Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Qupperneq 22
MATUR Á Ítalíu má finna gæðastimpilinn D.O.P. sem þýðir að varan sé ekta.Aðeins þeir sem framleiða vörur á réttan hátt, og á réttum stöðum,mega nota D.O.P. Finnst hann á parmesan, mozzarella, balsamik,
skinku, ólífuolíu, San Marzano tómötum og jafnvel basilíku.
Ekta er merkt D.O.P.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.10. 2017
Það lá mikil eftirvænting í loftinuþegar keyrt var frá flugvellinumí Mílanó áleiðis upp í Appenína-
fjöllin einn fagran haustdag í sept-
ember. Í bílnum var ættmóðirin Ragn-
hildur Benediktsdóttir ásamt dætr-
unum þremur, Hildi, Margréti og
Ásdísi, sem hér ritar. Hlykkjóttir vegir
lágu um skógivaxnar hlíðarnar og loks
blasti við skiltið á áfangastaðnum,
Borgo Pianello. Þar hugðumst við
mæðgur eyða saman viku í fallegu um-
hverfi, læra að elda ítalskan mat, skoða
okkur um í héraðinu, skemmta okkur og
fræðast. Það sem við myndum kalla full-
komið frí!
Við fengum hús út af fyrir okkar, þrjú
hundruð ára gamalt steinhús með öllum
þeim sjarma sem því fylgir. Sundlaug
var bak við hús með útsýni yfir fjöllin og
í fjarska blasti við gamall kirkjuturn.
Þegar kvöldsólin lagðist yfir dali og fjöll
varð umhverfið hreinlega ævintýralegt.
Pasta frá blautu barnsbeini
Kokkanámskeiðið var fyrstu þrjá dag-
ana í fallegu húsi á landareigninni en
hjónin Marco Ventura og Stefania Torri
ráða þar ríkjum. Stefania sér um
kennsluna og hefur gert frá árinu 2006.
„Ég er ekki lærður kokkur en hef
unnið í eldhúsi alla tíð og er sérfræð-
ingur í handgerðu pasta en það er ein-
kennandi fyrir Bologna sem er hér
næsta stóra borgin. Ég lærði það sem
smábarn,“ segir hún og hlær. „Ég kenni
það líka en við höfum mismunandi nám-
skeið því sumir kúnnarnir vilja koma
aftur og geta þá lært eitthvað nýtt. Fólk
vill læra eitthvað sem er einkennandi
fyrir Ítalíu og þess vegna kennum við
t.d. að gera pítsu en í þessu héraði er
pasta aðalatriðið,“ segir Stefania og
bætir við að flest námskeiðin séu
þriggja daga löng. „Svo getum við auð-
vitað sérsniðið námskeið fyrir hópa sem
það vilja.“
Námskeiðin eru flest haldin á vorin
og haustin því hitinn er of mikill yfir há-
sumarið, að sögn Stefaniu. „Það er mjög
erfitt að vera með heitan pítsuofn í
gangi yfir hásumar!“
Aðspurð hvort hún borði pasta á
hverjum degi, svarar hún hlæjandi:
„Nei, alls ekki, ég þarf að hugsa um
heilsuna. En flestar ítalskar fjölskyldur
borða pasta daglega. Að minnsta kosti
helmingur!“
Eldað og borðað í þrjá daga
Á námskeiðinu sem við vorum lentar á
var lögð áhersla á grænmeti, pasta og
pítsugerð. Hráefnið var dásamlega
brakandi ferskt og réttirnir allir í raun
sáraeinfaldir. Um fimmtán voru mættir
til að læra handtökin en námskeiðið
hófst hálfellefu á morgnana með ljúf-
fengu kaffi og sætmeti. Allt var í róleg-
heitum hjá henni Stefaniu og nógur tími
til alls. Gestir fengu allir hvítar svuntur
og svo var hafist handa.
Á þriggja daga námskeiði útbjuggum
við ítalska brauðsúpu, heimalagað
pestó, eggaldinrétt, biscotti-kökur, tí-
ramísu, grænmetiskássu, pasta með
tómötum, fylltan kúrbít og eldbakaða
pítsu. Og að sjálfsögðu var setið fram á
eftirmiðdag því það þurfti að borða öll
herlegheitin!
Á eftir var notalegt að setjast út við
sundlaug með góða bók og ilmandi kaffi
og njóta sveitasælunnar. Á kvöldin var
svo hægt að heimsækja lítil þorp í ná-
grenninu og finna sér veitingastaði til
að halda áfram að njóta ítalskrar matar-
gerðar.
Í héraðinu er að finna alvöru parmes-
angerðir og balsamik-búgarða og auk
þess er stutt til bæði Bologna og Mod-
ena, borga þekktra fyrir framúrskar-
andi mat. Héraðið er því sannkölluð
matarkista Ítalíu!
Hægt er að fræðast um þetta nám-
skeið og önnur á cooking-vacations.com
og einnig beint á vefsíðunni borgopia-
nello.eu.
Stefania Torri, í miðju, er hér
í óða önn að útbúa pasta-
rétti fyrir hópinn. Heima-
lagað pestó gerir allt betra.
Morgunblaðið/Ásdís
Lengst uppi í Appenínafjöllum Ítalíu í Emilia Romagna-héraði er hægt að læra
handtökin í eldhúsinu hjá henni Stefaniu Torri. Þangað lá leiðin hjá mæðgum
sem allar hafa brennandi áhuga á matreiðslu. Með útsýni yfir dali og fjöll voru
galdraðir fram ljúffengir en jafnframt auðveldir klassískir ítalskir réttir.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Borgo Pianello er á fallegum stað mitt í Appen-
ínafjöllunum í Emilia Romagna héraði á Ítalíu. Þar
eru haldin matreiðslunámskeið á vorin og haustin.
Ragnhildur Benediktsdóttir er hér ásamt dætrum
sínum, Hildi, Margréti og Ásdísi Ásgeirsdætrum. All-
ar tilbúnar í slaginn með hvítar svuntur í eldhúsinu.
Matarævintýri í ítalskri sveit