Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Side 35
1.10. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 20.-26. SEPTEMBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Með lífið að veðiYeonmi Park
2 Gagn og gamanHelgi Elíasson/Ísak Jónsson
3
Stúlkan sem gat ekki
fyrirgefið
David Lagercrantz
4 KanínufangarinnLars Kepler
5 Verstu börn í heimiDavid Walliams
6 Independent PeopleHalldór Laxness
7 KalakKim Leine
8 UmsáturRóbert Marvin
9 HringiðanFrode Granhus
10 Iceland In a BagÝmsir höfundar
1 Gagn og gamanHelgi Elíasson/Ísak Jónsson
2 Verstu börn í heimiDavid Walliams
3 Engillinn í eyjunniLevi Henriksen
4
Goðheimar 8
– Brísingamenið
Peder Madsen
5 SvartidauðiKim M. Kimselius
6
Hulduheimar 1
– Álagahöllin
Rosie Banks
7
Lubbi finnur málbein
Eyrún Í. Gísladóttir/ Þóra
Másdóttir/ Þórarinn Eldjárn
8
Afi sterki – Hættuför að
Hlíðarvatni
Jenný Kolsöe
9 Hvernig passa á ömmuJean Reagan
10 Allir geispaAnita Bijsterbosch
Allar bækur
Barnabækur
Ég var svo heppin að eiga eftir að
lesa eina bók eftir Auði Övu, Und-
antekninguna. Ég fór í ferðalag til
Kanada fyrir stuttu
og gat notið þess að
lesa hana í ferðinni.
Það er svo mikill
léttleiki í bókunum
hennar Auðar, svo
auðvelt að lesa þær,
en þær eru ekkert
léttlestrarefni, það er svo margt
undirliggjandi.
Núna er ég að lesa Með lífið að
veði eftir Yeonmi
Park. Hún liggur á
náttborðinu hjá
mér, ég get ekki
sofnað nema að lesa
eitthvað. Ég er rétt
komin inn í hana,
þessa hörmungar-
sögu. Það er eins og maður sé að
lesa um eitthvað sem ekki er til,
eitthvert plat.
Síðan er ég að
lesa eldri bækur
sem ég hef ekki haft
tíma til að lesa og
las Leið eftir Heið-
rúnu Ólafsdóttur.
Mér fannst hún afar
sérstök, en að mörgu leyti góð. Ég
sé ekki eftir að hafa lesið hana,
hún skilur eftir sig mikið að hugsa
um.
ÉG ER AÐ LESA
Marta Hild-
ur Richter
Marta Hildur Richter er forstöðu-
kona Bókasafns Mosfellsbæjar.
Þórbergur og allífið
Þegar Þórbergur Þórðarson stóð á sjö-
tugu fékk útgefandi hans ungan blaða-
mann af Morgunblaðinu, Matthías Jo-
hannessen, til þess að taka viðtal við
Þórberg. Svo vel líkaði Þórbergi við
Matthías að úr varð viðtalsbókin Í komp-
aníi við allífið sem gefin var út 12. mars
1959. Bókin hefur nú verið gefin út að
nýju, aukið við hana viðtali sem Matthías
tók við Þórberg fimm árum síðar og
Matthías skrifar um vináttu þeirra Þór-
bergs og Margrétar, konu hans.
Spennubók fyrir börn
Engillinn í eyjunni er spennubók fyrir börn eftir
norska listamanninn Levi Henriksen. Í bókinni
segir frá stúlku sem býr aðra hverja viku hjá móð-
ur sinni og hina hjá föður sínum. Hún er ekki sátt
við stjúpforeldrana, finnst þau bæði frekar þreyt-
andi og hefur engan áhuga á að verða stór. Áætl-
un hennar til að leiða foreldra sína saman aftur
hefur örlagaríkar afleiðingar.
Sigurður Helgason þýddi.
Frönsk metsölubók
Fyrir Barnagælu hlaut Leïla Slimani Goncourt-
bókmenntaverðlaunin og bókmenntaverðlaun
tímaritsins Elle og bókin varð metsölubók í Frakk-
landi. Í bókinni segir frá því er Myriam og Paul
ráða til sín fullorðna konu til að gæta bús og barna.
Louise er hin fullkomna barnfóstra og verður
ómissandi hluti af fjölskyldunni, en smám saman
kemur í ljós að hún er ekki öll þar sem hún er séð.
Friðrik Rafnsson þýddi.
NÝJAR BÆKUR
Leiðarvísir um þorp heitir ný ljóðabók eftir JónasReyni Gunnarsson, sem er 23. bókin í Meðgöngu-ljóðaröð Partusar sem helguð er nýjum skáldum.
Þetta er önnur bók Jónasar sem Partus gefur út, en smá-
sagan Þau stara á mig kom út í Meðgöngumálaröð Part-
usar fyrir tveimur árum.
Jónas lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egils-
stöðum og grunn- og meistaranámi í ritlist frá Háskóla
Íslands. Hann hefur birt ljóð í Tímariti Máls og menn-
ingar og Stúdentablaði Háskóla Íslands þar sem hann
hlaut fyrsta sæti í árlegri ljóðakeppni blaðsins 2014. Árið
2015 varð hann hlutskarpastur í leikritunarkeppni sviðs-
listadeildar Listaháskóla Íslands með verkinu Við deyj-
um á Mars.
Eins og nefnt er lauk Jónas ritlistarnámi við Háskóla
Íslands og hann segir það hafa lengið beint við að fara í
það nám, svo beint að hann man ekki eftir því að hann
hafi verið að taka neina ákvörðun. „Ég hef verið að skrifa
lengi, gerði myndasögur og skrifaði leikrit þegar ég var í
menntaskóla og þegar vinur minn benti mér á þetta var
svo augljóst að fara í það. Það var frábært að fá tækifæri
til að helga sig skrifum og að fá tíma til þess og vera und-
ir leiðsögn góðra kennara. Það var líka gott að vera í
kringum fólk sem er á sömu línu og með sömu markmið
og að gera það sama, það er ekki hægt að vera einn í
neinu sem maður gerir.“
Ljóðin í Leiðavísi um þorp urðu til þegar Jónas fékk
styrk frá Uppbyggingarsjóði Austurlands, en sá styrkur
gerði honum kleift að helgað sig því að skrifa í nokkra
sumarmánuði „og ég vann svo úr því fyrir bókina“. Eins
og styrkurinn bendir til er Jónas að austan, frá Fellabæ,
ólst þar upp fram yfir tvítugt og tekur undir það að hann
hafi tekið þorpið með sér inn í ljóðin. „Uppeldisstaðurinn
er fastur í mér, þó að ég skrifi mikið um Reykjavík líka.
Þetta eru svo mikil mótunaráhrif eins og hjá öllum.“
Þorpið frá ýmsum hliðum
– Í bókinni birtist þorpið frá ýmsum hliðum, en sá sem
yrkir er líka að leita að leið út úr þorpinu eins og segir í
ljóðinu Útgönguleiðir: „Þorpið er hérna fyrir þig. Það
var byggt svo þú gætir verið gestur í því. Það er hannað
til að móta þig eins og stein sem rennur eftir árstraumi
niður að sjó. // Þessi straumur er leið þín útúr þorpinu.“
„Það væri fullkomið ef það væri bara hálftími á milli og
ég gæti notið borgarinnar og þorpsins, en ég á mjög bágt
með að útskýra hvað ég meina, lesanda er velkomið að
lesa í þetta eins og honum sýnist.“
Eins og Jónas nefnir hefur hann samið leikrit frá því á
menntaskólaárum sínum og sigraði leikritunarkeppni
eins og nefnt er að ofan. Hann segist þó hafa lagt leik-
ritun á hilluna í bili og helgað sig annarskonar skáld-
skap, en ný skáldsaga hans, Millilending, kemur út á
næstu vikum á vegum Partusar, aukinheldur sem hann
er önnum kafinn við að skrifa aðra skáldsögu til. „Það
var bara skrúfað frá krananum og ég verð að mæta, sitja
við og skrifa.“
Skrúfað frá krananum
Í nýrri ljóðabók yrkir Jónas Reynir Gunnarsson um þorpið sem hann ber innra
með sér og um leiðina þaðan. Hann ólst upp austur á Héraði og segir að
uppeldisstaðurinn sé fastur í sér þó að hann skrifi mikið um Reykjavík líka.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Jónas Reynir Gunnarsson situr við og skrifar af kappi.
Morgunblaðið/Golli
Ein öflugustu meltingarensím
ámarkaðnum í dag
l Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og
öll efnaskipti líkamans.
l Betri melting, meiri orka!
l Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans),
Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase).
l Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum.
l 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða
annarra flæðiefna.
Útsölustaðir: Apótek og heilsubúðir
„Ég hef haft psoriasis gigt í meira en tuttugu ár og hef tekið töluvert af lyfjum þess vegna.
Fyrir nokkrum árum fór ég að eiga við magavandamál að stríða sem eru líklegast tilkomin
vegna lyfjanotkunar en fyrir utan magaónot og uppþembu var ég alltaf þreytt og orkulaus.
Ég hef prófað svo margt gegnum tíðina en fundið lítinn mun, þar til ég kynntist Enzymedica
ensímunum. Þvílíkur munur og það besta er að ég fannmuninn strax. Ég er ekki lengur
útblásin eftir máltíðir, hægðir urðu fljótt reglulegar, orkan margfaldaðist og ég er ekki að
kljást við magavandamál lengur.“
Anna Gréta
Ekki lengur útblásin eftir máltíðir!
Digest Gold
Ensím geta hjálpað til við að slá á óþægindi svo sem
loftmyndun, uppþembu, meltingartruflanir og meltingaróreglu