Morgunblaðið - 30.09.2017, Qupperneq 47
Heiða Eiríksdóttir
hefur verið giska iðin
við kolann undanfarin
misseri og alls hafa
þrjár plötur litið
dagsins ljós, í ýmsum
formum, undir nafninu
Heidatrubador.
Tökum aðeins stöðuna
á þessu sýsli hennar.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Heiða hefur komið að marg-víslegum tónlistarverk-efnum á löngum ferli, eða
eins og segir í fréttatilkynningu
vegna nýjustu plötunnar, Artist Cel-
ery: „Heidatrubador er tónlistar-
verkefni Heiðu Eiríksdóttur sem
einnig er í hljómsveitinni Hellvar og
Dys, var einu sinni í Heiðu og Heið-
ingjunum, var fyrir langa-löngu í
Unun og þar á undan í fullt af bíl-
skúrssveitum með skemmtilegum
nöfnum sem enginn man eftir en
voru samt prýðileg bönd.“
Heidatrubador er tiltölulega
nýlegt verkefni, nafnið gefur til
kynna að hér sinni hún söngva-
skáldageiranum en það er þó ekki
rétt nema að hluta til. Tónlistin und-
ir þessu heiti er orðin býsna mikil að
vöxtum, bæði heilar plötur og stök
lög, en fer ekki endilega í þær áttir
sem fólk á von á. „Mér fannst fyndið
að gera tónlist sem væri ekki hefð-
bundin þjóðlagatónlist og nota samt
nafn sem allir myndu halda að væri
svona trúbadora-fólk-eitthvað,“
segir Heiða. „Mig langar í raun og
veru aðeins að rugla í öllum. Ekki
það að fólk sé ekki búið að átta sig á
að ég er stundum soldið rugluð, en
ég er kannski bara alveg sátt við
það. Ég er svona að undirstrika
ruglið mitt; staðfesta það sem fólk
hefur grunað í mörg ár.“
Fyrsta útgáfa Heidatrubador
var kassettan Third-eye-slide-show
sem kom út hjá FALK-records árið
2016 í 50 eintökum (er einnig á
Bandcamp-svæði FALK). Þar er á
ferðinni tilraunatónlist að mestu,
drungalegt og naumhyggjulegt
„ambient“ og „industrial“ hljóð-
lykkjur. Heiða hefur þá og skotið út
lagi og lagi, hlaðið þeim upp á You-
tube eða Bandcamp-setrið sitt en
einnig gefið út í föstu formi, t.d.
kom út ansi lagleg sjötomma í tak-
mörkuðu upplagi í febrúar 2016,
Dásamlega ruglandi
Morgunblaðið/Ómar
Nærandi Heiða Eiríksdóttir skapar af miklum móð nú um stundir.
kallast hún Root og er tónlist á a-
hliðinni en myndverk á b-hliðinni,
undanfari trúbadúraplötunnar Fast
sem kom svo út í apríl á þessu ári.
Útgáfa Fast var á vínyl, geisladiski
og rafrænu formi (heidatruba-
dor.bandcamp.com). Á Fast er söng-
rödd og gítar í forgrunni, lág-
stemmd, melódísk og innileg
stemning ræður ríkjum. Heiða hef-
ur síðan dvalist í Berlín að undan-
förnu og samið af kappi og eru tvær
plötur tilbúnar. Sú fyrri var að
koma út og kallast Artist Celery,
kom fyrst út á Youtube en er og
hægt að nálgast á Bandcamp.
Hér stígur Heiða frá hljóðheimi
Fast og fer nær þeim sem er að
finna á Third-eye-slide-show. Sonic
Youth-legur gítar, hávaðaveggir og
bjögun. Tvö síðustu lögin eru glæsi-
leg útfærsla á þessu, hvar skældur
rafmagnsgítarinn spilar algjöra
burðarrullu.
Næsta plata kemur svo út á
næsta ári, plata sem Heiða lýsir sem
„kassagítarspoppi“. Það er því allt
að gerast hjá Heiðu nú um stundir
eins og sagt er. Þess má þá geta að
Artist Celery er ýtt úr vör með
myndbandi við lagið „Til vara“, sem
Elvar Geir Sævarsson skaut og
vann, en upptökur fóru fram í garði
í hinni grænu Berlín.
» Tvö síðustu lögineru glæsileg út-
færsla á þessu, hvar
skældur rafmagnsgítar-
inn spilar algjöra
burðarrullu.
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2017
Hið Íslenska Bókmenntafélag hefur
nú flutt höfuðstöðvar sínar í hús-
næði Hótels Sögu að Hagatorgi, en
þær voru áður í Skeifunni. Opnun
nýrra höfuðstöðva var fagnað á
fimmtudag.
Jón Sigurðsson, forseti félagsins,
segir flutningana mikið framfara-
skref fyrir félagið. „Þessi nýja stað-
setning er mjög heppileg vegna ná-
býlis við Háskólann og ýmsar
menningarstofnanir sem honum
tengjast. Nú hefur Bókmennta-
félagið aðstöðu í miðjum klasa
menningarstofnana á Melunum:
Þjóðarbókhlaðan, Þjóðminjasafnið,
Háskóli Íslands, Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur og senn Hús ís-
lenskra fræða sem mun rísa við hlið
Landsbókasafns. Hér finnst okkur
Bókmenntafélagið eiga heima.
Hér verðum við með dreifingu
útgáfu rita okkar, bæði bókaversl-
un og eins dreifingu á forlags-
bókum okkar til bóksala annars
staðar í bænum. Þetta sama gildir
um Fornritafélagið, þ.e.a.s.
Íslendingasögur, Eddu og fleira af
því tagi sem við önnumst dreifingu
á. Síðan höfum við í huga aukið
samstarf við þessar stofnanir sem
ég taldi upp áðan og munum áreið-
anlega efna til funda og ráðstefna í
þessu húsnæði okkar.“
Einnig nefnir Jón að Listasafn
Háskóla Íslands hafi verið svo vin-
samlegt að bjóða félagið velkomið á
svæðið með því að setja upp sýn-
ingu í nýjum húsakynnum þess á
verkum úr safneign Listasafnsins.
„Sýningin sem var sett upp í fyrra-
dag sýnir nokkur verk Guðmundu
Andrésdóttur og prýða þau sýning-
arrými sem er meðfram norður-
veggnum. Það er reyndar þannig
gert að það er hægt að sjá þær í
gegn um glerið, margar þessara
mynda, næstum allar. Fólk sem
gengur framhjá húsinu getur horft
á þær,“ útskýrir hann.
„Við erum mjög ánægð með að
vera komin á þennan stað og von-
umst til þess að það verði til þess að
efla félagið í sinni viðleitni sem er
náttúrulega fyrst og fremst að efla
íslenska tungu og gefa út bækur og
tímarit, ekki fyrst og fremst með
hagnaðarmarkmiði heldur vegna
þess menningar- og fræðagildis
sem þær hafa,“ segir Jón að lokum.
„Hér finnst okkur Bókmenntafélagið eiga heima“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heppileg staðsetning Opnun nýrra höfuðstöðva Bókmenntafélagsins að Hagatorgi var fagnað á fimmtudag.
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 10 SÝND KL. 2 SÝND KL. 2, 4, 6
SÝND KL. 4, 6, 8SÝND KL. 8, 10.20