Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Blaðsíða 36
Hljómsveitin Sycamore Treesendir frá sér sína fyrstuplötu, Shelter, um helgina
og verða tónleikarnir á útgáfudag-
inn, sunnudaginn 24. september, í
Kaldalóni í Hörpu. Hljómsveitina
skipa Ágústa Eva Erlendsdóttir og
Gunni Hilmarsson. Þau eru bæði
þekkt í öðrum listamanna-
hlutverkum en Ágústa Eva er jafn-
framt leikkona og Gunni er þekktur
fatahönnuður (GK, Andersen &
Lauth, Freebird). Það er ekki lengra
síðan en í júlí í fyrra að hann sendi
henni skilaboð um samstarf, sem
hefur gengið vel og nú rúmlega ári
síðar er fyrsta platan tilbúin. Nokk-
ur lög hafa þegar komið út og hafa
þessir hugljúfu tónar átt upp á pall-
borðið hjá íslenskum útvarps-
stöðvum.
„Hann er náttúrlega færibanda-
maður. Það eru ekki margir lista-
menn sem eru með svona gott verk-
vit og skipulag. Við getum verið með
svolítið spes heila og verið í ákveðnu
tímaleysi en þessi er búinn að fá svo
góða þjálfun í tískubransanum,“ seg-
ir Ágústa Eva um samstarfsmann
sinn og hann viðurkennir það.
Frelsi í skipulaginu
„Í mínum heimi, ef þú missir af
skilafrestinum, ertu dauður. Þú ert
hluti af risastóru apparati sem geng-
ur á tímalínu og þú verður bara að
skila þínu. Þú getur ekki leyft þér
munaðinn að vera sá listamaður sem
vaknar upp dag eftir dag og segir:
nei, mér líður ekki eins og ég geti
skapað í dag,“ segir hann og heldur
áfram: „Þú getur ekki leyft þér þann
munað lengi að bíða eftir andagift-
inni. Hún kemur með vinnunni,“
segir hann.
„Það felst mikið frelsi í skipulag-
inu,“ segir Ágústa Eva en þau eru
bæði óhrædd við að framkvæma
hlutina.
Upphafið að þessu verkefni liggur
hjá Gunna. „Ég ákvað að gera plötu
1. janúar 2016 og talaði við Ómar
mánuði síðar,“ segir hann og á þar
við Ómar Guðjónsson, gítarleikara
með meiru, en hann útsetti lögin.
Gunni notar símann í hugmynda-
vinnu, tekur upp þegar hann spilar á
gítarinn og grunnurinn að fyrsta
laginu varð til strax á nýársdag. Það
var lagið „My Heart Beats for You“
sem er fyrsta lagið á plötunni og
jafnframt fyrsta lagið sem þau tóku
upp.
Þau þekktust ekki áður en Ómar
er tengingin á milli þeirra tveggja en
hann er góður vinur beggja.
Hvernig vissirðu að Ágústa Eva
myndi passa svona vel inn í þetta
verkefni?
„Það er bara röddin, ég hef alltaf
verið svo hrifinn af röddinni henn-
ar.“
Hann nefnir til dæmis Megasar-
lagið „Lengi skal manninn reyna“
sem Ágústa Eva söng. Síðan má ekki
gleyma Silvíu Nótt. „Alveg frábærar
raddir í því verkefni, allt öðruvísi
beiting en maður heyrir að það er
ótrúlega mikil næmni í röddinni,
sem við Ómar vissum að myndi
passa fullkomlega fyrir þetta.“
Samstarf þeirra við Ómar hefur
verið gefandi. „Hann er sjálfur ekki
vanur að vera pródúsent fyrir aðra
þó hann sé með mikla reynslu sem
tónlistarmaður,“ segir Gunni.
„Stór partur af honum er djass-
inn, þessi spunaheimur þar sem allt
er hægt og allt í boði. Þetta á vel við
hann. Hann er ekki með fyrirfram
ákveðnar hugmyndir frekar en við,“
segir Ágústa Eva um vinnslu plöt-
unnar.
Allsber og brothætt
En hvernig skyldi henni síðan hafa
fundist að syngja þessi lög?
„Mér finnst það mjög eðlilegt.
Þetta er ekkert mál einhvern veg-
inn, þetta er allt á jafnsléttu. Vana-
lega syng ég tónlist sem annað fólk
hefur sungið áður. Það er allt ann-
að. Núna er ég til dæmis að æfa fyr-
ir Ellu Fitzgerald-tónleika. Það er
bara söngleikfimi. Ég hef líka sung-
ið arabískan söngspuna. Mér finnst
gaman að ráðast í þannig verkefni
en síðan er allt öðruvísi að ganga í
eitthvað svona sem er algjörlega
autt blað, bara einhverjar nótur.
Þetta eru fallegar einfaldar ball-
öður,“ segir hún og Gunni tekur við:
„Fyrsta skrefið er að hittast tvö
og vinna með lögin áður en við förum
í stúdíóið, bara röddin hennar og gít-
arinn. Þá eru lögin algjörlega allsber
og brothætt.“
Þau lýsa þessu bæði sem
skemmtilegu verkefni og segja ferlið
hafa verið „eðlilegt og heiðarlegt“.
Það er líka einhver einlægni og
næmni í tónlistinni. „Það er grunn-
urinn í þessu, þessir tilfinninga-
strengir og svo er búið til heimili ut-
an um þau,“ segir hún en lögin fjalla
um ástina frá ýmsum hliðum en
Gunni semur textana.
Litbrigði ástarinnar
„Við erum ekki viðkvæm að segja
þessa hluti,“ segir hann.
„Það er helst ég sem er viðkvæm
fyrir því,“ segir Ágústa Eva. „Hann
skrifar eitthvað fallegt og einlægt og
ég segi bara, nei, þetta er alltof
væmið! Ástin vekur allskonar tilfinn-
ingar og er af öllum stærðum og
gerðum hvort sem hún er til barns,
fullorðins eða fjölskyldu. Litbrigði
ástarinnar eru svo mörg,“ segir
Ágústa Eva og bætir við að þó lögin
séu ástarlög séu þau ólík.
„Ástin er falleg, sár, ljót og bitur,
sæt og allskonar,“ segir Gunni. „Líf-
ið er langt og flókið. Við eigum mörg
orð yfir snjó og slyddu en við ættum
frekar að eiga svona mörg orð um
ást. Hún er miklu flóknara fyrir-
bæri.“
Gunni er búinn að vera með konu
Skjól í hörðum heimi
Ágústa Eva Erlends-
dóttir veit ekki hvort
hún hefði gefið verk-
efninu séns ef hún væri
ekki svona ástfangin en
tímasetningin var góð
og hún tók lögum
Gunna Hilmarssonar
um ástina fagnandi. Til
varð hljómsveitin Syca-
more Tree sem sendir
frá sér sína fyrstu plötu
um helgina.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
’ Ástin er falleg, sár, ljót og bitur, sæt og allskonar.Lífið er langt og flókið. Við eigum mörg orð yfir snjóog slyddu en við ættum frekar að eiga svona mörg orðum ást. Hún er miklu flóknara fyrirbæri.
Ágústa Eva Erlendsdóttir
og Gunni Hilmarsson
vinna vel saman.
Morgunblaðið/RAX
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.9. 2017
LESBÓK
TÓNLIST Benjamin Clementine er hissa á
því að Ed Sheeran hafi verið tilnefndur til
Mercury-tónlistarverðlaunanna í Bretlandi
fyrr á þessu ári. Clementine vann til verð-
launanna árið 2015 fyrir markverða frum-
raun sína, At Least For Now, og hafði bet-
ur en Jamie xx, Florence + The Machine
og Wolf Alice.
Hann sagði í nýlegu samtali við Gigwise
að honum þætti ekki lengur eins mikið til
verðlaunanna koma. „Þetta var falleg
stund en þú veist að ef Ed Sheeran er til-
nefndur til þeirra er alveg hægt að gleyma
þessu.“
Ósáttur við Sheeran
Ekki eru allir ánægðir
með að Sheeran hafi
verið tilnefndur til
Mercury-verðlaunanna.
SJÓNVARP Maður sem vinnur við að finna töku-
staði fyrir Narcos var myrtur meðan á vinnu hans
fyrir Netflix-þættina stóð. Hann var að skoða
mögulega tökustaði fyrir fjórðu þáttaröðina í
Mexíkó en þá verður einblínt á Juárez-eiturlyfja-
hringinn.
Carlos Muñoz Portal, 37, hefur í mörg ár starf-
að við að finna tökustaði fyrir bæði sjónvarp og
kvikmyndir. Margir í mexíkóska kvikmyndaiðn-
aðinum óttast að fyrirtækið muni eftir morðið
hætta við uppptökur í landinu. Morðtíðni er há í
landinu en á svæðinu í kringum Mexíkóborg voru
182 myrtir í júlí, sem er 12,2 morð á hverja
100.000 íbúa.
Morð tengt Narcos
Narcos segir frá risi og falli kólumbíska
eiturlyfjabarónsins Pablos Escobars.