Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.10. 2017
FÓTBOLTI
Forráðamenn Þórs/KA hafa
vandað til verka í gegnum
tíðina þegar kemur að því
að semja við erlenda leik-
menn. Mexíkósku landsliðs-
stúlkurnar Stephany Mayor
og Natalia Gomez Junco
léku með liðinu í fyrra og sú
þriðja, Bianca Sierra, bættist
í hópinn í sumar, auk þess
sem hin bandarísk-franska
Zanetha Wyne lék bæði ár-
in. Fyrirmyndarstúlkur í alla
staði og frábærir leikmenn.
Gamla kempan, Nói
Björnsson, hefur verið í for-
svari fyrir Þór/KA í mörg ár.
Nói tók við viðurkenningu
frá KSÍ að leikslokum, eftir
að stuðnings-
menn Þórs/KA
höfðu verið
valdir þeir
bestu í
sumar.
Bianca Sierra, Stephany Mayor
og Natalia Gomez Junco.
Frábærar
Á toppi tilverunnar í allt sumar
A
kureyringar erum við,
og það er voða gaman,
syngja börn á ösku-
daginn í höfuðstað
Norðurlands. Akur-
eyringum fannst gaman í fyrradag;
voru ánægðir með sig og höfðu fulla
ástæðu til. „Stelpurnar þeirra“ urðu
þá Íslandsmeistarar í fótbolta öðru
sinni á fimm árum og Þór/KA er þar
með orðið sigursælasta fótboltalið í
sögu bæjarins.
Undirbúningstímabilið var ekki
eins og best verður á kosið að því leyti
að minnstu munaði að slitnaði upp úr
samstarfi Akureyrarfélaganna. Svo
fór þó að samið var á ný og nú, þegar
upp er staðið, hljóta allir að vera sælir
með þá niðurstöðu. Þórsarar og KA-
menn glöddust saman í stúkunni og
haft var á orði að það væri fögur sjón!
Ekki er sjálfgefið að fólk fjölmenni
á völlinn klukkan kortér yfir fjögur á
virkum degi, auk þess í hellirigningu.
Akureyringar létu það ekki aftra sér
og um 1.400 manns mættu á Þórsvöll-
inn á lokaleikinn, gegn FH á fimmtu-
daginn.
Þór/KA var spáð fjórða sætinu fyr-
ir keppnistímabilið á eftir Val, Breiða-
bliki og Stjörnunni. Liðið byrjaði á því
að vinna meistarakandídata Vals á
heimavelli og lagði svo Breiðablik,
líka nyrðra. Svo fór að norðanstúlkur
unnu Breiðablik og Stjörnuna bæði
heima og að heiman en gerðu jafntefli
við Val að Hlíðarenda. Þær gerðu sér
reyndar lítið fyrir og unnu fyrstu níu
leikina, það var ekki fyrr en í 10. um-
ferð að stig tapaðist, með jafnteflinu
gegn Val.
Þór/KA tapaði loks í 15. umferð,
3:2 fyrir ÍBV í Eyjum 27. ágúst og
laut síðan í gras öðru sinni, í næstsíð-
ustu umferð, 3:2, í Grindavík. Akur-
eyringarnir unnu 14 leiki á Íslands-
mótinu, gerðu tvö jafntefli og töpuðu
tveimur leikjum.
Frammistaðan var stórbrotin allt
þar til rúmlega mánaðar hlé var gert
vegna EM í Hollandi en liðið hikstaði
örlítið eftir það. Öryggið virtist ekki
það sama og áður og má, a.m.k. að
hluta til, rekja það til meiðsla varnar-
mannsins Lillýjar Rutar Hlynsdóttur
sem missti af fjórum fyrstu leikjun-
um eftir fríið langa. Þótt hún sé að-
eins tvítug er Lillý lykilmaður.
Þór/KA gerði 3:3 jafntefli gegn
Fylki í fyrsta leik eftir EM, vann tvo
næstu, tapaði svo í Eyjum en vann
Stjörnuna og tapaði í Grindavík.
Skyndilega var hlaupin spenna í mót-
ið, en um tíma leit út fyrir að Þór/KA
myndi tryggja sér Íslandsmeistara-
titilinn löngu fyrir síðustu umferð.
Svo fór ekki og því var mikil spenna í
loftinu í fyrradag.
Tvö mörk seint í leiknum gegn FH
(2:0) urðu til þess að Íslandsbikarinn
fór á loft fyrir norðan við mikinn
fögnuð fjölmargra áhorfenda.
Meðalaldur byrjunarliðs Þórs/KA í
lokaleiknum var 21,9 ár. Alls komu 20
leikmenn við sögu í deildinni og með-
alaldur þeirra er 20,6 ár.
Zaneta Wyne, sem lék ýmist í vörn
eða á miðjunni, er elst í liðinu, 27 ára,
en missti reyndar af síðustu umferð-
unum eftir að hún gekk til liðs við
Sunderland í Englandi.
Markvörðurinn, Bryndís Lára
Hrafnkelsdóttir, og framherjinn,
Stephany Mayor – besti leikmaður
Íslandsmótsins og markakóngur –
eru 26 ára, Bianca Sierra og Natalia
Gomez Junco báðar 25. Tveir af
meisturunum fyrir fimm árum, fyrir-
liðinn Sandra María Jessen og Lára
Einarsdóttir, eru ekki nema 22 ára,
varafyrirliðinn Lillý Rut Hlynsdóttir
og útherjinn Hulda Ósk Jónsdóttir
eru tvítugar og miðjumennirnir
Andrea Mist Pálsdóttir og Anna Rak-
el Pétursdóttir 19 ára.
Þess má geta Lára er sú eina sem
lék alla leikina í sumar og líka 2012.
Hulda Björg Hannesdóttir hafði
ekki fengið nema nasaþef af meist-
araflokki fyrir tímabilið enda aðeins
16 ára. Var samt sett í mikilvægt
hlutverk. Hún varð ekki 17 ára fyrr
en 5. september en var ein af átta í
liðinu sem tóku þátt í öllum 18 leikj-
um Íslandsmótsins. Þá er vert að
geta Karenar Maríu Sigurgeirs-
dóttur, sem gerði afar mikilvægt sig-
urmark gegn FH í uppbótartíma í
Hafnarfirði. Karen varð ekki 16 ára
fyrr en tveim dögum seinna.
Halldór Jón Sigurðsson – kallaður
Donni í höfuðið á afa sínum, Donna úr
gullaldarliði ÍA – tók við þjálfun Þórs/
KA í vetur og honum til aðstoðar var
Andri Hjörvar Albertsson. Þeir tóku
við góðu búi frá Jóhanni Kristni
Gunnarssyni og Siguróla Kristjáns-
syni en breyttu áherslum; léku með
þrjá menn í vörn, fjóra á miðjunni og
þrjá í fremstu víglínu. Þegar Donni
tók við var sýnin skýr: Við ætlum að
vera Íslandsmeistarar, tilkynnti hann
og stóð við stóru orðin!
Skemmtilegt er að geta þess að 2.
flokkur Þórs/KA beitti sömu leik-
aðferð, enda undir stjórn sömu þjálf-
ara (ásamt Nataliu Gomez Junco) og
árangurinn var einnig glæsilegur á
þeim bænum; Þór/KA varð bæði Ís-
lands- og bikarmeistari í 2. flokki.
Sigursöngur Þórs/KA stúlkna fyrir
framan troðfulla stúku stuðnings-
manna á Þórsvelli á fimmtudaginn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stelpurnar í Þór/KA fögnuðu Íslandsmeistaratitli í fótbolta í fyrrakvöld, öðru sinni á fimm árum. Þeim var spáð fjórða sæti Pepsi--
deildarinnar en frábær byrjun í vor gaf þeim byr undir báða vængi og liðið var í efsta sæti frá fyrsta leik til síðustu spyrnu í haust.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Nói
Björnsson
Hulda Björg
Hannesdóttir
Karen María
Sigurgeirsdóttir
Lillý Rut
Hlynsdóttir
Lára
Einarsdóttir
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Um 3000
þjónustufyrirtæki
eru á skrá hjá
finna.is
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?