Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Blaðsíða 37
1.10. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Kvikmyndir Guardian gefur kvikmyndinni Blade
Runner 2049 skínandi fínan fimm stjörnu dóm. Mynd-
in er framhald Blade Runner sem Ridley Scott leik-
stýrði árið 1982 en sú mynd var byggð á bók eftir vís-
indaskáldsögu Philips K. Dicks. Leikstjóri fram-
haldsmyndarinnar er Denis Villeneuve og gagn-
rýnandi Guardian segir að fólk verði hreinlega að sjá
myndina á stærsta mögulega skjá, sem er að sjálf-
sögðu bíóskjár. Harrison Ford lék aðalhlutverkið í
Blade Runner fyrir 35 árum en Ryan Gosling leikur
aðalhlutverkið í þessari. Þess má geta að handritshöf-
undurinn sem sá um verkið 1982, Hampton Fancher,
var líka með puttana í handritinu núna og telur gagn-
rýnandi breska blaðsins að það skipti miklu máli.
Fullt hús stiga
Það verður spennandi að sjá Ryan
Gosling í Blade Runner 2049.
Sjónvarp Netflix ætlar að fjárfesta í
kanadískri kvikmynda- og sjónvarps-
þáttagerð fyrir að minnsta kosti fjóra
milljarða íslenskra króna á næstu fimm
árum að því er Variety greinir frá.
Þetta þykir afar stórt skref fyrir Netflix
en þetta er í fyrsta sinn sem efnisveitan
ræðst í svo stóra varanlega framleiðslu ut-
an Bandaríkjanna en framkvæmdin er
hluti af samningi sem Netflix og kanadísk
stjórnvöld gerðu með sér sem ætlað er að
styðja við nýsköpun á stafræna sviðinu.
Efnið verður bæði framleitt á ensku og
frönsku.
Stórt skref fyrir Netflix
Kanadísk stjórnvöld gerðu samning við Netflix.
AFP
Þessi ljósmynd er vel þekkt en hún sýnir leikkonuna
Melanie Griffith á heimili sínu þegar hún var táningur.
Móðir hennar, leikkonan Tippi Hedren og stjúpfaðir,
Noel Marshall, gerðu mynd um stór kattardýr. Bjó ljón-
ið Neil heima hjá þeim um tíma í þeim tilgangi að þau
skildu dýrið betur. Myndaþáttur frá heimilinu var birtur í
LIFE Magazine árið 1971 og eru myndirnar býsna sláandi.
Leikarinn og leikstjórinn George Clooney átti
lengi samleið með gæludýrinu sínu, svíninu Max.
Clooney átti hann í 18 ár og sváfu þeir meira að segja
stundum í sama rúmi. Hann keypti Max upphaflega
handa þáverandi kærustu sinni, Kelly Preston.
Rapparinn Tyga átti tígrisdýrið Maverick, sem hann birti oft myndir af á
samfélagsmiðlum. Ekki er löglegt að halda tígrisdýr sem gæludýr í 21 ríki
Bandaríkjanna þannig að Tyga gaf dýrið til að forðast ákæru.
Simpansinn Bubbles
er einhver frægasti api í
heimi enda var eigandi
hans einhver frægasti
tónlistarmaður í heimi,
Michael Jackson.
Bubbles kom víða fram
með honum á Bad-tón-
leikaferðalaginu. Hann
svaf jafnan í vöggu í svefn-
herbergi tónlistarmanns-
ins. Poppkóngurinn er nú
fallinn frá en Bubbles lifir
góðu lífi í Flórída, 34 ára
gamall. Jeff Koons gerði
frægan skúlptúr af parinu.
Gítarleikarinn Slash úr Guns N’
Roses er mikill dýravinur. Hann
hefur í gegnum tíðina átt marga
snáka, sem hafa til dæmis komið
fram með honum í tónlistar-
myndböndum og á ljósmyndum.
Hann leggur sitt af mörkum til
dýravelferðar og er bakhjarl
dýragarðsins í Los Angeles og
fleiri dýragarða víðs vegar um
heiminn.
Sérstök
gæludýr
stjarnanna
Hollywood-stjörnur og heimsfrægt tónlistarfólk
geta leyft sér margt sem er ekki á færi almennings,
meðal annars að eiga sérkennileg gæludýr. Stjörn-
urnar sem hér eru taldar upp hafa mismunandi
ástæður þess að eiga þessi dýr en dýrin eiga það
sameiginlegt að vera heldur óvenjuleg gæludýr.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Leikkonan Audrey Hepburn var
mikill mannvinur og starfaði lengi
með Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
UNICEF í mörgum af fátækustu ríkj-
um heims. Hér er hún hinsvegar með
hindarkálfinum Pippin, sem var í
miklu uppáhaldi hjá leikkonunni. Þau
kynntust við tökur á kvikmyndinni
Green Mansions árið 1959 og fór
hann víða með leikkonunni á þessu
tímabili, í veislur og verslunarferðir.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Böðvar Bergsson
Sími: 569 1126, bodvar@mbl.is
Norðurslóðir
The Arctic Circle
Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 13. október
SÉRBLAÐ
Blaðið kemur út með bæði
íslenskum og enskum texta.
Umsjón: Ragnar Axelsson
ljósmyndari og Orri Páll
Ormarsson blaðamaður.
The Arctic Circle ráðstefnan
verður haldin á Íslandi
13 – 15. október.