Feykir - 27.11.2014, Blaðsíða 4
2 01 44
En þegar dagatölin eru búin til
heima skapast ákveðið vandamál-
Heimatilbúnu dagatali fylgir ekki
innihald! Þá reynir enn frekar á
hugmyndaflugið, en Frökenin er
með það á hreinu að það er alveg jafn
gaman að fá einhver skilaboð eða
verkefni sem þarf að inna af hendi yfir
daginn eins og að fá súkkulaðibita, svo
ekki sé nú talað um ef bæði moli og
verkefni bíða eiganda dagatalsins! En
eftir Pinterest yfirlegu fann Frökenin
nokkur dagatöl sem henni fannst falleg
og þess virði að deila með lesendum.
Ekki nóg með það, heldur bætti hún
um betur og útbjó lista með atriðum/
verkefnum sem litlum hjörtum þætti
ekki leiðinlegt að finna í dagatalinu
sínu! [sjá hér á næstu síðu]
Dundað í dagatalagerð
UMSJÓN
Hrafnhildur Viðarsdóttir
Fröken Fabjúlöss föndrar fyrir jólin
Flestir sem nokkurntímann hafa heyrt af
Fröken Fabjúlöss vita að desember er hennar
uppáhaldsmánuður! Ljósin, skrautið, glimmerið,
hefðirnar og smákökurnar! Það er eins og samfélagið sameinist í að gera
allt kósí í einn mánuð á ári! En tíminn frá 1. des og fram að jólum getur
verið ansi langur og strangur fyrir yngstu hjörtun, og smellti Frökenin því
fyrir sig betri jólafætinum inn á pinterest.com til að athuga hvort hún fyndi
einhver jóladagatöl sem auðvelt og ódýrt (já og erfitt og dýrt, stundum
verður það að fá að fljóta með) væri að föndra.
Menningarhúsið Miðgarður í Varmahlíð
föstudaginn 5. desember kl. 20:30
Stórsöngvararnir
Jóhanna Guðrún og Óskar Pétursson
flytja jólalögin ásamt
frábærum hópi skagfirskra listamanna
FRAM KOMA:
Jóhanna Guðrún, Óskar Pétursson,
Íris Olga Lúðvíksdóttir, Sigvaldi Helgi Gunnarsson, Kolbrún Grétarsdóttir,
Bergrún Sóla og Malen Áskelsdætur, Gunnar Rögnvaldsson,
Jón Hallur Ingólfsson að ógleymdum sameinuðum
Barnakór Árskóla og Varmahlíðarskóla
sem setja punktinn yfir tónleikana, þar sem jólaandinn mun svífa
yfir vötnum ásamt hæfilegu magni af gríni og glensi.
HLJÓMSVEIT KVÖLDSINS SKIPA:
Berglind Stefánsdóttir, Einar Þorvaldsson, Gróa Valdimarsdóttir,
Kristján Reynir Kristjánsson, Kristín Halla Bergsdóttir, Margeir Friðriksson,
Sigurgeir Agnarsson, Stefán R. Gíslason og Sveinn Sigurbjörnsson.
STJÓRNENDUR BARNAKÓRS: Íris Baldvinsdóttir og Friðrik Jónsson.
KYNNAR: Óskar Pétursson og Jón Hallur Ingólfsson
HLJÓÐ: Fúsi Ben
N
Ý
PR
EN
T
eh
f
MIÐASALA er á Miði.is
MIÐAVERÐ KR. 3.900
Ef það er eitthvað sem nýbakaðar mæður
kannast við, þá eru það haugarnir af
krukkum undan barnamat sem hrannast
upp. Ef þær eru eitthvað svipaðar og
Fröken Fabjúlöss, þá sárfinna þær til við
tilhugsunina um að henda þeim. Hér er
lausnin komin: Föndra jóladagatöl úr
þeim handa fjölskyldumeðlimum. Þetta
býður upp á þúsund lita-munsturs og
útfærslumöguleika!
Hérna er önnur leið til að gefa klósettrúll-
unum nýtt líf! Hefta endann á þeim, stinga
gotteríi, blaði með skilaboðum/verkefni eða
hvorutveggja inní, hefta svo hinn endann líka.
Skreyta svo með afgangsborðum frá seinustu
jólum ef endurnýting er hjartans mál, eða
skunda út í búð og fjárfesta í fallegum
borðum og skrauti!
Tómar klósettrúllur er eitthvað sem venjulega er
hent en eitt af því sem er ákaflega auðvelt að
föndra eitthvað skemmtilegt úr. Nú er heldur
betur ástæða til að grátbiðja nágranna, vini og
vandamenn að hamstra tómu klósettrúllurnar í
smá tíma og búa svo til þetta sniðuga dagatal.
Þarna sameinast það að nýta eitthvað sem
annars væri hent og nýting á efnisafgöngum
sem eru komnir hættulega nálægt ruslafötunni!
Hérna hefur fjölnota muffinsform fyrir
24 kökur fengið nýtt hlutverk! Einfalt
og fljótlegt, klippa karton í nógu
stóra hringi til að hylja muffinsgatið,
stinga glaðningnum í gatið og loka
því svo! Skreyta að vild. Þetta er
hugvit og einfaldleiki sem Fröken
Fabjúlöss dáist að!
KÍKTU í krukku
KÆRLEIKUR Í
KLÓSETTRÚLLUM
KRÚTTLEGU
KLÓSETTRÚLLUrnar
muffinsformið
fær nýtt líf