Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Síða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.10.2017, Síða 40
SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2017 Klámkóngurinn Hugh Hefner lést í vikunni en eftirmælin skiptast í tvo hópa. Annars vegar eru það þeir sem lofa hann sem frumkvöðul frjálsrar fjölmiðl- unar og kynfrelsis og svo hinir sem finnst ekki við hæfi að lofsyngja mann sem byggði veldi sitt á kúgun kvenna. Kim Kardashian West, Jenny McCarthy og Carmen Electra deildu ljúfum minningum um Hefner á samfélagsmiðlum en þær hafa allar verið á forsíðu Playboy. Fyrir öðrum konum stendur tímaritið fyrir kúgun. Rithöfundurinn Jessica Valenti skrifaði á Twitter: „Það er rétt að minnast Hughs Hefner fyrir að hafa barist gegn hægri umvöndunarhyggju á undan flestum en vinsamlegast ekki gleyma því að til þess að gera það kom hann fram við konur eins og þær væru rusl“. Hefner verður grafinn í hvelfingu við hlið Marilyn Monroe og eru aðdáendur hennar ósáttir enda birti hann nektarmyndir af Monroe í óþökk hennar. AFP Skiptar skoðanir um arfleifð Eftirmælin skiptast í tvo hópa. Hugh Hefner lést í vikunni en skiptar skoðanir eru um arfleifð klámkóngsins, sem gaf út Playboy. Margir hafa minnst Playboy-útgefandans við stjörnu hans í Hollywood. Morgunblaðið fylgdist með því þegar veginum í gegnum Al- mannagjá á Þingvöllum var lokað fyrir bílaumferð 1. nóvember 1967. Það fylgdi sögunni að athöf- in hafi ekki verið hátíðleg og fátt fólk viðstatt. „Þó má búast við að flestir Íslendingar, sem þennan veg hafa ekið, sakni þess að geta ekki lengur orðið þeirrar reynslu aðnjótandi að aka niður í skugga- lega gjána ofan úr birtunni eink- anlega börn og unglingar, sem oftast hefur fundizt þetta vera hið merkilegasta, þegar þau hafa komið á Þingvöll í fyrsta skipti. Og þeir eru margir, sem skilja ekki nauðsynina á þessu. Sjálfsagt hefur þó Þingvallanefnd sitthvað til síns máls,“ stendur þar. „Hvort fólk almennt fer nú upp í gjána gangandi, er ekkert hægt um að segja. Útlendingar voru m.a.s. tregir að fara út úr bíl- unum í gjánni og varð nánast að toga þá út. Auðvitað er hugs- anlegt að byggja göngubrýr yfir Öxará úr túnfætinum hjá Þing- vallabæ, og er ekki ólíklegt að svo verði gert. Eftir reynslu undanfarinna ára má samt búast við mikilli umferð fólks um gjána,“ segir einnig í fréttinni. GAMLA FRÉTTIN Útlend- ingar togaðir út Síðustu bílarnir aka niður Almannagjá áður en hliðinu var lokað. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Brittany Snow leikkona Reese Witherspoon leikkona og framleiðandi Eva Laufey Kjaran matgæðingur og sjónvarpskonaSkeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is naver collection GM 2152 Borðstofuborð DESALTO Skin keramik plata naver collection GM 7724 naver collection GM 9942 Ten armstólar CONDEHOUSE Ten borðstofuborð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.