Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Síða 22
MATUR Á Ítalíu má finna gæðastimpilinn D.O.P. sem þýðir að varan sé ekta.Aðeins þeir sem framleiða vörur á réttan hátt, og á réttum stöðum,mega nota D.O.P. Finnst hann á parmesan, mozzarella, balsamik, skinku, ólífuolíu, San Marzano tómötum og jafnvel basilíku. Ekta er merkt D.O.P. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.10. 2017 Það lá mikil eftirvænting í loftinuþegar keyrt var frá flugvellinumí Mílanó áleiðis upp í Appenína- fjöllin einn fagran haustdag í sept- ember. Í bílnum var ættmóðirin Ragn- hildur Benediktsdóttir ásamt dætr- unum þremur, Hildi, Margréti og Ásdísi, sem hér ritar. Hlykkjóttir vegir lágu um skógivaxnar hlíðarnar og loks blasti við skiltið á áfangastaðnum, Borgo Pianello. Þar hugðumst við mæðgur eyða saman viku í fallegu um- hverfi, læra að elda ítalskan mat, skoða okkur um í héraðinu, skemmta okkur og fræðast. Það sem við myndum kalla full- komið frí! Við fengum hús út af fyrir okkar, þrjú hundruð ára gamalt steinhús með öllum þeim sjarma sem því fylgir. Sundlaug var bak við hús með útsýni yfir fjöllin og í fjarska blasti við gamall kirkjuturn. Þegar kvöldsólin lagðist yfir dali og fjöll varð umhverfið hreinlega ævintýralegt. Pasta frá blautu barnsbeini Kokkanámskeiðið var fyrstu þrjá dag- ana í fallegu húsi á landareigninni en hjónin Marco Ventura og Stefania Torri ráða þar ríkjum. Stefania sér um kennsluna og hefur gert frá árinu 2006. „Ég er ekki lærður kokkur en hef unnið í eldhúsi alla tíð og er sérfræð- ingur í handgerðu pasta en það er ein- kennandi fyrir Bologna sem er hér næsta stóra borgin. Ég lærði það sem smábarn,“ segir hún og hlær. „Ég kenni það líka en við höfum mismunandi nám- skeið því sumir kúnnarnir vilja koma aftur og geta þá lært eitthvað nýtt. Fólk vill læra eitthvað sem er einkennandi fyrir Ítalíu og þess vegna kennum við t.d. að gera pítsu en í þessu héraði er pasta aðalatriðið,“ segir Stefania og bætir við að flest námskeiðin séu þriggja daga löng. „Svo getum við auð- vitað sérsniðið námskeið fyrir hópa sem það vilja.“ Námskeiðin eru flest haldin á vorin og haustin því hitinn er of mikill yfir há- sumarið, að sögn Stefaniu. „Það er mjög erfitt að vera með heitan pítsuofn í gangi yfir hásumar!“ Aðspurð hvort hún borði pasta á hverjum degi, svarar hún hlæjandi: „Nei, alls ekki, ég þarf að hugsa um heilsuna. En flestar ítalskar fjölskyldur borða pasta daglega. Að minnsta kosti helmingur!“ Eldað og borðað í þrjá daga Á námskeiðinu sem við vorum lentar á var lögð áhersla á grænmeti, pasta og pítsugerð. Hráefnið var dásamlega brakandi ferskt og réttirnir allir í raun sáraeinfaldir. Um fimmtán voru mættir til að læra handtökin en námskeiðið hófst hálfellefu á morgnana með ljúf- fengu kaffi og sætmeti. Allt var í róleg- heitum hjá henni Stefaniu og nógur tími til alls. Gestir fengu allir hvítar svuntur og svo var hafist handa. Á þriggja daga námskeiði útbjuggum við ítalska brauðsúpu, heimalagað pestó, eggaldinrétt, biscotti-kökur, tí- ramísu, grænmetiskássu, pasta með tómötum, fylltan kúrbít og eldbakaða pítsu. Og að sjálfsögðu var setið fram á eftirmiðdag því það þurfti að borða öll herlegheitin! Á eftir var notalegt að setjast út við sundlaug með góða bók og ilmandi kaffi og njóta sveitasælunnar. Á kvöldin var svo hægt að heimsækja lítil þorp í ná- grenninu og finna sér veitingastaði til að halda áfram að njóta ítalskrar matar- gerðar. Í héraðinu er að finna alvöru parmes- angerðir og balsamik-búgarða og auk þess er stutt til bæði Bologna og Mod- ena, borga þekktra fyrir framúrskar- andi mat. Héraðið er því sannkölluð matarkista Ítalíu! Hægt er að fræðast um þetta nám- skeið og önnur á cooking-vacations.com og einnig beint á vefsíðunni borgopia- nello.eu. Stefania Torri, í miðju, er hér í óða önn að útbúa pasta- rétti fyrir hópinn. Heima- lagað pestó gerir allt betra. Morgunblaðið/Ásdís Lengst uppi í Appenínafjöllum Ítalíu í Emilia Romagna-héraði er hægt að læra handtökin í eldhúsinu hjá henni Stefaniu Torri. Þangað lá leiðin hjá mæðgum sem allar hafa brennandi áhuga á matreiðslu. Með útsýni yfir dali og fjöll voru galdraðir fram ljúffengir en jafnframt auðveldir klassískir ítalskir réttir. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Borgo Pianello er á fallegum stað mitt í Appen- ínafjöllunum í Emilia Romagna héraði á Ítalíu. Þar eru haldin matreiðslunámskeið á vorin og haustin. Ragnhildur Benediktsdóttir er hér ásamt dætrum sínum, Hildi, Margréti og Ásdísi Ásgeirsdætrum. All- ar tilbúnar í slaginn með hvítar svuntur í eldhúsinu. Matarævintýri í ítalskri sveit

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.