Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Page 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.10. 2017 Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is Fagleg & persónuleg þjónusta Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki Hagkvæmara en þú heldur! Dæmi: COSMETAL AVANT Nýjasta brúsavatnsvélin Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum HEART WOOD litur ársins 2018 er kominn í Sérefni Sagan er ekki bara atburðir ogatburðarás. Sagan er líkaskilningur okkar á þeirri at- burðarás, háður því hvernig samtím- inn skilur sjálfan sig hverju sinni. Þarna er að finna sögu sögunnar. Hún er spegill líðandi stundar á for- tíð sína. Á öndverðri öldinni sem leið spurðu sósíalistar um hvar hinna vinnandi handa væri getið í sögunni. Okkar samtími horfir til stöðu kvenna. Þetta kom upp í hugann þegar ég á dögunum gerðist leiðsögumaður tveggja ungra stúlkna um söfn Reykjavíkur. Þar á meðal komum við í safn Einars Jónssonar að Hnit- björgum á Skólavörðuholti. Var okk- ur þar vel tekið og sagt margt fróð- legt um þennan merka listamann. Þar á meðal sáum við frumgerð hans af styttu Ingólfs Arnarsonar sem nú gnæfir glæsileg, efst á Arnarhóli. Að lokinni heimsókn okkar í Hnitbjörg lá leiðin einmitt þangað, á Arnarhól að skoða Ingólf. En hvar var Hallveig, kona Ing- ólfs? Við lögðumst í rannsóknar- vinnu, fundum Hallveigarstaði og Hallveigarstíg og minntumst þess að á meðal nýsköpunartogaranna svonefndu, sem keyptir voru hingað til lands eftir lok seinna stríðs, var vissulega að finna Ingólf Arn- arson en einnig togarann Hall- veigu Fróðadótt- ur. Síðan fórum við á Þjóðminja- safnið og Land- námssýninguna í Aðalstræti sem er mjög fróðlegt og skemmtilegt að heimsækja. Þarna var þeirra vissu- lega rækilega getið, Ingólfs og Hall- veigar og öndvegissúlurnar voru á sínum stað, þótt söguskoðun sam- tímans sé að verða ráðandi í fram- setningu og skýringartextum. Þar er horft til landsins gæða þegar leit- að er skýringa á búsetu landnáms- manna fremur en til forlagatrú- arinnar sem frásögnin af öndvegissúlunum ber keim af. Sú frásögn gæti þó staðist sögulega rýni og þarf auk þess að halda til haga sögu sögunnar vegna! Leið- sögumaður okkar á Landnámssýn- ingunni flutti okkur fróðlegt erindi um framleiðslu á vaðmáli og útflutn- ingi á því til seglagerðar fyrr á tíð. Þarna værum við komin inn á verk- svið kvenna sem án efa yrði betur kannað á komandi tíð. Annars fer því fjarri að í íslensk- um söguritum sé hlutur kvenna fyrir borð borinn. Ari fróði setti tóninn í frásögn sinni af landnáminu í Ís- lendingabók. En það þurfti þó vökul augu síðari tíma til að halda að okk- ur hlutdeild kvenna í sögunni þegar þjóðfrelsisbarátta 19. og 20. aldar varð altekin af frásögnum af „feðr- unum frægu“ og „frjálsræðishetj- unum góðu“. Í inngangsorðum að bók sinni, Öndvegissúlurnar, sem kom út 1955, og var tileinkuð „íslenskri æsku“ segir höfundurinn, kvenréttinda- frömuðurinn, Laufey Vilhjálms- dóttir: „Engin þjóð í heimi á jafn- undurfagrar sagnir um fyrstu til- drög höfuðborgar lands síns og íslenska þjóðin. Sögulegt er ævin- týrið um ungu hjónin, Hallveigu og Ingólf, Helgu og Hjörleif , er lögðu út á hafið ásamt fólki sínu með þeim ásetningi að nema nýtt land er yrði fósturland þeirra í framtíðinni…“ Síðar í bókinni minnir Laufey lesandann á það í kaflafyrirsögn að það hafi verið „vegna konu að Ísland byggðist“. Fer ég ekki nánar út í þá sálma en kem nú að erindinu. Væri ekki ráð að efna til hug- myndaveislu þar sem listamönnum væri boðið að setja fram tillögu um minnisvarða um Hallveigu Fróða- dóttur þar sem hún kallist á við bónda sinn á Arnarhólnum? Reykvíkingar vilja varla vera eft- irbátar Akureyringa sem um miðja síðustu öld settu upp myndarlega styttu Jónasar S. Jakobssonar af þeim Helga magra og Þórunni hyrnu þar sem þau standa hlið við hlið og horfa út Eyjafjörðinn. Þegar afarnir fara síðan með sjö ára dætradætur sínar í skoðunar- ferð um Reykjavík eftir þrjúhundr- uð ár staðnæmast þau við glæsilega veggmynd af Hallveigu Fróðadóttur og minnast þess að í byrjun 21. ald- arinnar hafi Reykvíkingar sýnt Hallveigu, holdgervingi kvenna til forna, sama sóma og Ingólfi manni hennar einni öld fyrr. Afanum og stúlkunum tveim mun án efa þykja það hafa verið merkilegt framlag til sögu sögunnar. Hallveig Fróðadóttir og saga sögunnar ’En það þurfti þó vökulaugu síðari tíma til aðhalda að okkur hlutdeildkvenna í sögunni þegar þjóðfrelsisbarátta 19. og 20. aldar varð altekin af frásögnum af „feðrunum frægu“ og „frjálsræðis- hetjunum góðu“. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Saga Garðars- dóttir leikkona kom með játn- ingu á Twitter: „Mér þykir Logi í Samfylkingunni mjög sjarmerandi og ég dýrka að hann hafi setið fyrir nakinn í myndlistarskóla. Fullt hús stiga.“ Halldór Hall- dórsson, Dóri DNA, kom með pabbatíst: „Eins og sonur minn er prúður þá lætur hann eins og það sé verið að waterboarda hann í hvert skipti sem ég reyni að gefa pela. Twit- ter hilfe.“ Helgi Seljan dagskrárgerðar- maður tísti: „Það hafa fleiri póstað „hey, fattiði, sam- faraflokkurinn“ á Facebook í dag en ætluðu að lækna krabbamein barnsins með því að share-a mynd!“ Beethoven umlukti rithöfund- inn Auði Jónsdóttur í vikunni en hún skrifaði á Facebook: „Furðulegt kvöld alveg, sat í mak- indum heima hjá mér og fékk fimm boð um verkefni og vinnur á sama klukkutímanum. Var nóta bene að hlusta á Beethoven. Mæli með honum.“ Kollegi hennar úr rithöfunda- stétt, Eiríkur Örn Norðdahl, skrifaði á Face- book: „Svo sá misskilningur sé bara leiðréttur í eitt skipti fyrir öll – ég get ekki verið á öllum þráðum í einu – þá fer laxeldi sem sagt ekki fram í álverum.“ AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.