.2017, Side 46

Morgunblaðið - 30.09.2017, Side 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017 Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Málþingið Barnabókin er svarið verður haldið miðvikudaginn 4. október kl. 14-17 í Ráðhúsi Reykja- víkur. Samtök íslenskra unglinga- og barnabókahöfunda (SÍUNG), Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Menntamálastofnun standa fyrir málþinginu sem fjallar um mikilvægi barnabóka í lestrar- leikni barna. Hver er framtíðarmyndin? Rithöfundurinn Gunnar Helgason er fundarstjóri málþingsins og segir hann aðspurður að barnabókin sé svarið við öllu. „Það er bara þannig. Lilja Al- freðsdóttir þingkona hefur fjallað um vanda bóksölu og bókaútgáfu á Íslandi og leggur til að afnema virð- isaukaskattinn á bókum. Sem er frá- bært, en það er bara eitt púsl í risa- stóru púsli sem snýst um hvaða framtíðarmynd við viljum hafa af ís- lenskri tungu, bókaútgáfu og náms- árangri barnanna okkar. Það er allt- af hlaupið upp til handa og fóta þegar niðurstöður PISA-könnunar- innar liggja fyrir og talað um að börnin lesi ekki nógu mikið. Við settumst því niður nokkrir barna- bókahöfundar og ræddum af hverju- aldrei er talað um barnabókina í þessu samhengi. Það dettur engum í hug að það þurfi að ræða hvað börn- in eru að lesa,“ segir Gunnar. „Við ákváðum að endurverkja SÍ- UNG sem eru samtök innan Rithöf- undasambandsins sem höfðu legið niðri um tíma. Slagkrafturinn var mikill og við ákváðum að ræða þetta opinskátt, og taka viðtalið við Menntamálastofnun og með henni.“ Grundvöllur barnabókútgáfu Gunnar bendir á að mun stærri þjóðir en Ísland, eins og Noregur og Frakkland, skilgreini sín tungumál í útrýmingarhættu og séu með áætl- anir því til varnar. „Norðmenn hafa ákveðið að þær barnabækur sem þar koma út fara inn á hvert einasta skólabókasafn þar í landi og þar með skapast grundvöllur fyrir barnabókaútgáfu. Við þurfum líka að hlúa að barna- bókinni og koma henni til lesenda. Hér á landi hafa barnabókahöf- undar lengi verið allra höfunda ólík- legastir til að fá rithöfundalaun, en undanfarið hefur orðið bragarbót þar á. Hvað ef það yrði bara ákveðið að bæta í rithöfundasjóðinn og eyrnamerkja viðbótina barnabóka- höfundum? Barnabækur lifa með lesendanum alla ævi. Ábyrgð okkar barna- bókarithöfunda er miklu meiri en þeirra sem skrifa fyrir fullorðna. Við verðum að vanda okkur og skrifa þannig bækur að þær meiði ekki. Líka á ákveðnu máli sem börn skilja, mál sem er ekki of flókið en samt gott mál. Þetta er flókið. Við barnabókahöfundar viljum að við vinnum öll saman að þessu. Ég ætla að nota tækifærið til að bjóða Lilju, og þeim sem mæltu með frum- varpinu hennar að koma og hlusta, og taka þátt í umræðunum. Ef þeim er virkilega umhugað um bókaút- gáfu, íslenskuna og námsárangur barnanna okkar,“ segir Gunnar að lokum. „Þetta verða opnar og æs- ingalausar samræður þrátt fyrir að vera mikið hitamál.“ Morgunblaðið/Golli Barnabókarithöfundur Gunnar Helgason les upp úr bók sinni Mömmu klikk. Hvað lesa börn?  Málþingið Barnabókin er svarið  Íslensk tunga, bókaútgáfa og námsárangur  Mikið hitamál Sýningin Nokkur þúsund augnablik eftir Ingu Sólveigu Friðjónsdóttur verður opnuð í Ramskram í dag klukkan 17. Þar verða verk hennar frá Kúbu og öngstrætum í Aust- urlöndum sett fram á kaótískan hátt eins og minningar. Frá því að Inga Sólveig var barn hefur hana dreymt um að ferðast til fjarlægra landa og það gefur henni mikið að upplifa aðra menningu, fólk, byggingar og andrúmsloft. Hún útskrifaðist frá San Francisco Art Institute 1987 og heldur í heiðri aðferðum gömlu meistaranna og vinnur mest með svarthvítt, handmálar stundum með olíu og bæt- ir inn teikningum. Nokkur þúsund augnablik í Ramskram Inga Sólveig Friðjónsdóttir Sýningin Tittlingaskítur eftir Guð- mund Thoroddsen verður opnuð í Hverfisgalleríi í dag, laugardag klukkan 16, en þetta er fyrsta einka- sýning Guðmundar í galleríinu. Að sögn Guðmundar sýna klippi- myndirnar „karlfífl að gera eitthvað sem þeir halda að sé merkilegt en er bara helvítis vitleysa og runk,“ og þótt í verkunum sé gamansemi er ómögulegt annað en að sjá í þeim vissa samfélagsgagnrýni. Tittlingaskítur í Hverfisgalleríi í dag Guðmundur Thoroddsen The Square Christian er virtur sýning- arstjóri í nútímalistasafni í Svíþjóð. The Square er inn- setning sem er næst á sýn- ingardagskrá safnsins Morgunblaðið bbbbn Metacritic 74/100 IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 17.15, 22.30 Ég man þig 16 Ungt fólk sem er að gera upp hús á Hesteyri um miðj- an vetur fer að gruna að þau séu ekki einu gestirnir í þessu eyðiþorpi. Morgunblaðiðbbbbn IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 22.00 Stella í orlofi Bíó Paradís 18.00 Good Time 16 Metacritic 80/100 IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 18.00, 20.00 The Big Sick Metacritic 86/100 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 22.30 Vetrarbræður Bíó Paradís 18.00 Með allt á hreinu Sing Along Bíó Paradís 20.00 It 16 Sjö vinir í bænum Derry í Bandaríkjunum komast á snoðir um að í holræsum bæjarins er á kreiki óvættur. Metacritic 70/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.10, 20.00, 22.50 Sambíóin Egilshöll 17.15, 20.00, 22.45 Sambíóin Kringlunni 20.00, 23.00 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.20 Sambíóin Keflavík 22.10 Flatliners 16 Eftir að hafa valdið bílslysi sem varð systur hennar að bana fær Courtney fjóra aðra læknanema með sér í lið til þess að gera áhættu- samar tilraunir á dauðanum. IMDb 5,7/10 Laugarásbíó 20.00, 22.20 Smárabíó 20.00, 22.20 Borgarbíó Akureyri 17.50, 22.50 Mother! 16 Metacritic 74/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.35 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 22.50 The Hitman’s Bodyguard 16 Besti lífvörður í heimi fær nýjan viðskiptavin, leigu- morðingja sem þarf að bera vitni hjá alþjóða glæpadóm- stólnum. Metacritic 47/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Álfabakka 22.10 American Assassin 16 Fjölskylduharmleikur leiðir Mitch Rapp í raðir þeirra bestu sem berjast gegn hryðjuverkaógnum. Metacritic 45/100 IMDb 6,7/10 Smárabíó 19.50 Everything, Everything Madeline hefur ekki farið út fyrir hússins dyr í sautján ár. Metacritic 52/100 IMDb 6,4/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 American Made 12 Frásögn af ævi Barry Seal, fyrrverandi flugstjóra sem gerist smyglari fyrir glæpa- klíkur Suður-Ameríku, Metacritic 63/100 IMDb 7,3/10 Smárabíó 22.20 Dunkirk 12 Myndin fjallar um Operation Dynamo árið 1940. þegar 340 þúsund hermenn bandamanna voru frelsaðir úr sjálfheldu. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 94/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Kringlunni 17.40 Emojimyndin Gene býr ásamt aragrúa broskarla á milli appanna í símanum. Metacritic 12/100 IMDb 2,1/10 Sambíóin Keflavík 15.50 Smárabíó 13.10, 15.25, 17.45 The Lego Ninjago Movie Sex ungar ninjur fá það verk- efni að verja eyjuna sína, Ninjago. Á kvöldin eru þau flottir stríðsmenn en á dag- inn eru þau hins vegar venju- legir unglingar í miðskóla. Metacritic 55/100 IMDb 6,5/10 Sambíóin Álfabakka 11.10, 12.20, 13.00, 14.40, 15.20, 17.40 Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.15, 17.30 Sambíóin Kringlunni 13.00, 14.00, 15.20, 16.20, 17.40 Sambíóin Akureyri 13.10, 14.00, 15.30, 16.20 Sambíóin Keflavík 13.00, 15.20, 17.40 Smárabíó 12.50, 15.15, 17.40 Skrímslafjölskyldan IMDb 5,2/10 Sambíóin Álfabakka 11.30, 13.30, 15.00, 15.40, 17.50 Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.00 Sambíóin Kringlunni 13.00 Sambíóin Keflavík 13.40 Sonur Stórfótar IMDb 6,1/10 Laugarásbíó 14.00, 16.00, 18.00 Smárabíó 13.10, 15.30 Storkurinn Rikki IMDb 6,0/10 Sambíóin Álfabakka 13.40 Bílar 3 Sambíóin Álfabakka 12.40 Aulinn ég 3 Smárabíó 12.45, 14.50 Þegar höfuðstöðvar Kingsman eru lagðar í rúst komast Eggsy og Merlin að því að til eru leynileg njósnasamtök í sem stofnuð voru á sama degi og Kingsman. Metacritic 50/100 IMDb 7,6/10 Laugarásbíó 22.00 Sambíóin Álfabakka 12.00, 15.00, 17.00, 20.00, 22.10, 22.50 Sambíóin Egilshöll 15.00, 17.00, 19.50, 22.40 Sambíóin Keflavík 22.10 Smárabíó 17.00, 19.10, 19.45, 22.10, 22.45 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.10 Kingsman: The Golden Circle 16 Undir trénu 12 Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í garði foreldranna skyggir á garð nágrannanna, sem eru orðnir þreyttir á að fá ekki sól á pallinn. Morgunblaðið bbbbn IMDb 6,9/10 Laugarásbíó 16.00, 18.00, 20.00 Smárabíó 14.00, 16.40, 17.35, 20.00, 22.10 Borgarbíó Akureyri 17.50, 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio Home Again Líf einstæðrar móður í Los Ang- eles tekur óvænta stefnu þegar hún leyfir þremur ungum mönnum að flytja inn til sín. Metacritic 41/100 IMDb 5,7/10 Sambíóin Álfabakka 15.40, 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Egilshöll 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 18.40, 20.00, 20.50, 22.20 Sambíóin Akureyri 18.00, 20.10, 22.20 Sambíóin Keflavík 17.50, 20.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.