Feykir - 27.11.2014, Blaðsíða 9
92 01 4
hvarf hans af heimili ömmu. En hann
tók gleði sína á ný þegar hann fékk
að vita að hesturinn myndi skila sér
fljótt aftur,“ segir Emilía og brosir.
Emilía segist leggja mikið upp úr
því að fjölskyldufólk geti komið og
notið staðar og stundar í rólegheitum
og að rugguhestarnir hafi vakið mikla
lukku hjá ungum jafnt sem öldnum.
Börnin geta jafnframt sest niður
og litað myndir af rugguhestum, á
meðan geta þeir fullorðnu fengið
sér kaffi og rugguhestapiparkökur,
spjallað og virt fyrir sér sýninguna.
Hún segir engan fastan opnunartíma
vera á Sögusetrinu um þessar mundir
en þeir sem hafa áhuga á að koma og
skoða geti hringt í hana í síma 895-
9366 svo hægt sé að finna tíma sem
hentar.
Þá stendur einnig til að hafa opið
sunnudaginn 14. desember. „Þá
ætlum við í kvenfélaginu hérna á
Hólum að standa fyrir aðventuhátíð
frá kl. 13-17. Á hátíðinni verður
hægt að sækja sér jólatré í Hólaskóg,
prófa rugguhestana, skoða Hóla-
dómkirkju, kíkja á Bjórsetrið og
fá sér vöfflur og kakó í Hólaskóla,
Undir Byrðunni. Í Nýjabæ, fallega
torfbænum okkar, verður líf og fjör
allan daginn, jólabasar og matarkynn-
ingar, það verður lesið fyrir börnin og
sungin jólalög auk þess sem einhverjir
jólasveinar verða á ferli. Það er alltaf
mjög hátíðlegt að koma heim að
Hólum á þessum árstíma og allir sem
koma ættu að vera komnir í jólaskap
eftir svona dag.“
„Stúlkan með lambið“
Gullmolar barnanna á leikskólanum Barnaborg á Skagaströnd
Á leikskólanum Barnabóli á Skagaströnd eru um 30 börn. Nýlega tók leikskólinn
að starfa undir Hjallastefnunni og má sjá áhrif þess í gullmolunum sem starfsfólk
leikskólans tók saman fyrir Feyki nú skömmu fyrir aðventuna.
Það var von á góðum gesti
á Barnaból og ein stúlkan
fór uppnumin að segja
pabba sínum frá. „Það er
að koma mjög merkileg
kona í heimsókn til okkar."
„Nú,“ segir pabbinn „og
hver er það?“ Stúlkan er
ekki lengi að upplýsa
hann um það: „Það er hún
María Bóla.“ En það er rétt
að geta þess að Margrét
Pála Hjallastefnukona var
væntanleg í hús!
Ungur
drengur var að
fara í hvíld. „Það er
slökkt á mér" sagði
hann um leið og hann
lokaði augunum.
Tvö þriggja ára börn klifruðu upp á klifurhús
og voru einstaklega stolt þegar toppnum
var náð og horfðu brosandi á hvort annað.
Drengurinn segir: „Við erum uppi.“
Stúlkan brosir og kinkar kolli.
Drengurinn segir: „Eigum
við að bora?“ Stúlkan er
alveg til í það og taka
við að bora af krafti.
Þá horfir drengurinn
á stúlkuna og segir:
„Ert þú með bleiku
borvélina þína?“
Margrét Pála
kom í hús og
börnin komum
fagnandi á móti henni.
Eitt barnið heilsar
og segir svo:
„Þú ert stúlk-
an með
lambið,“ en
það hafði
séð mynd
af henni
í blaði þar
sem Magga
Pála heldur á
lambi. Möggu þótti
vænt um þessi orð.
Á Barnabóli hafa börnin verið að æfa
sig í hegðun og þegar einhver ruglast
þá getum við ávallt bætt okkur.
Einn drengur var aðeins að aðstoða
mömmu sína: „Mamma, varstu að
ruglast?“ Og mamma svarar: „Já,
fyrirgefðu.“ Þá svarar hann brattur:
„Það er allt í lagi mamma mín, það
gerist á bestu bæjum, gengur bara
betur næst.“