Feykir - 27.11.2014, Blaðsíða 17
1 72 01 4
Skagfirðingar, Húnvetningar
og aðrir nærsveitamenn
Við óskum ykkur gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Skoðunarstöðvar okkar eru á Blönduósi,
Hvammstanga, Sauðárkróki og Siglufirði,
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu
Frumherja www.frumherji.is
S. 570-9090 eða 570-9000
HJÁ OKKUR FÆST
MARGT FALLEGT
Í JÓLAPAKKANN!
T.d. Klútar
Töskur
Skart, íslensk hönnun
Golden Rose förðunarvörur
Gjafakortin -draumagjöf allra
Skagfirðingabraut 6
sími 453 5969TÁIN & STRATA
Verið velkom
in
Aðalgötu 14, Skr. S: 455 5544
Opið laugard. 29. nóv. frá kl. 10-17
Heitt súkkulaði og piparkökur
Opið alla virka daga kl. 11-18
Laugardaga kl. 10-16
sunnudaga í aðventu kl. 13-15
Verið velkomin
STÓRAR OG SMÁAR
Gjafavara í miklu úrvali
Við mynduðum fyrir Þjóðviljann en
þeir höfðu engan sérstakan myndasmið,
þá var bara kallað á okkur á stofunni
eftir því hver var á lausu.“ Stefán segir
umræddan tíma skemmtilegan og eftir-
minnilegan en þarna fékk hann að vera
í hringiðu ýmissa merkra viðburða
og fylgjast með störfum nokkurra
afburðarblaðamanna hjá Þjóðviljanum
og nefnir Magnús Kjartansson og Jón
Bjarnason í því samhengi. Hann var
m.a. sendur til að mynda kröfugöngur,
þegar Sementsverksmiðjan var opnuð
á Akranesi og þegar Halldór Laxnes
gaf sósíalistum hjá Máli og menningu
Lincoln bifreið sína.
Einnig rifjar hann upp þegar hann
var eini ljósmyndarinn viðstaddur
þann sögulega viðburð í Íslandssögunni
þegar reglugerð um stækkun fiskveiði-
landhelginnar í 12 mílur var undirrituð.
Aðspurður hvort hann hafði ekki getað
hugsað sér að setjast að í Reykjavík
segir hann það aldrei hafa verið inn
í myndinni. Jafnvel þótt honum hafi
um það leyti borist atvinnuboð frá
Stefáni Thorarensen, umsvifamiklum
athafnamanni, um að taka að sér
ljósmyndun og framköllun í versluninni
Týli í Austurstræti, segist Stefán hafa
hafnað því boði umhugsunarlaust –
hann ætlaði heim á Krókinn.
Þegar Stefán opnaði
stofu á Sauðárkróki
haustið 1958 segir
hann bæinn hafa
verið minni og íbúana
talsvert færri. Samt var
nóg að gera og þá helst
í stúdíómyndatökum
og oft gat orðið brjál-
að að gera á ákveðnum
álagstímum, t.d. í
kringum fermingar,
útskriftir og jólin.
Hann segir jólin
stundum hafa verið
kvíðvænlegri tíma
hér áður fyrr þar sem
þá var oftast mest að
gera þegar fólk vildi
fá pantanir sínar
afgreiddar fyrir jól. Þá
var hann oft á ferðinni
út um allt og myndaði
fólk m.a. á Siglufirði,
Hofsósi, Varmahlíð,
Hólum, Skagaströnd,
Blönduósi, Hvamms-
tanga og Stykkishólmi. Hann myndaði
líka við útskriftir á Bifröst, Hvanneyri og
í Hólaskóla. Þá var hann líka stundum
með námskeið. Stefán starfaði einnig
sem fréttaritari fyrir Ríkissjónvarpið
í nokkur ár, uppúr árinu 1974. „Það
var alltaf nóg að gera, þangað til að
allt breyttist með tilkomu stafrænna
myndavéla, það var eins og slökkt á peru.
Þá gátu allir farið að mynda og gera það
óspart að nýta þá tækni.“
Þegar hann er spurður um hvaða
myndefni honum þyki skemmtilegast að
mynda svarar hann hiklaust að það séu
blessuð börnin, einnig gat verið gaman
að taka myndir af fallegum brúðhjón-
um. „Svo myndaði ég fyrir leikfélagið
í áratugi en Sæluvikan var hérna áður
meiriháttar atburður í bæjarlífinu,“ segir
Stefán og ljómar við tilhugsunina. „Það
var rosalega gaman. Þetta voru algjörir
snillingar sem voru að leika í þá daga,
það þurfti ekki að hafa mikið fyrir því
að mynda þá - þeir voru fljótir að setja
sig í stellingarnar.“ Alla umgjörðina segir
Stefán alltaf hafa verið til fyrirmyndar;
sviðsmyndin, leiksstjórn, búningar og
ekki síst leikarahópurinn sem var alltaf
skipaður Króksurum. Sem dæmi um
afbragðssýningar sem standa uppúr að
hans mati nefnir hann Gullna hliðið í
leikstjórn Guðjóns Sigurðssonar (1964),
Efri mynd: Stefán á leið í fyrstu myndatökuna, um 10 ára aldurinn.
Myndina tók Árni Halldórsson. Á neðri mynd er Stefán ásamt Sigurði
Guðmundssyni, meistara sínum. Myndina tók Stefán sjálfur.
Frá undirritun stækkunar fiskveiðilandhelginnar. Tekið út um gluggann á Sauðárkróki.