Feykir - 27.11.2014, Page 14
2 01 41 4
Fjalla-Steini er útivistarfólki að góðu
kunnur enda heldur hann úti stórum
gönguhópi gegnum fésbókarsíðuna
Fjallagarpar og -gyðjur og hefur smám
saman verið að taka að sér leiðsögn í
gönguferðum. Hann segist hafa verið
átta ára þegar hann stofnaði fyrsta
fjallaklúbbinn, ásamt æskuvininum
Lárusi Ástvaldssyni, jarðfræðingi.
Undanfarin sex ár hefur mikið af
hans tíma farið í ýmis gönguverkefni í
góðgerðarskyni og oftar en ekki hefur
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
notið góðs af.
Hugmyndin að bókinni, sem er
fyrsta bók höfundar, kviknaði svo fyrir
um fjórum árum. Steini var þá einu
sinni sem oftar á ferð um landið og
fannst vanta upplýsingar um bæjarfjöll
á hverjum stað. „Sumstaðar voru menn
ekki einu sinni vissir hvaða fjall væri
þeirra bæjarfjall,“ segir Steini, sem í
framhaldinu fór að afla upplýsinga
og gekk sjálfur á öll fjöllin, gjarnan í
góðum félagsskap heimamanna. Vinnsla
bókarinnar tók tæp tvö ár í það heila og
urðu fjöllin í bókinni alls tæplega 90.
Bókin nýtist öllu útivistarfólki sem
hefur áhuga á landinu sínu. Hún er að
sögn Steina góður leiðarvísir fyrir alla
sem eru að fara út á land, enda handhæg
og í þægilegu broti. „Þarna er að finna
fjöll við alla þéttbýlisstaði landsins og
mikið af myndum. Gönguleiðarlýsingar
eru á vefnum og seinna meir verða sett
inn á www.fjallasteini.is hnit (e. tracks)
fyrir leiðirnar, enda er gps-menningin
orðin allsráðandi. Þó ég noti slík tæki
takmarkað sjálfur eru þau nauðsynleg.
Sjálfum finnst mér skemmtilegra að
rýna í landslagið og kennileiti og ganga
eftir því, það er sennilega innbyggt í
mig,“ segir Steini.
Gönguverkefnin og vinnan við
bókina hafa komið talsvert niður á
vinnunni, að sögn Steina, en hann er
fasteignasali hjá Þingholtum og hefur
notið mikils velvilja þar. „Á þessum árum
er ég líka búinn að ganga mikið á eigur
mínar, en ég er moldríkur af mannauði.
Það er flottasta fólkið á öllu á landinu
sem ég hef kynnst á þessari vegferð og
ekkert hefur gefið mér eins mikið og að
kynnast öllu þessu fólki úti á landi,“ segir
Steini. Hann segir framundan að klára
heimsálfutindana, en hann er þegar
búinn að sigra Kilmanjaro í Afríku og
hefur sett sér það markmið að fara einn
til tvo á ári. Á döfinni er svo að bjóða
upp ferðir um gamlar þjóðleiðir vítt og
breitt um landið, í samstarfi við gott fólk.
Önnur bók er líka í sigtinu, en hann
segir of snemmt að segja til um innihald
hennar.
Steini segir það hafa verið auðsótt að
fá bókina gefna út. „Fyrsti útgefandinn
sem ég talaði við, Helgi Jónsson hjá
Tindi, tók mér strax vel og hafði trú
á mér og verkefninu. Við höfum átt
mjög gott samstarf.“ Steini segir að bók
af þessu tagi hefði ekki orðið til nema
fjölmargir kæmu að verkinu, bæði hvað
varðar heimildir og ljósmyndir. „Ég
vil koma á framfæri þakklæti til alls
þess frábæra fólks sem hefur tekið mér
opnum örmum og af mikilli gestrisni.
Margir hafa eytt ómældum tíma til að
aðstoða mig, þegar mig vantaði aðstoð
við bókina var mér alls staðar vel tekið,
maður er óendanlega þakklátur fyrir það
og það er ekkert sjálfgefið að fólk gefi sér
tíma í slíkt,“ segir Steini að lokum.
Rafvirkjarnir Ásbjörn
Skarphéðinsson, betur
kunnur sem Böddi á Gili,
og Valgarð Björnsson, eða Valli Björns,
unnu oft saman. Eitt sinn höfðu þeir
verið að vinna fyrir Sauðárkrókshöfn og
að því loknu tók Böddi til við að útbúa
vinnuskýrsluna.
„Hvað eru mörg b í Sauðárkrókshöfn?“
spurði Böddi.
„Hvað ertu kominn með mörg?“ svaraði
Valli.
„Þrjú.“
„Láttu það duga.“
*
Þegar Hilmar Sverrisson tónlistarmaður
vann á vélaverkstæði KS um árið kom
hann til Valgarðs Jónssonar og var að leita
að logsuðugleraugum. Valli getur stundum
verið utan við sig og líkt og hjá fleirum
koma orðin kannski ekki alltaf rétt frá
honum. Svaraði hann Himma:
„Síðast þegar ég sá þau voru þau horfin!“
*
Guttormur Óskarsson fékk einu sinni
heimsókn á dvalarheimilið frá góðum
kunningja, sem nýlega hafði farið á
miðilsfund. Þar kom fram sameiginlegur
vinur þeirra, Ýtu-Keli, sem hafði fallið frá
ekki löngu áður.
„Hann sagði allt þetta fína, hér væri gott
að vera,“ sagði vinurinn við Guttorm
og bætti við: „Og þarna væru engir
framsóknarmenn.“
„Já,“ sagði Guttormur, „hvar skyldi Keli
hafa lent?“
*
Haukur Pálsson, ostameistari í
Mjólkursamlagi KS á árum áður, var
skemmtilegur karl, heljarmenni að
burðum og jafnan beinskeyttur í tilsvörum.
Einhverju sinni kom ungur starfsmaður
samlagsins til hans og bar sig illa, hann
væri að drepast úr vöðvabólgu og gæti
varla unnið meira þann daginn.
„Vöðvabólgu,“ hreytti Haukur út úr sér,
„það getur ekki verið, þú ert ekki með
neina vöðva, maður!“
„Ég er moldríkur
af mannauði“
VIÐTAL
Kristín S. Einarsdóttir
Fjalla-Steini sendir frá sér bók um íslensk bæjarfjöll
Haustið 2013 fjallaði Feykir um góðgerðar-
verkefni Þorsteins M. Jakobssonar, eða Fjalla-
Steina, sem þá var að ganga á öll bæjarfjöll
á Íslandi til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Steini hefur
nú lokið verkefninu og bætt um betur með því að skrifa bók
um fjöllin, þar sem hann gefur vinnu sína, einnig til styrktar
krabbameinssjúkum börnum. Tindur gefur bókina út
og hún heitir einfaldlega Íslensk bæjarfjöll.
Glettur
Úr Skagfirskum
skemmtisögum 4