Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Blaðsíða 14
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.10. 2017
Þ
eir eru komnir með yfir milljón
hlustanir á Spotify og lagið
„B.O.B.A.“ var komið með 430
þúsund spilanir á YouTube á
föstudag. JóiPé og Króli bjuggu
til algjöra bombu.
„Þetta sprakk svolítið um leið og við settum
þetta á netið. Fólk fór mikið að hlusta og deila.
Þetta kom okkur svolítið að óvörum en þetta
var mjög gaman,“ segir Kristinn Óli Haralds-
son, eða Króli.
Platan GerviGlingur kom út fyrr í mánuð-
inum og þegar viðtalið var tekið um miðja vik-
una sátu öll átta lög plötunnar á topp 20 yfir
vinsælustu lögin á Spotify á Íslandi.
„B.O.B.A.“ er á toppnum rétt eins og á Vin-
sældalista Rásar 2 og Vinsældalista Íslands á
K100.
Tvær plötur á hálfu ári
Þrátt fyrir að hafa aðeins starfað saman frá
ársbyrjun er GerviGlingur önnur plata þeirra
félaga. „Við kynntumst í lok desember þegar
Kiddi sendir á mig skilaboð á Facebook, segir
að ég sé að gera góða hluti í tónlist. Ég var að
gera tónlist með félaga mínum Daníel í grúpp-
unni Ríkisstjórnin. Hann hrósar mér bara og
vill gera tónlist með mér. Mánuði eftir að við
hittumst fyrst vorum við komnir með plötuna
Ananas, sem er fyrsta platan okkar,“ segir
JóiPé, Jóhannes Damian Patreksson, en þeir
náðu vel saman frá upphafi.
Hvernig fannst þér að hann hefði samband
við þig á Facebook? Ákvaðstu strax að hitta
hann?
„Nei, alls ekki,“ segir Jóhannes en honum
fannst gaman að fá hrós. Hann vissi hver
Kristinn væri en þeir höfðu ekki hist. „En svo
sendi hann mörg skilaboð á mig eftir þetta.
Næstum á hverjum degi, alltaf að biðja mig að
hitta mig og taka stúdíósessjón. Í lokin leyfi ég
honum að koma í hitting og það endaði bara
mjög vel,“ segir hann.
En hvernig vissir þú Kristinn að þið mynd-
uð passa svona vel saman?
„Ég var frekar hungraður í að gera tónlist,
sá tækifæri þarna og greip það bara, tók af
skarið og það borgaði sig,“ segir Kristinn.
Þeir smullu saman og hafa gert tvær plötur
á um hálfu ári sem eru mikil afköst. „Þetta er
mikil vinna, mikið hark sem fer í þetta,“ segir
Kristinn. „En við höfum bara gaman af
þessu,“ skýtur Jóhannes inn í.
„Það var tímabil sem maður var að reyta af
sér hárið af pirringi,“ segir Kristinn en þó að
samstarfið hafi verið áreynslulaust segja þeir
síðari plötuna hafa verið meiri vinnu, hún sé
fagmannlegri í alla staði.
„Það bara kostar sitt, sinn tíma og sína
vinnu en það borgaði sig,“ segir Kristinn.
Hver er ykkar leið inn í tónlist? „Við vorum
báðir að bítboxa á sínum tíma, ég tók þátt í
Hæfileikakeppni Íslands og hann í Ísland Got
Talent. Það gekk misvel hjá okkur,“ segir Jó-
hannes. „Ég komst ekki áfram,“ segir Kristinn
og heldur áfram: „Ég var að bítboxa og svo
var ég í Sönglist. Annars hefur hipp hopp og
rapp ekki verið lengi partur af lífi mínu, ég fór
ekki að gera hipp hopp fyrr en í desember eða
janúar. Annars hef ég alltaf eitthvað verið að
söngla eða leika mér á sviði,“ segir Kristinn.
„Ég byrjaði í rappi eða hipp hoppi í tíunda
bekk, eftir að ég sá myndina Straight Outta
Compton í bíó. Eftir það langaði mig að byrja
að rappa og byrjaði með vini mínum Danna,
við vorum eitthvað að leika okkur,“ segir Jó-
hannes en hann og Kristinn kynntust síðan
eftir að þeir byrjuðu í menntaskóla en Jóhann-
es er í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og
Kristinn í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði
þar sem hann er mikið í félagslífinu.
Myndbandið endurspeglar
persónuleikana
Í myndbandinu við „B.O.B.A.“ er Kristinn á sí-
felldri hreyfingu, kvikur og léttur á meðan Jó-
hannes kemur inn með krafti með djúpri rödd
sinni, haggast ekki eins og klettur. Skyldi
myndbandið endurspegla persónuleika þeirra,
er Jóhannes rólegri? „Klárlega, ég er mjög ró-
legur. Hann er mikill flippkisi. Orkubolti. Við
erum gjörólíkir,“ segir Jóhannes.
„Já, ég er orkubolti og hef vanalega meiri
orku í mér heldur en Jóhannes. Við erum and-
stæður í öllu, hegðun og talsmáta, segir Krist-
inn. „Þetta eru svona jin og jang-áhrif, svart
og hvítt,“ segir hann og vísar til þess að þeir
passi mjög vel saman þrátt fyrir að vera ólíkir.
Hvernig er lífið í Flensborg?
„Bara æðislegt. Þetta er þriðja árið mitt.
Allir góðir vinir. Ég elska þennan skóla og er
að gera mjög skemmtilega hluti þarna. Ég er í
Morfís. Hef verið varamaður í Gettu betur. Ég
hef verið formaður í vídeóráði. Ég er varafor-
seti núna. Þetta er allt mjög gaman.“
Báðir hefja þeir nám eftir að framhalds-
skólanám var stytt um eitt ár.
„Ég var fyrsta árið sem lenti í þessu en
Flensborg er náttúrlega fjölbraut og var ekki
að búast við að allir kláruðu á þremur árum,“
segir Kristinn sem ætlar sér ekki að klára á
þremur árum.
Hvað finnst ykkur um þessa styttingu? „Ég
var í ungmennaráði Samfés þegar þetta átti
sér stað og mótmælti þessu mikið því þetta er
brot á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Þú breytir ekki vinnustað barna eða unglinga
á þess að þau komi að því. Það var ekkert hler-
að hvað krökkunum þætti um þetta,“ segir
Kristinn.
„Þetta meikar ekki sens, menntaskólinn er
þetta breik frá grunnskóla yfir í háskóla, þú
átt að vera að skemmta þér þarna og aðeins að
finna þig. Ég gæti verið að klára eftir eitt ár
en ætla ekki að gera það. Ég er persónulega
ekki tilbúinn til að fara út í atvinnulífið, ég er
ekki tilbúinn að læra eitthvað sem ég ætla að
gera restina af lífinu, ég verð þá ennþá bara
átján ára.“
Gengur ykkur best þegar þið hafið nóg að
gera? Lætur eitthvað undan?
„Það er alltaf eitthvað sem situr á hakanum.
En mér líður best ef það er eitthvert plan í
gangi. Þó að maður taki frí stundum er best að
geta verið með puttana í öllu,“ segir Kristinn.
„Það er gaman að hafa nóg að gera,“ segir
Jóhannes sem fyrir utan skólann og tónlistina
æfir handbolta með 3. flokki Hauka.
Hann svarar því játandi að það sé mikið að
gera en hann er að fara á æfingu eftir viðtalið,
þá fyrstu í nokkra daga.
„Ég þurfti að taka mér tveggja vikna pásu
frá handboltanum af því að það er búið að vera
svo mikið að gera út af plötunni og ég er að
byrja aftur á eftir,“ sagði hann.
Þekkja ekki hann og pabba
hans í sundur
Eitt í textanum í laginu „B.O.B.A.“ vekur at-
hygli en það er þegar Kristinn syngur „og
þekkir mig og pabba minn ekki alltaf í sund-
ur“, lína sem blaðamaður hefur mjög gaman
af. Hefur þetta gerst?
„Það á ekki að gerast, það væri fáránlegt ef
það myndi gerast. Það er kómíkin í þessu.
Þetta er bara algjört bull og lélegur brandari,“
segir Kristinn.
Kannski er líklegra að einhver myndi rugl-
ast á Jóhannesi og pabba hans, Patreki Jó-
hannessyni handboltakappa. Þeir eru líkir í út-
liti.
„Núna allavega með skallann, ég var að
raka mig bara í gær. Ég er oft kallaður Patti,
sérstaklega af þjálfaranum mínum, hann kall-
ar mig það bara óvart.“
Hvernig er að hafa hann sem fyrirmynd í
handboltanum? „Bara frábært. Hann sýnir
mér stuðning í öllu sem ég geri, hvort sem það
er handbolti eða tónlist.
Er einhver pressa frá honum að einbeita
þér að handboltanum umfram tónlist?
„Nei alls ekki. Það er hann sem stakk upp á
pásunni núna, sem er bara frábært,“ segir
hann um hléið sem hann tók í kringum plötu-
útgáfuna.
Mikill stuðningur frá fjölskyldu
Það er vissulega gott að eiga foreldra sem
styðja mann.
„Foreldrar okkar styðja okkur mjög mikið,“
segir Jóhannes.
„Foreldrar okkar eru frábærir og eiga hrós
skilið fyrir að nenna okkur,“ segir Kristinn.
„Þau eru inni í þessu öllu,“ segir Jóhannes.
Systkini þeirra sýna þeim líka stuðning og
eru áhugasöm um það sem þeir gera. „Nema
kannski yngsta systir mín en hún er bara
þriggja ára. Hún raular reyndar lögin alveg
stundum með pabba í bílnum,“ segir Jóhann-
es.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er
föðurbróðir Jóhannesar og sú spurning vaknar
meira í gamni en alvöru hvort þeir hafi notað
samböndin til að taka lagið á Bessastöðum.
Svarið er nei en þeir eru engu að síður á leið-
inni í afmæli á Bessastöðum.
„Jóhannes á afmæli á mánudaginn, við ætl-
um að fá okkur mat á Bessastöðum,“ segir
Kristinn. „Þá verður kaffiboð á Bessastöðum.
Frændi minn, sonur Guðna, á líka afmæli á
mánudaginn, það verður svona sameiginlegt
lítið boð,“ segir Jóhannes.
Stutt í húmorinn
Í textanum í „B.O.B.A.“ er önnur setning sem
vekur athygli blaðamanns, „ég fíla stelpur sem
að strauja kortið mitt“ en í menntaskóla eiga
flestir frekar lítinn pening.
„Ég átti eiginlega ekkert kort í allt sumar.
Þetta er bara djók lína, að eiga kærustu sem
er alltaf að eyða peningum manns,“ segir
Kristinn en það er nóg af húmor í laginu og
ákveðinn léttleiki.
„Þetta lag er aðallega eitthvert djók, brand-
arakonsept, þó að lagið sé alvöru og við gerum
tónlist af alvöru, þá er skemmtilegra að vera
nett léttur á því,“ segir Kristinn.
Annað sem er hægt að hafa gaman af í texta
lagsins er línan „fyrsta deiti, púlla upp í i30
Hyundai“ en þetta er ekki beint algengasta
bílategundin í rapplögum. Reyndar er það svo
samkvæmt fréttaveitunni Bloomberg að í vin-
sælustu rapplögum síðustu þriggja ára í
Bandaríkjunum er oftast minnst á Rolls-Roys
þegar rappað er um vörumerki. Ferrari er í
öðru sæti; Porsche, Chevrolet, Lamborghini,
Bentley, Cadillac og Mercedes Benz eru líka á
topp tólf. Hyundai er ekki á listanum. Sú bíla-
tegund samt er líklega mun nær veruleika ís-
lenskra ungmenna heldur en hinar.
Alltaf haft leiklistarbakteríuna
Kristinn kann að bregða sér í ýmis hlutverk en
hann hefur lengi verið í leiklist.
„Ég er búinn að vera að leika síðan ég man
eftir mér. Ég var í Þjóðleikhúsinu tvö leikár í
röð. Síðan hef ég verið í Sönglist í Borgarleik-
húsinu, og leikið í auglýsingum hér og þar og
stuttmyndum. Ég lék í Bjarnfreðarson líka,“
segir Kristinn sem var ungur Georg. „Ég hef
alltaf haft þessa leikaraveiru.“
Hvernig finnst þér það hjálpa þér í tónlist-
inni. Hvernig fer þetta saman? „Það var létt-
ara að fara á svið í fyrsta skipti með sína eigin
Vinir að gera tónlist
JóiPé og Króli slógu í gegn með laginu „B.O.B.A.“ sem er vinsælasta lag landsins um
þessar mundir. Þeir hafa aðeins gert tónlist saman í nokkra mánuði en samstarfið hófst
eftir að Kristinn sendi Jóhannesi ítrekað skilaboð á Facebook. Núna eru þeir bestu vinir
og hafa sent frá sér tvær plötur. Þeir hafa báðir önnur áhugamál en Jóhannes er á kafi í
handboltanum á meðan Kristinn er smitaður af leiklistarbakteríunni.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
’ Ég er orkubolti og hef vana-lega meiri orku í mér helduren Jóhannes. Við erum and-stæður í öllu, hegðun og tals-
máta. Þetta eru svona jin og
jang-áhrif, svart og hvítt.