Fréttablaðið - 10.05.2018, Side 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Íslenska
þjóðin gerir
sér fulla grein
fyrir því að
þarna eru
hættuleg öfl á
ferð og vill
ekki veita
þeim brautar-
gengi.
Því til við-
bótar eiga
þessar
stjarnfræði-
legu tölur
ekkert
sameiginlegt
með því
markmiði að
gera vel við
hæft starfs-
fólk sem
hefur mikla
ábyrgð.
Á hvaða vegferð er samfélagið okkar eiginlega, er spurning sem þjóð og þing eiga að vera að spyrja sig þessa dagana.
Förum yfir 7 staðreyndir:
1. Það eru 26 bankamenn, sem að stærstum hluta
vinna hjá ríkisbanka, sem fá einn milljarð í laun.
Þetta er upphæð sem er einn tíundi af því sem
ríkisstjórnin tímir að setja í allar barnabætur
landsmanna og er einn fjórði af því sem sett er í
allar vaxtabætur almennings.
2. Forstjórar hefðbundinna íslenskra kauphallar-
fyrirtækja eru með 1-2 milljónir í laun, á viku!
3. Forstjórar, þar með talið forstjórar ríkisfyrirtækja,
hafa verið að fá mánaðarlega hækkun launa sinna
sem nemur heilum mánaðarlaunum ljósmóður-
innar.
4. Kjararáðshópurinn, þar á meðal þingmenn,
hækkaði um tugi prósenta í launum milli ára.
5. Útgerðarmaður gengur út nýlega með 22 þúsund
milljónir króna í vasanum vegna nýtingar á sam-
eiginlegri auðlind þjóðarinnar.
6. Eitt prósent landsmanna á meiri hreinar eignir en
80 prósent Íslendinga eiga.
7. Ríkustu 10 prósent landsmanna tóku til sín tæpan
helming allra hreinna eigna sem urðu til 2016.
Auðvitað á fólk að uppskera eins og það sáir. En ekki
gera ljósmæður það og ekki gera kennarar, lögreglu-
menn eða eldri borgarar það heldur. Því til viðbótar
eiga þessar stjarnfræðilegu tölur ekkert sameiginlegt
með því markmiði að gera vel við hæft starfsfólk
sem hefur mikla ábyrgð.
Sjálftökustétt
Við erum ein þjóð í þessu landi. En hér er að
myndast sjálftökustétt ofurlaunamanna sem með
græðgi sinni og dómgreindarbresti virðast ekki
eingöngu vera að segja sig úr samfélaginu heldur
setja þeir allt samfélagið í uppnám vegna komandi
kjaraviðræðna.
Sjö staðreyndir
Ágúst Ólafur
Ágústsson
þingmaður
Samfylkingar-
innar
Ekki er öllum Íslendingum jafn vel við þá staðreynd að þeir búa í fjölmenningarsam-félagi. Öfgaöfl sem vilja snúa þróuninni við hafa hreiðrað um sig og draga hvergi af sér þegar kemur að því að breiða út boðskapinn um hætturnar sem stafa af því að útlendingar
setjist hér að í stórum stíl. Búseta múslima hér á landi er
sérstakt áhyggjuefni þessa hóps og þar heyrist gjarnan
frasinn um múslimavæðingu Íslands. Ekki þarf að hafa
mörg orð um mannfyrirlitninguna sem felst í viðhorfi
þessa hóps. Hún blasir við, ekki síst á netinu þar sem
dólgar skrifa ákafir sinn viðbjóð.
Það eru meðmæli með íslenskri þjóð að þessum
öflum hefur lítið sem ekkert orðið ágengt í íslenskri
pólitík. Samt má ekki gleyma þeirri nöturlegu staðreynd
að Framsóknarflokkurinn náði fyrir síðustu borgar-
stjórnarkosningar tveim borgarfulltrúum inn í borgar-
stjórn með málflutningi sem beindist gegn múslimum.
Borgarfulltrúarnir tveir hafa síðan þá sýnt tilburði til
iðrunar.
Vitanlega hyggjast hinir yfirlýstu andstæðingar
fjölmenningarsamfélagsins hvergi gefast upp í baráttu
sinni. Í komandi sveitarstjórnarkosningum bjóða fram
flokkar, Íslenska þjóðfylkingin og Frelsisflokkurinn,
sem hafa það beinlínis á stefnuskrá sinni að berjast gegn
því mikla samfélagsmeini sem þeir telja fjölmenningu
vera. Framboð þeirra sem ala á hatri er það sorglegasta
í þessari kosningabaráttu en um leið er gleðilegt að sjá
að fylgi við þá í skoðanakönnunum er nánast ekki neitt.
Íslenska þjóðin gerir sér fulla grein fyrir því að þarna eru
hættuleg öfl á ferð og vill ekki veita þeim brautargengi.
Raddir andstæðinga fjölmenningarsamfélagsins
munu hljóma í kosningabaráttunni og gætu orðið æði
háværar. Í kappræðum eiga aðrir frambjóðendur ekki að
leiða þennan ógeðfellda málflutning hjá sér heldur svara
honum af ákveðni og festu og taka sér þannig stöðu með
mannúðinni.
Það var beinlínis notalegt að hlusta á bæjarstjóra
Reykjanesbæjar, Kjartan Má Kjartansson, ræða í sjón-
varpsfréttum um fjölmenningarsamfélagið á svæðinu
og mikilvægi þess að hlúa að því. Um 90 prósent þeirra
sem flutt hafa á Suðurnesin síðastliðið ár eru erlendir
ríkisborgarar og töluð eru 30 tungumál í leik- og grunn-
skólum Reykjanesbæjar. Andstæðingar fjölmenningar
hafa öruggleg sopið hveljur við þessa frétt og séð mikla
vá á ferð. Það fór hins vegar enginn hrollur um hinn
ágæta bæjarstjóra. Hann sá þarna fegurð fjölbreytn-
innar. Hann sagði þetta vera spennandi fjölmenningar-
samfélag. „Við erum öll að læra og þurfum að standa í
lappirnar og gera allt sem við getum til að gera samfélag
okkar aðlaðandi fyrir fólk, óháð því hvaðan það kemur,“
sagði hann.
Úrslit sveitarstjórnarkosninga verða vonandi á þann
hátt að allir bæjarstjórar landsins hugsi á sama hátt og
bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Nýir íbúar landsins, frá
mörgum og ólíkum löndum, laða fram fjölbreytileika.
Án alls þessa fólks, sem hér hefur sest að, væri umhverfið
fátæklegra og lífssýn okkar þrengri. Við fögnum nýjum
íbúum, óttumst þá ekki.
Hættuleg öfl
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 155.000 m.vsk
Midea MOB12
Max 4,92 kW
2,19 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,44)
f. íbúð ca 60m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
Hægfara og mengandi ASÍ
Stéttarfélagið Framsýn hefur for-
dæmt nýja auglýsingaherferð ASÍ
þar sem launafólk er beðið um
að „leyfa skynseminni að ráða“.
Þess er krafist að skrúfað verði
umsvifalaust fyrir boðskapinn
enda sæti furðu að heildarsamtök
launafólks vari við verkföllum
og tali fyrir samræmdri láglauna-
stefnu. Skynsemisslagorðið leiðir
hugann að klúbbi Trabant-eig-
enda, sælla minninga, sem hét
„Skynsemin ræður“. Trabantinn
var hægfara, knúinn af tvígengis-
mótor og var bæði hljóð- og loft-
mengandi í meira lagi. Þá þótti
hann heldur hallærislegur, svo
mjög að sá ofsótti minnihluti sem
átti Trabba fann sig knúinn til þess
að þjappa sér saman í félagsskap
þeirra sem litnir voru hornauga í
umferðinni. Svolítið eins og ASÍ?
Þjóðsöguráð
fyrir fjármálaráðherra
Fréttablaðið.is sagði í gær frá
málverkasýningu sem Þrándur
Þórarinsson opnar í Kaupmanna-
höfn 19. maí. Þar verður meðal
annars málverkið Skollabuxna-
Bjarni, sem sýnir Bjarna Bene-
diktsson fjármálaráðherra troða
sér í skollabuxur, eða nábrækur.
Nábrækur eru samkvæmt þjóð-
trúnni þeirrar náttúru að sá sem
klæðist þeim á auðvelt með að
draga sér fé. Skortir það í raun
aldrei, ef rétt er að málum staðið, á
meðan hann er í brókinni sem flá
þarf af dauðum manni, með fyrir-
framgefnu samþykki. Pæling?
thorarinn@frettabladid.is
1 0 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R16 s k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð I ð
SKOÐUN
1
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
D
-4
2
4
C
1
F
B
D
-4
1
1
0
1
F
B
D
-3
F
D
4
1
F
B
D
-3
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K