Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.09.2017, Blaðsíða 24
HEILSA Með því að hreyfa sig lengur eða með meiri ákefð er mögulegt að bæta heils-una enn frekar. Erfið hreyfing tvisvar í viku, 20-30 mínútur í senn, viðheldur og bætir enn frekar þol, vöðvastyrk, liðleika, jafnvægi og beinheilsu hjá fullorðnum. Meiri ákefð 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.9. 2017 Grafinn lax - Láttu það eftir þér Söluaðilar:10-11,Hagkaup,Kostur,Icelandverslanir,Kvosin,Melabúðin, Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin. Það er óhætt að segja að sundhlaupið Ötillö sé eitthvað það erfiðasta í heimi. Fyrirbærið sund- hlaup varð til þegar fjórir vinir kepptu í tveggja manna liðum sín á milli í því að hlaupa og synda á milli eyja í sænska skerjagarðinum en þaðan kem- ur einmitt nafnið Ötillö, eða frá eyju til eyju. Þetta var árið 2002 en fjórum árum síðar varð þetta til sem opinbert hlaup. Fyrstu árin tóku aðeins nokk- ur lið þátt í sundhlaupinu en nú nýtur það mikilla vinsælda en ávallt er keppt í liðum. Nú er nýaf- staðið heimsmeistaramótið í sundhlaupi. Vega- lengdin er 75 kílómetrar, þar af tíu kílómetrar í sjó og 65 km hlaup á landi. Lengsta hlaupið á leiðinni er 19,7 km og lengsta sundið 1.750 m. Byrjað er hjá Seglarhotel í Sandhamn og lýkur sundhlaupinu hjá Utö Värdshus á Utö. Leiðin liggur í gegnum stóru eyjarnar Runmarö, Nämdö og Ornö. Ötillö- sundhlaupið hefur nú breiðst út til annarra landa og verður m.a. haldið í Hvar í Króatíu næsta vor. Nánari upplýsingar á otilloswimrun.com. NÝJASTA ÞREKRAUNIN Sundhlaup á milli eyja Mynd/Ötillö-Jakob Edholm Fólk á miðjum aldri er hvatt tilþess að ganga hraðar til þessað halda heilsu en lítil hreyf- ing er skaðleg fyrir fólk á þessum aldri. Lýðheilsustöð Englands PHE (Public Health England) segir að fólk fari að hreyfa sig minna upp úr fertugu. Lýðheilsustöð hvetur fólk á milli 40 og 60 ára að fara í reglulega göngutúra og ganga þá hratt. PHE segir að aðeins tíu mínútur á dag gætu gert gæfumuninn og minnkað líkurnar á ótímabæru dauðsfalli um 15%. Samkvæmt PHE er staðan nú þannig að aðeins fjórar af hverjum tíu 40-60 ára manneskjum ganga ekki einu sinni rösklega í tíu mín- útur á mánuði, hvað þá á dag. Eitt af hverjum sex dauðsföllum þar teng- ist hreyfingarleysi og fólk gengur 24 kílómetrum minna að meðaltali á ári en það gerði fyrir tveimur áratug- um. App til að auka hraðann PHE sendi af þessu tilefni frá sér nýtt app sem heitir Active 10 en appið er fáanlegt í App Store. Appið fylgist m.a. með gönguhraðanum og sýnir fólki hvenær það þurfi að auka hraðann til þess að bæta heilsuna. „Ég veit af eigin reynslu hversu erfitt það er að takast á við allt sem er í gangi í hversdagslífinu og það þýðir að líkamsrækt verður ekki að- alatriði. En bara það að ganga í búð- ina í stað þess að keyra eða fara í tíu mínútna rösklega göngu í hádeg- ishléinu á hverjum degi, getur bætt mörgum heilbrigðum árum við lífið,“ sagði Jenny Harries, yfirmaður lækninga hjá PHE, í samtali við fréttavef BBC. Heimilislæknar eru einnig hvattir til að fá skjólstæðinga sína til að ganga rösklega, sem þýðir hraðar en á 4,8 kílómetra hraða á klukkustund. Á þeim hraða er fólk farið að anda hraðar og ná hjartslættinum upp. „Allir heimilislæknar ættu að ræða við skjólstæðinga sína um kosti þess að ganga rösklega og mæla með Active 10-appinu,“ sagði Zoe Williams, frá samtökum heim- ilislækna í Bretlandi. Lýðheilsustöðin leggur áherslu á þennan aldurshóp vegna þess að í honum fer hreyfing minnkandi. Einnig vegna þess að vonast er til að með því að ná til þessa aldurshóps sé hægt að hafa áhrif á börnin líka. Mælt er með því í Bretlandi að fólk hreyfi sig í 150 mínútur á viku en helmingur fólks milli fertugs og sextugs nær því ekki og einn af fimm hreyfir sig minna en í hálf- tíma. Tíu mínútna röskleg ganga á dag dugar ekki til að ná þessu markmiði en er nóg til þess að skipta máli hvað varðar blóðþrýsting, syk- ursýki, þunglyndi, stress og fleira. Mælt er með því í Bretlandi að fólk hreyfi sig í 150 mínútur á viku en helmingur fólks milli fertugs og sextugs nær því ekki og einn af fimm hreyfir sig minna en í hálftíma. Getty Images/iStockphoto Þurfa að ganga hraðar Samkvæmt lýðheilsuráðleggingum í Englandi þarf fólk á milli fertugs og sextugs að hreyfa sig meira. Mælt er með því að ganga rösklega í tíu mínútur á dag, það geti skipt sköpum fyrir heilsuna. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is „Á Íslandi eins og annars staðar minnkar hreyfing alla jafna með hækkandi aldri,“ segir Gígja Gunn- arsdóttir, verk- efnastjóri hreyf- ingar hjá Embætti land- læknis. „Kannanir benda til að um 17-20% fullorðinna Íslendinga hreyfi sig lítið sem ekkert og er það hlutfall enn aðeins hærra á meðal miðaldra en þeirra sem yngri eru,“ segir hún. Munurinn virðist þó fara minnkandi og samkvæmt nýlegri norrænni könnun tvöfaldaðist hlutfall 18-24 ára Norðurlanda- búa sem hreyfa sig ekkert á ár- unum 2011 til 2014 og var þá orðið sambærilegt og í eldri hóp- um. Gígja segir að það sé því full ástæða til að vera vakandi fyrir hreyfivenjum Íslendinga á öllum aldri. „Út frá sjónarhorni lýðheilsu er mikilvægast að takmarka lang- varandi kyrrsetu og að sem flest- ir stundi einhverja miðlungserfiða hreyfingu, líkt og rösklega göngu, í minnst 30 mínútur daglega samanber ráðleggingar Embættis landlæknis fyrir fullorðna. Til að það sé raunhæft þarf fólk að hafa valkosti til að hreyfa sig reglu- lega, í samræmi við áhuga sinn og getu, í sínu nánasta um- hverfi,“ segir hún og bætir við að meginmarkmið Heilsueflandi samfélags og skóla, sem Embætti landlæknis stýrir, sé einmitt að styðja samfélög og skóla í því að meta stöðuna og skapa aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lífs- háttum, líkt og reglulegri hreyf- ingu, heilsu og vellíðan allra. Hreyfing minnkar með aldrinum Gígja Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.