Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Page 26
Skugga-Sveinn er fjórða lína ErnuEinarsdóttur fyrir Geysi en húnnam við Gerrit Rietveld-aka-
demíuna í Amsterdam og Central Sa-
int Martins í London.
Línan Skugga-Sveinn var kynnt með
svolítið öðru sniði en flestar hefð-
bundnar tískusýningar þar sem hún
kom í verslanir daginn eftir sýningu.
Aðspurð hvers vegna sú leið hafi verið
farin svarar Erna:
„Þetta er skemmtileg leið til að
kynna nýjar vörur og ég held að tísku-
heimurinn sé að þróast smám saman í
þessa átt. Það er alltaf pínu súrt að
skoða nýjar sýningar og svo koma föt-
in í verslanir sex mánuðum seinna. En
annars finnst okkur þetta bara
skemmtileg leið inn í haustið; nýjar
vörur að koma í búðina, lína sem við
erum búin að vera að hanna og þróa í
marga mánuði og gaman að fagna því
með sýningu og skemmtun.“
Sækir innblástur í efnin
Aðspurð hver megináhersla línunnar
hafi verið segist Erna að miklu leyti
hafa byggt hana upp á ákveðnu
munstri sem var gegnumgangandi í
línunni. „Ég hef ekki gert það áður og
fannst það koma vel út. Eg vildi líka
hanna flottar yfirhafnir og við erum
núna að leggja lokahönd á um fjórar
nýjar yfirhafnir, bæði fyrir konur og
herra. Það var svona næsta skref hjá
okkur að bæta því við línuna og búið
að vera á „to-do“-listanum lengi og því
mjög gaman að geta loksins kynnt
yfirhafnir frá Geysi.“
Erna segist alltaf sækja mikinn inn-
blástur í efnin sem hún notar í línum
sínum. „Ég byrja oftast á að finna fal-
legt garn og efni og læt það leiða mig
svolítið áfram. En fyrir þessa línu var
ég líka að skoða málverk eftir Guð-
mundu Andrésdóttur og munstur og
liti sem hún vann með.“
Efnin eru síðan valin út frá hvað
heillar hverju sinni. „En þetta er líka
vetrarlína þannig að ég fæ að vinna
með t.d. merinóull, sem er eitt af mín-
um uppáhaldsefnum,“ útskýrir Erna
og bætir við að sér finnist í raun
langskemmtilegast að vinna
með ullarefni, bæði blönduð
og hrein. „Vönduð ull er bara
svo falleg í fatnaði.“
Yfirhafnir
væntanlegar
Erna segist yfirleitt
vinna Geysis-línurnar
með svipuðu móti; það
er alltaf upphafs-
punktur og einhver
þróun í efnum og
fleiru en hún hannar
þó alltaf fatnað sem
tengist hugarheimi
hennar.
Hún segist yfirleitt
vinna mikið með gráa
tóna sem hún parar
síðan við nokkra
sterka liti. „Djúpblár
er alltaf í miklu uppá-
haldi en litirnir fyrir
þessa línu voru litir sem
ég tók úr einu af mál-
verkum Guðmundu og
það þróaðist síðan
áfram. Mér fannst líka
áhugavert að vinna með
nokkra tóna af sama
litnum og þannig endaði ég
til dæmis með marga rauða
tóna.“
Heiti línunnar, Skugga-
Sveinn, er skírskotun í leirverk
og leiktjöld sem máluð voru af
Sigurði málara Guðmundssyni fyrir
fyrstu uppsetningu verksins árið 1862.
Aðspurð hvernig áhugi Ernu á Sigurði
kviknaði segist hún hafa kynnst hon-
um fyrst í bók Æsu Sigurjónsdóttur,
Til gagns og til fegurðar. „Hann vakti
áhuga minn sem listamaður og hönn-
uður og saga hans er bæði skemmtileg
og fróðleg, hann var mikill pælari. En
ég veit ekki hvort ég myndi endilega
kalla mig aðdáanda hans. Meira er
hann einhver sem hefur vakið áhuga
minn sem hönnuður.“
Aðspurð hvort hún eigi sér uppá-
haldsflík úr línunni segir Erna svolítið
erfitt að gera upp á milli. „Sjálf fíla ég
allar flíkurnar en kannski finnst mér
standa upp úr bæði þunni merinóull-
arkjóllinn, Ásta, sem og teppakáp-
urnar sem voru á sýningunni. Svo eru
sumar flíkur í uppáhaldi hjá mér bara
vegna þess að það var gaman að þróa
þær, vinna með nýja tækni eða ný
efni. Þannig er kjóllinn Ella, með
bylgjumunstrinu, í miklu uppáhaldi
þar sem ég notaði nýja prjónatækni
sem við höfum ekki notað áður og það
var skemmtilegt.“
Bæta við heimilisvörum
Fram undan hjá Ernu og Geysis-
teyminu er næsta lína, Vetur 2018.
„Þetta er svo langt ferli, margir vita
ekki hvað það tekur langan tíma að
hanna og þróa eina svona línu en þetta
tekur um ár, frá hönnun yfir í að var-
an kemur úr framleiðslu og í verslanir
okkar,“ útskýrir hún. „Einnig erum við
að bæta við herravörum, skyrtum,
peysum og yfirhöfnum, sem og örfáum
barnavörum, göllum og peysu.“
Þá vinnur teymið einnig að því að
hanna nýjar heimilisvörur, bæta hand-
klæðum og sængurverum við úrval
Geysis af teppum. „Það var svona
næsta „lógíska“ skref og verður gam-
an að sjá hvernig það mun ganga.
Annars er ég sjálf að fara í fæðingar-
orlof núna á næstu vikum og við fjöl-
skyldan að flytja svona rétt áður en
nýi meðlimurinn bætist í hópinn þann-
ig að það er nóg fram undan, bæði í
vinnunni og heima fyrir.“
„Vönduð ull er bara svo falleg í fatnaði“
Erna Einarsdóttir fatahönnuður sýndi nýja vetrar-
línu Geysis í síðustu viku. Línan ber heitið
Skugga-Sveinn og er meðal annars innblásin af
verkum Guðmundu Andrésdóttur.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Ljósmyndir/Saga Sig
Erna Einarsdóttir vinnur aðallega
með gráa tóna sem hún parar
síðan við sterkari liti.
TÍSKA
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.10. 2017
Sunnudaginn 1. október verður haldinn fatamarkaður í Gamla bíói,
Ingólfstæti 2a, á milli klukkan 13 og 17. Þar munu nokkrar af smekkleg-
ustu konum landsins selja notaðar merkjavörur, töskur, skó og fylgihluti.
Fatamarkaður í Gamla bíói