Feykir - 27.11.2014, Qupperneq 6
2 01 46
Hildur Eir lærði á fiðlu, orgel og
gítar sem barn, lengst þó á fiðlu, en
um helstu tónlistarafrek sín segir
hún: -Það var visst afrek að hafa
ekki gert fjölskyldu mína vitstola af
fiðluleiknum en annars er nýjasta
tónlistarafrekið það að hafa stofnað
prestatríó með séra Oddi Bjarna
og séra Hannesi Blandon, við
tróðum upp á Handverkshátíðinni á
Hrafnagili í ágúst síðastliðnum.
Uppáhalds tónlistartímabil? -Ég
er svolítið svag fyrir tímabilinu 1970
til 90, bæði hér heima og erlendis.
Annars man ég oft ekkert síðan
hvenær lög eru, ég er jafn léleg að
aldursgreina lög og manneskjur, ég
hrífst bara af hvoru tveggja
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? -Í ræktinni
finnst mér mjög gaman að hlusta
á Prins póló, í kirkjunni finnst
mér dásamlegt að hlusta á gömlu
sálmana og forspil og eftirspil ala
Bach, í bílnum hlusta ég á Kaleo,
í stofunni hlusta ég á Hymnodiu.
Við skriftir hlusta ég á Tom Waits
og stundum Pixies. Ég er mjög
þversagnakenndur og óstíliseraður
karakter.
Hvers konar tónlist var hlustað
Jólalögin best
beint frá hjartanu
UMSJÓN
Óli Arnar Brynjarsson
Jóla-Tón-lystin : Sr. Hildur Eir Bolladóttir
Í þessari jólaútgáfu af Tón-lystinni er það
brottfluttur Skagfirðingur, Hildur Eir
Bolladóttir, sóknarprestur við Akureyrar-
kirkju, sem situr fyrir svörum. Hildur Eir, fædd 1978, ólst upp í
Laufási við Eyjafjörð til 13 ára aldurs en bjó á Hólum í Hjaltadal
þangað til hún fór 16 ára gömul í Menntaskólann á Akureyri.
Hún er dóttir heiðurshjónanna Bolla Gústavssonar og Matthildar
Jónsdóttur en Bolli var vígslubiskup á Hólum frá 1991 til 2002.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? -Göngum við í kringum
einiberjarunn gat hæglega eyðilagt
fyrir mér daginn þegar ég var barn
en nú þarf svo mikið til að eyðileggja
fyrir mér daginn að ég hugsa að þó
ég yrði læst upp í kirkjuturni með
heyrnartól á eyrunum og þyrfti
að hlusta á Anaconda á repeat í 12
klukkutíma, þá myndi ég samt halda
áfram að trúa á Guð, svei mér þá.
Ef ég þyrfti hins vegar að horfa á
myndbandið í jafn langan tíma þá
myndi ég gerast heiðin.
Hvenær má byrja að spila jóla-
lögin? -Bara þegar fólk er farið að fá
jólafiðringinn.
Uppáhalds jólalagið? -Sálmarnir
Sjá himins opnast hlið og Heims
um ból og Christmas song chestnuts
roasting on an open fire og Driving
home for christmas með Chris Rea.
Jóladiskurinn með Hymnodiu sem
heitir Þar ljós inn skein er alveg
dásamlegur.
Hvert er fyrsta jólalagið sem þú
manst eftir að hafa heyrt? -Heims
um ból í messu heima í Laufási.
Hvernig eru jólalögin best? -Eins
og önnur lög eru þau best þegar þau
eru flutt beint frá hjartanu án þess að
hafa of mikla viðkomu við heilann.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-
dagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? -Þá getur verið mjög gott að
heyra fallegan sálmasöng í útvarps-
messunni, það er eitthvað svo ekta.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er
í heiminum og skella þér á tónleika.
Hvert færirðu, á hvaða tónleika og
hvern tækirðu með þér? -Ég færi nú
bara til Brasilíu og sæi svo til hvort ég
fyndi ekki einhvern skemmtilegan
salsaklúbb og byði manninum
mínum með svo við gætum rifjað
upp gamla takta.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera? -Aldrei dreymt
um að vera einhver annar en ég er,
nóg er nú víst álagið að kynnast
sjálfum sér að maður fari ekki að
skipta um hest í miðri á.
Er einhver sérstök tónlist eða lag
sem þú tengir við Hóla? -Fyrir utan
lagið Undir Bláhimni þá myndi það
vera tónlist sveitarinnar REM sem
við Laufey Jónsdóttir Bjarnasonar,
fyrrum skólameistara á Hólum,
hlustuðum mikið á þegar við vorum
nemendur í Varmahlíðarskóla. Við
höfðum þetta svona sem stef í ástar-
sorg, von og þrá.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út ? -Þetta er
pottþétt erfiðasta viðtal sem ég hef
farið í um ævina, viltu ekki bara líka
spyrja hvernig heimurinn varð til?
Nei, sleppum því. Hvenær eru jólin
komin? -Þegar aftansöngurinn hefst
klukkan 18:00 á aðfangadag.
Sex vinsælustu lögin á Playlistan-
um? -Ég man aldrei hvað lög heita
en ég man hvernig mér líður þegar
ég hlusta á þau. Tónlist er sálarnudd
– stundum slökunar-, stundum
svæða- og stundum sjúkranudd.
á á þínu heimili? -Klassík, Joan
Sutherland, Jussi Björling, Smára-
kvartettinn (afi Gústi söng með hon-
um), Pavarotti, Placido Domingo,
Maria Callas og Bing Crosby þegar
við tókum laufabrauð – þar kom
„rokkarinn“ fram í pabba.
Hver var fyrsta platan sem þú
keyptir þér? -Sko, fyrsta platan sem
ég eignaðist var Dýrin í Hálsaskógi
og ég hlustaði á hana aftur og aftur
og aftur. Fyrsta platan sem ég keypti
mér var The Wall með Pink Floyd en
fyrsta bandið sem ég elskaði var Dire
Straits, þvílíkir meistarar.
Hvaða græjur varstu þá með? -Ég
átti kassettutæki en í stofunni heima
var ágætur plötuspilari sem við
systkinin hertókum þegar foreldrar
okkar brugðu sér af bæ. Pabbi var
ekki mikið fyrir graðhestatónlist en
hann var samt alveg sáttur við Pink
Floyd, það er líka svolítið klassískur
undirtónn í þeirra tónlist.
Besta lagið til að hlusta á á
hlaupum? -Á hlaupum er það
Michael Jackson, Bad er grjót-
hart lag ef maður vill hlaupa með
smá attitjúti sem virkar örugglega
ótrúlega kjánalega á þá sem mæta
manni eða keyra framhjá.
Hildur Eir og herrahundurinn Kári stíga dans. MYND: BJARNI EIRÍKSSON
Skagfirskar skemmtisögur 4
– Miklu meira fjör
„Skagfirðingar
eru fyndnari
en ég hélt“
Fjórða bindi hins geysivinsæla bókaflokks
Skagfirskar skemmtisögur hefur litið dagsins
ljós. Líkt og fyrri bindi hefur bókin að geyma
gamansögur af Skagfirðingum og koma þær
víða úr firðinum, að sögn Skagfirðingsins
Björns Jóhanns Björnssonar blaðamanns, sem
skrásetur gamansögurnar. Með útkomu þessa
fjórða bindis eru sögurnar í heildina orðnar hátt
í eitt þúsund talsins.
Sögurnar koma frá Króknum og Skaganum, Lýtó, Fljótum,
Óslandshlíð, Hofsósi, Viðvíkursveit, Hjaltadal, Blönduhlíð,
Seyluhreppi og víðar. „Það er sérstakur kafli helgaður sögum
af konum í Skagafirði, yfirleitt sagðar af konum. Ég fékk líka
nokkrar óborganlegar sögur af fólki sem var uppi á Króknum
á fyrstu áratugum 20. aldar, sögur sem ég held að fáir kunna
orðið í dag eða hafa heyrt um,“ segir Björn Jóhann aðspurður um
innihald bókarinnar að þessu sinni. Þá segist hann einnig verða
að nefna sögurnar frá Hilmi Jóhannessyni. „Alveg einstaklega
skemmtilegur maður hann Hilmir en ég hafði einhvern veginn
aldrei þorað að hjóla í hann fyrr en núna. Ég sé ekki eftir því, við
náðum vel saman og hann lét allt flakka.“
Björn Jóhann segir söfnun sagnanna hafa gengið vel að
vanda og að hans mati hafi hún jafnvel orðið auðveldari með
árunum ef eitthvað er. Fólk sé almennt jákvætt gagnvart því að
láta hann fá sögur þó hann þurfi stundum að ganga lengur á
eftir sumum en öðrum. Þá hefur fólk verið að gauka að honum
sögum og hann fengið ábendingar úr ýmsum áttum, bæði með
skemmtisögur og viðmælendur. Best þykir honum þó að hitta
á fólk og fá sögurnar þannig beint í æð en stundum hafa þær
komið í pósti, bæði með gamla laginu og rafrænt, eða með
símtölum.
En áttu þér uppáhalds gamansögu?
–„Það er erfitt að gera upp á
milli, þær eru margar góðar,
en ætli ein sé ekki dálítið
uppáhalds núna í fjórða
bindinu. Þetta er
saga sem ég heyrði
af ömmu minni,
Lóu frá Seylu, og
mér fannst hún
svo góð að ég
ákvað að vitna í
hana í formála
bókarinnar. Ég
ætla ekki að fara
með söguna hér,
menn verða bara að
næla sér í eintak.“
Þegar blaðamaður
spyr hvort von sé á 5. bindi
Skagfirskra skemmtisagna seg-
ist Björn engu lofa um það en að
hann telji þó að þetta sé orðið ágætt í bili
– sögurnar séu orðnar hátt í eitt þúsund. „Viðtökurnar
hafa verið mjög góðar og ég er þakklátur fyrir þær. Skagfirðingar
eru fyndnari en ég hélt og sögurnar margar í hverri sveit, nánast
af hverjum bæ. Enn hef ég reyndar ekki náð að hitta á alla sem
ég hef ætlað mér, þannig að það er aldrei að vita nema að
framhald verði á einhvern tímann síðar meir. Kemur í ljós,“ segir
Björn Jóhann að endingu.
Bókaútgáfan Hólar gefur bókina út og hana má nálgast á svipuðum
stöðum og áður, í Skagfirðingabúð, KS Varmahlíð og hjá Bjarna Har.
Einnig í helstu bókaverslunum landsins og stórmörkuðum.
Nokkrar góðar sögur má finna á víð og dreif í blaðinu
og þakkar Feykir höfundi fyrir birtingaleyfið.