Feykir - 27.11.2014, Page 10
2 01 41 0
Vinna við ritun skagfirskrar
byggðasögu hófst 1995 og er
sú langveigamesta sem ráðist
hefur verið í á Íslandi. Hjalti tók
verkefnið að sér á sínum tíma
og segir að þá hafi sig ekki órað
fyrir hversu viðamikið það yrði.
„Sem var kannski ágætt,“ segir
hann þegar blaðamaður ýjar að
því hvort hann hefði farið út í
þetta ef hann hefði séð það fyrir.
Að baki hverju bindi liggur
a.m.k. tveggja til þriggja ára
vinna. Í upphafi var farið
gegnum prentaðar heimildir
og skjöl fyrir héraðið í heild.
Söfnun heimilda fyrir hvert
byggðarlag byggist á rituðum
heimildum og skjölum en ekki
síst munnlegum heimildum og
staðháttakönnun. Byggðasögu-
ritarar heimsækja hvern bæ,
flesta margoft, og safna fróðleik
og ljósmyndum hjá ábúend-
um og brottfluttum. Þá hafa
samhliða ritun bókanna farið
fram fornleifarannsóknir í sam-
stafi við fornleifadeild Byggða-
safns Skagfirðinga.
Í Byggðasögu Skagafjarðar
er saga hverrar jarðar rakin á
ítarlegri hátt en gengur og gerist
í sambærilegum ritum. Fjallað
er um ábúð, örnefni, þekktar
persónur, þjóðsögur, kveðskap
og hvaðeina sem tengist jörð-
inni, auk þess sem fjöldi ljós-
mynda, korta og teikninga
prýðir bækurnar. Hverri jarðar-
lýsingu fylgir aukinheldur
ábúendatal, allt frá 1781 til
útkomuárs hverrar bókar.
Hefur Guðmundur Sigurður
Jóhannsson ættfræðingur yfir-
farið og endurbætt ábúendatal-
ið og segir Hjalti að það hefði
enginn maður getað gert betur.
Nú liggur fyrir að verkið
muni enda í tíu bindum.
Eftir er að gefa út bækur um
Fellshrepp og Fljótin, ásamt
lykilbók sem mun innihalda
kafla um kaupstaðina Hofsós og
Grafarós og eyjarnar Málmey
og Drangey, auk nafnaskráa og
atriðisorðaskráa. Hjalti útskýrir
að það liggi gríðarleg vinna í gerð
nafna- og atriðisorðaskráa. Það
hefði einfaldlega tafið útgáfuna
of mikið að hafa skrárnar í hverri
bók fyrir sig. „Ég veit um tvo
menn á Íslandi sem hafa gaman
af því að búa til nafnaskrár og
annar þeirra er að vinna þetta
fyrir okkur núna. Þetta er afar
mikilvægt til að verkið nýtist
sem skyldi, að hægt sé að fletta
upp í því,“ segir Hjalti og vonast
til að svo verði, enda hefur verkið
gríðarlegt heimildagildi.
Skilar menningar-
legum arði
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Sjöunda bindi Byggðasögu Skagafjarðar að koma út
Sjöunda bindi Byggðasögu
Skagafjarðar er nú komið út
og þar með farið að síga vel
á seinni hluta þessarar viðamiklu útgáfu sem mun
telja alls tíu bindi áður en yfir lýkur. Nýjasta bindið
fjallar um Hofshrepp hinn forna, það er Óslandshlíð,
Unadal, Deildardal og Höfðaströnd og telur alls 480
síður. Hjalti Pálsson hefur ritstýrt byggðasögunni frá
upphafi en ýmsir verið honum til aðstoðar. Feykir
hitti Hjalta að máli um það leyti sem lokayfirlestri
prófarkar var að ljúka.
Hjalti Pálsson byggðasöguritari ásamt Óla Arnari Brynjarssyni umbrotsmanni. Hér er verið að leiðrétta síðustu villurnar.
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
Aukum gæði
fóðrunar
Steinefnastampar og
önnur bætiefni í miklu úrvali.
Verslanir um allt land.
– í héraði hjá þér –
Fóðurblandan hf
Korngörðum 12 Reykjavík
Sími 570 9800 Fax 570 9809 www.fodur.is
FB Verslun Selfossi Austurvegi 64a & 570 9840
FB Verslun Hvolsvelli Hlíðarvegi 2-4 & 570 9850
FB Verslun Egilsstöðum Kaupvangi 11 & 570 9860
Fóðurblandan
óskar landsmönnum
gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári