Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Blaðsíða 15
1.10. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Aldur: 17 ára.
Skóli: Flensborg.
Foreldrar: Sigrún Össurardóttir,
vinnur á markaðsdeild Bláa lónsins, og
Haraldur Ólafsson, forstöðumaður hjá
Ergo.
Systkinaröð: Elstur þriggja systkina.
Áhugamál: Tónlist, leiklist og
félagsmál.
Leyndur hæfileiki: Kann að bítboxa. Er
með mjög langa tungu.
Gæludýr: Hefur átt þrjá hunda. Labra-
dormæðgurnar Ása og Kolla dóu með
árs millibili. Nú á fjölskyldan fjörugan
labradorhvolp sem heitir Felix.
Uppáhalds samfélagsmiðillinn:
Instagram.
Það sem er best við að vinna með
JóaPé er … „að vinna með besta vini
sínum og stjórna tíma sínum sjálfur.
Þetta er rosalega gaman“.
Aldur: 16 ára.
Skóli: Fjölbrautaskólinn í Garðabæ.
Foreldrar: Patrekur Jóhannesson, hand-
boltamaður og þjálfari, og Rakel Anna
Guðnadóttir, grafískur hönnuður.
Systkinaröð: Næstelstur. Á einn eldri
bróður og yngri bróður og yngri systur.
Áhugamál: Tónlist, myndlist, hönnun.
Leyndur hæfileiki: Góður dansari, kann
að dansa Michael Jackson-dansa. Lærði
þá í 4. bekk og sýndi í Borgarleikhúsinu.
Gæludýr: Átti hamsturinn Hnoðra Snæ
Jóhannesson sem lifði í heil fimm ár.
Svarti labradorinn Krummi dó í fyrra
en fjölskyldan átti hann mjög lengi.
Uppáhalds samfélagsmiðilinn:
Instagram.
Það sem er best við að vinna með Króla
er … „vináttan, þetta er ekkert flókn-
ara en það. Við erum vinir að gera tón-
list“.
tónlist. Vissulega var það erfitt en það var
skemmtilegt. Ég hafði líka verið fyrir framan
myndavélina áður,“ segir hann sem er góð æf-
ing fyrir gerð tónlistarmyndbanda.
Kristinn er á félagsfræðibraut í Flensborg
og er sáttur við það val. Eins og áður segir
tekur hann virkan þátt í félagsmálum í skól-
anum en hann var í sigurliði skólans í Morfís í
fyrra. „Ég er mikið orðanörd. Það og tónlist er
það skemmtilegasta sem ég geri. Ég hef gam-
an af því að skrifa; texta, ræður, rímur og
ljóð.“
Handboltaþolið hjálpar
En handboltinn, það er heilmikið álag og
pressa í honum, hjálpar það þér eitthvað? Eða
eitthvað annað úr handboltanum?
„Það er voða lítið sem hjálpar mér nema
kannski bara þolið, eins og miðað við Kidda,“
segir Jóhannes.
„Ég er ekki í formi, svo það sé alveg á
hreinu,“ segir Kristinn. „Ég verð svolítið mik-
ið þreyttur eftir gigg. Gigg hjá mér þrisvar í
viku er bara nóg hreyfing. Það voru fjórir dag-
ar í síðustu viku þar sem við tókum þrjú gigg á
dag. Ég var alveg dauður, þetta var aðeins of
mikið, en þetta var bara gaman. Eftirspurnin
er mikil og þá getur maður leyft fólki að heyra
aðeins í sér.“
Þolið úr handboltanum bjargar hinsvegar
Jóhannesi í þessum aðstæðum.
Hvað eru þetta margar æfingar venjulega í
handboltanum? „Það eru æfingar svona fjór-
um til fimm sinnum í viku og síðan eru leikir
yfirleitt um helgar. Ég þarf að blanda þessu
saman við tónlistina. Það verður erfitt, en það
verður bara nóg að gera.“
Jóhannes fæst við fleiri listgreinar en tón-
list. „Ég fékk listagenin frá mömmu en ekki
pabba, langt frá því,“ segir hann en móðir
hans, Rakel Anna Guðnadóttir, er grafískur
hönnuður.
Hann er á myndlistarbraut í FG. „Ég er að
mála, ég er að hanna föt og er með fatamerki.
Ég er alltaf eitthvað að skapa,“ segir hann en
fatamerkið heitir Twenty One og einbeitir sér
að hettupeysum sem stendur en það er hægt
að skoða þær á Instagram undir
twentyone.wear.
Tónleikar á laugardagskvöld
Næst á dagskrá eru tónleikar, í dag laugar-
dag.
„Við erum að fara að halda tónleika í sam-
starfi við Coca Cola og Mid Atlantic Enterta-
inment í Gamla bíói. Þar verða góðir gestir
sem ætla að hjálpa okkur. Við héldum útgáfu-
tónleika á Prikinu en okkur fannst svo leiðin-
legt að það voru eiginlega fleiri fyrir utan stað-
inn sem komust ekki inn heldur en inni á
staðnum. Við vildum halda eitthvað á stórum
stað þar sem margir komast að og geta dansað
og sungið,“ segir Kristinn en þeir vonast til
þess að sem flestir komi og skemmti sér með
þeim í kvöld. Platan GerviGlingur verður tekin
í heild sinni ásamt eldra efni.
Hvað finnst ykkur skemmtilegast við þetta?
Að gera tónlistina, taka upp myndbönd eða
koma fram?
„Mér finnst skemmtilegast að gera tónlist-
ina,“ segir Kristinn. „Mér líka,“ segir Jóhann-
es en þeir segja að það sé líka mjög gaman á
tónleikunum. „Það er svo gaman þegar fólk
kann textana,“ segir Kristinn.
Jóhannes, hvað finnst þér mikilvægast í tón-
listinni, er eitthvað sem þig langar að koma á
framfæri í henni, eitthvað sérstakt sem brenn-
ur á þér?
„Ekkert sérstakt málefni. Bara fer eftir því
hvernig lagið er eða hvernig skapi ég er í. Það
er bara mjög misjafnt, ekki eitthvað eitt mál-
efni. Eins og í „B.O.B.A.“, vondar gellur, það
er ekkert sem brennur á mér að tala um,“ seg-
ir hann og vísar til þess að lagið fjallar um
hvernig þeir fíli ekki góðar stelpur heldur bara
vondar.
Þetta hljómar eins og þið viljið ekki taka
ykkur of hátíðlega?
„Akkúrat, við erum bara að gera tónlist sem
við fílum.“
Króli, Kristinn Óli Haraldsson,
(t.v.) og JóiPé, Jóhannes Pat-
reksson, hafa aðeins gert tón-
list saman frá því í ársbyrjun.
Morgunblaðið/Eggert
Jóhannes Damian
Patreksson
Kristinn Óli
Haraldsson