Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Blaðsíða 27
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, mætti fínn í tauinu á fund forseta Íslands þann 16. september. Rauð hliðartaska sem Logi mætti með á fundinn vakti athygli en hana keypti hann á Spáni í sumar. „Þetta er dálítið skemmtileg taska. Hún er keypt í Barcelona en þar er fyrirtæki, Vaho, sem vinnur töskur úr gömlum auglýsingaplakötum,“ útskýrir Logi. „Í staðinn fyrir að henda þessu þykka plasti, þá vinna þeir töskur úr því og engar tvær töskur eru eins. Það er mjög gaman að koma inn í svona búð, þær eru á nokkrum stöðum í Barcelona svo maður getur valið sér sinn lit,“ útskýrir hann og segir sumar töskurnar vera jafnframt með áletrun. „Þetta finnst mér vera sköpun og hugvit í sinni tærustu mynd. Að taka eitthvað sem annars er spilliv- ara og búa til úr því vöru sem þú getur notað í nokkur ár.“ Logi segist jafnframt sannfærður um að hönnun og skapandi greinar séu mjög óplægður akur á Íslandi. „Við þurfum að sinna þessum greinum betur. Þess vegna hef ég gaman af hönnunarvörum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg LOGI EINARS HEFUR GAMAN AF HÖNNUNARVÖRUM Með tösku úr endurunnum auglýsingaskiltum á Bessastöðum Logi Einarsson á fundi með forseta Íslands. Taskan sést á borðinu. Vaho er spænskt fyrirtæki sem gerir töskur úr gömlum auglýsingaskiltum. Elisabeth Moss hlaut Emmy-verðlaun fyrir leik sinn í þáttaröðinni The Handmaid’s Tale síðastliðinn sunnudag. Moss er með frekar dömulegan stíl og klæðir sig á fallegan máta. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is 24.9. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 Lindex 4.699 kr. Netapeysur eru málið um þessar mundir. L’Oréal 1.192 kr. Color Riche Huile- naglalakk í litnum L’Atelier Choco 667. Kultur 33.995 kr. Falleg hlý peysa frá Munthe. Lindex 4.699 kr. PVC-pils í beinu sniði. Geysir 37.800 kr. Kápa í fallegu sniði frá tískuhúsinu Ganni. Bianco 18.990 kr. Upphá stígvél úr teygjuefni. Í þessari viku... Sigurborg Selma sigurborg@mbl.is Dökkur haustfatnaður sem hentar bæði fínt og hversdags. Mig langar í fallega hlýja peysu fyrir haustið og er að íhuga fallegu peysuna frá Munthe. Asos.com 860 kr. Gylltir eyrnalokkar frá Monki. Vero Moda 1.590 kr. Hvítir stuttermabolir eiga oft vel við. Bæði fínt og hversdags. Elisabeth Moss Vero Moda 27.990 kr. Svalur leðurjakki. Lindex 1.499 kr. Bleikur varalitur úr snyrtivörulínu Lindex. STELDU STÍLNUM Geysir 46.800 kr. Fölbleikir skór frá ATP Atelier. Hrím 7.990 kr. Einfaldir eyrnalokkar með steini frá Bing Bang NYC. Kultur 24.995 kr. Miðsítt og vítt pils frá By Malene Birger.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.