Fréttablaðið - 10.05.2018, Side 36
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Hér fer Árni yfir
helstu atriðin í
því að skipta um
dekk á nám
skeiði sem hann
hélt á laugardag.
Hér er farið er yfir öll helstu grunn
atriði þegar gera þarf við dekk.
Nemendurnir á námskeiðinu voru mjög áhugasamir í viðgerðunum en allir mættu með eigin hjól.
„Við stillum til dæmis stellið fyrir hvern og einn á námskeiðinu, hagræðum sæti, svo menn sitji rétt, og stýrinu.“
Árni Davíðsson, líffræðingur og formaður Landssamtaka hjólreiðamanna, er með
námskeið um viðgerðir á hjólum
hjá Endurmenntunarskólanum
sem er til húsa í Tækniskólanum.
Árni hefur haldið námskeiðin
tvisvar á ári, vor og haust, undan-
farin ár. Hann segir áhugann mis-
munandi á námskeiðunum en þó
finni hann vel fyrir auknum áhuga
fólks á hjólreiðum.
„Fólk allt frá tólf ára og upp úr
hefur komið á námskeiðin en
allir þurfa að koma með sitt eigið
reiðhjól,“ segir hann. „Við getum
reyndar einungis tekið ákveðinn
fjölda á hvert námskeið. Fólk lærir
ekki almennilega að gera við hjólið
nema hafa það við höndina. Í
byrjun er ég með smá fyrirlestur en
síðan förum við í grunnatriði í við-
gerðum og viðhaldi á hjólunum.
Við stillum til dæmis stellið fyrir
hvern og einn á námskeiðinu, hag-
ræðum sæti, svo menn sitji rétt, og
stýrinu. Síðan förum við í gegnum
smurningu og þrif, stillum gírana
og bremsur auk þess að skipta um
bremsuborða. Loks förum við í
gegnum það að gera við sprungið
dekk, loftþrýsting og umgengni við
gjarðir,“ útskýrir Árni. „Það þarf
að taka hlutina í sundur og setja
saman aftur til að læra.“
Árni segir að oft þurfi fólk að
læra á gírana á hjólinu og stilla
þá. „Það eru nokkrar skrúfur sem
þarf að stilla og oft veit fólk ekki
alveg hvernig á að fara að því. Við
förum yfir þau atriði. Menn spara
sér ákveðinn pening með því að
gera þetta sjálfir og oft eru þessi
vandamál minniháttar. Það sem
nemendur græða á námskeiðinu
og um leið samfélagið er viljinn til
að hjóla og að smá bilanir stoppi
þá ekki.“
Í fyrirlestrinum hjá Árna hann
yfir hjólreiðar og samgöngur auk
öryggisatriða er varða umferð.
Kennir viðgerðir á reiðhjólum
Með auknum reiðhjólaáhuga er meiri þörf en áður á að kunna helstu grunnatriði er varða viðgerðir
á reiðhjólum. Eldri fjallahjól endast lengi en þurfa viðhald. Margir sækja námskeið í Endurmennt-
unarskólanum til að læra einfaldar viðgerðir á hjólum. Slíkt námskeið fór fram um síðustu helgi.
„Aðallega snýst þetta námskeið
þó um viðgerðir og viðhald,“ segir
hann. Fólk kemur bæði með nýleg
reiðhjól og gömul á námskeiðið.
Nýjustu hjólin eru með diska-
bremsum sem Árni segir að þurfi
lítið sem ekkert viðhald. „Það er
auðvitað miklu minna viðhald
á nýjustu hjólunum og oft mun
betri búnaður en á eldri hjólum.
Gömlu bremsurnar á fjallahjólum
eru þannig að það þarf að hugsa
um þær á hverju ári ef menn hjóla
reglulega, en diskabremsunum
þarf maður ekkert að skipta sér
af. Flestir koma með fjallahjólin
en það eru alltaf einhverjir sem
koma með enn eldri hjól, til dæmis
þriggja gíra.“
Árni hjólar sjálfur talsvert eða
um 4.000 km á ári. „Ég hjóla í og úr
vinnu,“ segir hann. „Reiðhjól hafa
verið áhugamál hjá mér og hags-
munamál hjólreiðamanna hafa
alltaf verið mér ofarlega í huga,“
segir hann. Árni hefur skrifað
greinar í blöð um bíllausan lífsstíl
og umferðaröryggi reiðhjóla-
manna. „Um 60% íbúa á höfuð-
borgarsvæðinu hjóla eitthvað en
um 10-15% hjóla reglulega. Fólk
ætti að nýta sér þennan ferða-
möguleika meira í styttri ferðum,“
segir hann en næsta námskeið
verður í byrjun september.
10 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . m A í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÚt AÐ HjóLA
1
0
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
D
-6
4
D
C
1
F
B
D
-6
3
A
0
1
F
B
D
-6
2
6
4
1
F
B
D
-6
1
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
9
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K