Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Blaðsíða 35
24.9. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 Danskur lakkrís með súkkulaði og lakkrískurli Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. – fá þig til að slaka á, sofa bet og vakna endurnærð/ur ur Í gegnum aldirnar hefur sítrónumelis (Lemon balm) jurtin, Melissa officinalis, verið vinsæl meðal grasalækna. Þetta vísindalega samsetta náttúrulyf er hannað til að stuðla að góðum nætursvefni og vakna endurnærð(ur) án þess að innihalda efni sem hafa sljóvgandi áhrif. Sítrónumelis (Lemon balm) taflan inniheldur náttúrulegu amínósýruna L-theanine, sem hjálpar til við slökun auk alhliða B vítamín, sem stuðlar að eðlilegri taugastarfsemi. Auk þess inniheldur taflan mikið magnmagnesíum, sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og dregur þar með úr óþægindum í fótum og han Melissa Dream-töflurnar „Hvílist betur með Melissa Dream“ Lísa Geirsdóttir” Valið besta bætiefni fyrir stressihjá National Nutrition í Kanada Geymdur og gleymdur orðaforði heitir rit eftir Sölva Sveinsson þar sem hann fjallar um á sjöunda hundrað orða, greinir uppruna þeirra og rekur upp- runalega merkingu og það hvernig sú merking hefur oft breyst í aldanna rás. Hverju orði fylgja dæmi og skýringar, greint er frá tíðni orðanna í fornritum og í ritmáli síðari alda og birtar tilvitn- anir sem sýna hvernig þau voru notuð. Geymdur og gleymdur orðaforði kemur út í ritröð Sölva Sveinssonar um íslenskt mál. Iðunn gefur út. Geymd og gleymd orð Ljósaseríubækur Bókabeitunnar eru sniðnar að þörfum nýrra lesenda og ætlaðar þeim sem eru að æfa sig í lestri, misþungar en með hæfilega stóru letri og rúmu línubili. Ný bók í röðinni er Pétur og Halla við hliðina – Fjöruferðin eftir Ingibjörgu Valsdóttur. Í bókinni segir frá Pétri sem vill helst vera kyrr en svo flytur Halla í húsið við hliðina og hún vill alltaf vera á fleygiferð. Þetta er fyrsta bók Ingibjargar en hún hefur starfað við ritstjórn og þýðingar. Auður Ýr Elísabetardóttir myndskreytti bókina. Ný Ljósaseríubók Verðlaunaskáldsaga Kims Leines, Spá- mennirnir í Botnleysufirði, vakti mikla athygli á sínum tíma og hlaut meðal annars Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs. Nú hefur Sæmundur gefið út skáldævisögu Leines, Kalak. Í bókinni segir frá ungum manni sem alinn er upp í samfélagi Votta Jehóva í norskri sveitabyggð, heldur síðan til Kaup- mannahafnar að búa með samkyn- hneigðum föður sínum, en hrökklast þaðan til Grænlands ásamt fjölskyldu sinni. Jón Hallur Stefánsson þýddi. Skáldævisaga Kalaks BÓKSALA 13.-19. SEPTEMBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Stúlkan sem gat ekki fyrirgefið David Lagercrantz 2 Með lífið að veðiYeonmi Park 3 Gagn og gamanHelgi Elíasson/Ísak Jónsson 4 NorninCamilla Läckberg 5 Bláköld lygiQuentin Bates 6 AfæturJussi Adler-Olsen 7 Verstu börn í heimiDavid Walliams 8 Pottur, panna og NannaNanna Rögnvaldardóttir 9 Independent PeopleHalldór Laxness 10 Kóngulær í sýningar- glugganum Kristín Ómarsdóttir 1 Gagn og gamanHelgi Elíasson/Ísak Jónsson 2 Verstu börn í heimiDavid Walliams 3 Goðheimar 8 - BrísingameniðPeder Madsen 4 Engillinn í eyjunniLevi Henriksen 5 Óvættaför 28 - KoldóAdam Blade 6 Hulduheimar 1 - ÁlagahöllinRosie Banks 7 Allir geispaAnita Bijsterbosch 8 Litli prinsinnAntoine de Saint-Exupéry 9 Afi sterki - Hættuför að Hlíðarvatni Jenný Kolsöe 10 Hulduheimar 2 - Dalur einhyrninganna Rosie Banks Allar bækur Barnabækur Ég var að enda við að lesa Suð- ursveitarbækurnar hans Þórbergs, Steinarnir tala, Rökkuróperan og Um lönd og lýði. Ég tek þær fram reglulega og þær veita mér alltaf jafn mika ánægju. Ég er búin að lesa þær nokkrum sinnum, frásagnargleðin er svo mikil og stíl- snilldin; það lifnar allt við og skín í gegn hve honum þótti vænt um sveitina sína og fólkið sitt og þótt hann sé að segja frá þessum gamla tíma tengir maður alltaf við hann. Svo tók ég fram glæpasöguna Týndu stúlkurnar eftir Ang- elu Marsons og hún lofar bara góðu. Þetta er þriðja bókin sem er þýdd eftir hana og þriðja bók hennar sem ég les. Ingunn Snædal þýðir bækurnar og það hefur líka mikið að segja. Af því ég er kenn- ari er ég að lesa Nonna og Manna fyrir nemendur mína og þeir lifa sig inn í frásögnina þótt þetta séu gamlar bækur að segja frá gömlum tíma, það truflar þau ekkert. Ég vil bara brýna það enn og aftur hversu mik- ilvægt það er að lesa fyrir börn. ÉG ER AÐ LESA Anna Margrét Birgisdóttir Anna Margrét Birgisdóttir er kennari og bókasafnsfræðingur. Konunglega brezka vísinda- félagið, The Roy- al Society, kynnti á dögunum árleg bókaverðlaun sín. Vísindabók ársins 2017 er Testosterone Rex eftir bresk-kanadíska sál- fræðinginn Cordelia Fine, en eins og nafnið ber með sér fjallar bókin um karlkynshorm- ónið testósterón. Í bókinni rekur Fine viðteknar ranghugmyndir um testósterón og það hvaða áhrif það hafi á hegðun og framkomu og bendir á það hvernig það sem menn hafa talið víst varðandi muninn á heilastarfsemi karla og kvenna í gegnum aldirnar hafi alltaf snú- ist um það að viðhalda sam- félagslegri stöðu kynjanna. Þetta er fjórða bókin sem Fine skrifar um efni tengt mannsheilanum og starfsemi hans, en tvær fyrri bækur henn- ar, Delusions of Gender og A Mind of Its Own, voru til- nefndar til fjölda verðlauna á sínum tíma. BÓKAVERÐLAUN Testósterónvillur Cordelia Fine

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.