Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Blaðsíða 29
24.9. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Í heild er Edinborg með mjög
mörg góð spahótel og þangað er
blessunarlega ekki nema tveggja
og hálfs tíma flug. Sheraton Grand
Hotel & Spa er á merkilega góðu
verði miðað við gæði en hótelið er
í öðru sæti yfir bestu hótel Ed-
inborgar á Tripadvisor.
Heilsulind hótelsins þykir ein sú
besta í borginni, með 19 metra
innisundlaug og sjö meðferð-
arsvæðum fyrir ýmiss konar nudd
og gufur en á þaki hótelsins er
einnig mjög skemmtileg slökunar-
aðstaða með laug. Þeir sem vilja
æfa sig meira en að taka sund-
sprett geta farið í tækjasal hótels-
ins sem er vel útbúinn eða skropp-
ið á golfvöllinn sem er í göngufæri
við hótelið.
Hótelið er á Festival Squeare á
Lothian Road og útsýnið úr her-
bergjunum er yfir vesturhlið Ed-
inborgarkastala og stutt er að
ganga í gamla bæinn. Þess má geta
að bæði veitingastaður og heilsu-
lind hótelsins hafa hlotið ýmiss
konar ferðatengd verðlaun en
engu að síður er hægt að fá nótt á
hótelinu á um 20.000 krónur.
Umhverfi
hótelsins er
mjög smekk-
legt og veit-
ingastaðirnir
rómaðir.
Gott verð í Edinborg
Í næsta nágrenni við hið einstaka
einkalistasafn norsku Astrup-
Fearnley-fjölskyldunnar, í nátt-
úrufegurð Óslóarfjarðar, er hót-
elið The Thief.
Hótelið er í eigu hönnunarfyr-
irtækisins Thief Furnishing en all-
ar innréttingar og húsgögn eru
hönnun alþjóðlegra og norskra
hönnunarstjarna svo sem Anton-
ios Citterios, Brunos Rainaldis,
Toms Dixons og Anne Haavind. Í
hverju herbergi eru sérvalin og
mjög merkileg listaverk, engar
eftirprentanir.
Þá eru öll herbergin með sér-
stöku handbragði og stíl sem að-
greinir þau frá næsta herbergi,
sem gerir yfirbragðið og and-
rúmsloftið mjög persónulegt. Öll
herbergi hafa einkasvalir, king
size-rúm, glugga sem ná frá gólfi
til lofts og stórt baðker með
„regnskógasturtu“. Meira að
segja baðslopparnir og værð-
arvoðirnar eru hönnun, gerð af
Maggie Wonka.
Heilsulindin er punkturinn yfir i-
ið en hægt er að kaupa sérstakt
kvöld þar með mat, nuddi, ávöxt-
um, tei, drykk á barnum og öllu
tilheyrandi.
Flugferð til Ósló tekur ekki
nema um tvær og hálfa klukku-
stund og ef listasafn og hönn-
unargripir hótelsins eru ekki nóg
fyrir augað er stutt að skreppa yfir
í Astrup-Fearnley-listasafnið en
safnið einbeitir sér að alþjóðlegri
myndlist, sérstaklega samtímalist.
Listadvöl í Ósló Meira að segja gesta-móttakan á Hotel
Thief í Ósló er eins
og úr ævintýri.
Portavadie-hótelið í skoska hér-
aðinu Argyll and Bute er ekki
nema í tveggja klukkustunda akst-
ursfjarlægð frá Glasgow og með
flugferð er það ekki nema um 3
klukkutíma fjarlægð frá Keflavík,
vesenið því ekki mikið meira en
að keyra vestur á Snæfellsnes.
Hótelið hefur fengið fjölmargar
viðurkenningar, sérstaklega fyrir
margrómaða heilsulindina, en það
er á vesturströnd Skotlands og
sameinar yndislegt sjávarútsýni
sem sést meira að segja úr gufu-
baðinu, fallega náttúru, góðan
mat og notalegt umhverfi. Þrátt
fyrir ekki mikla fjarlægð frá þétt-
býli er það vel falið bak við hæðir.
Hótelið er kjörið fyrir skamm-
degishelgarferð við kertaljós og
veitingastaðurinn býður upp afar
gott úrval af alls kyns sjávarfangi.
Innisundlaug er til staðar en það
er líka hægt að fara allan ársins
hring í útisundlaug hótelsins sem
er stærsta upphitaða sundlaug
Skotlands. Af veitingastaðnum er
horft beint á bryggjuna þar sem
bátar liggja við landfestar.
Hótelið býður upp á alls kyns
ágætis tilboð, fjölskyldupakka og
einnig sérstök hátíðartilboð í des-
embermánuði. Það er mjög gott
kynningarmyndband um hótelið á
heimasíðu þess, portavadie.com
sem sýnir allt umhverfið.
Í felum á skosku
strandhóteli
Dublin er einn af þeim stöðum sem
auðvelt er að fljúga til og enginn
þjáist af flugþreytu á aðeins tveggja
tíma og 40 mínútna ferðalagi. Í
borginni eru fjölmörg fín hótel en
fyrir dvöl lúxusferðalanga sem ætla
sér jafnvel ekki að fara neitt út fyrir
hótelsins dyr stendur The Marker-
hótelið öðrum framar, með einni
glæsilegustu heilsulind borg-
arinnar.
Hótelið er með þeim nýrri í
borginni og stendur á Grand
Canal-torginu í menningarhjarta
borgarinnar, þar sem stutt er í
aðalleikhús Dublinarborgar, en
arkitektúr byggingarinnar dregur
dám af írsku landslagi.
Þrátt fyrir að hótelið sé stórt er
það friðsælt og hægt að fá herbergi
sem eru sérstaklega hljóðein-
angruð ef fólk vill upplifa algera
þögn hvíldarhelgina sína. Veitinga-
staðir hótelsins leggja mikið upp úr
hollum en girnilegum mat en
heilsusamlegur lífsstíll er alltum-
lykjandi og gestir geta fengið jóga-
dýnur og nýtt sér jógatíma á þak-
verönd hótelsins á morgnana.
Morgunmaturinn í kjölfarið er
samansettur af hollustu; bústi,
ávöxtum og öllu því sem jógi þarf
eftir smáæfingar.
Á þakverönd hótelsins er einnig
mjög skemmtilegur veitingastaður
og bar og hægt að velja úr þremur
skemmtilegum svæðum þar til að
sitja á með drykk og snarl.
Afslappaður
jógi í Dublin
Morgunjógað
á hótelinu og
morgunverð-
urinn eftir á er
guðs gjöf.