Feykir - 27.11.2014, Side 27
2 72 01 4
Af hvaða tegund er
gæludýrið þitt og
hvað heitir það? -Hún
heitir Þruma, oftast
kölluð Þrumuhaus,
og er blönduð Border
Collie og íslenskur
fjárhundur. Hún
hefur stærðina frá
Íslendingnum.
Ertu búin að eiga dýrið
lengi? -Já, í ein sex
frábær ár.
Hafa skapast
einhverjar sérstakar
jólahefðir í kringum
gæludýrið t.d.
sérstakur matur eða
eitthvað sérstakt
dekur? -Já, hún fær
ekki að vera innan um
allt hús svona alla jafna
og er bara í húsinu
sínu, en á jólunum og
framundir þrettándann
fær hún að vera með
okkur um allt húsið
og finnst það æðislegt.
Hún er sett í bað, sem
hún sjálf er svo sem
ekkert brjálað spennt
fyrir, hún er nudduð
með sjampói, skoluð,
en þurrkun fer mest
fram sjálfkrafa þar sem
hún hefur ekki mikla
þolinmæði fyrir því
og hatar blásara. Hún
fær svo afganga af
einhverju góðu eða gott
bein um kvöldið.
Fullviss að dýrin geri sér grein fyrir
því að jólin séu komin eins og við
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
Þruma þeirra Heiðrúnar Óskar Jónsdóttur frá Fagranesi í Langadal
og Emils Dan Brynjólfssonar frá Sauðárkróki
Árni Ragnar Dan tveggja mánaða á jólunum 2013 með Þrumu. MYND: HEIÐRÚN ÓSK
Hvernig myndir þú
lýsa aðfangadegi
hjá gæludýrinu?
-Bara rólegum og
rómantískum. Árni
Ragnar sem er rétt
rúmlega ársgamall er
kominn með mikinn
áhuga á henni svo hún
fær ekki jafn mikinn
frið og síðustu ár, en
allt undir eftirliti að
sjálfsögðu.
Hvernig kann dýrið að
meta þessa fyrirhöfn?
-Hún er alltaf mjög
ánægð með að vera
inni með okkur, en
þegar það er ákveðið
langt liðið á kvöldið
þá fer hún niður til sín
í húsið sitt til að sofa,
ætli hún fái ekki nóg
af okkur? Hún er nú
ekkert hoppandi kát
yfir baðinu, en lætur sig
hafa það og maturinn
er auðvitað það besta !
Hvað finnst
fjölskyldumeðlimum
um jólahefðir dýrsins?
-Það er bara almenn
sátt um þessar hefðir,
Emil sér yfirleitt alltaf
um að baða hana,
einhver óskrifuð regla
sem varð til óvart.
Auðvitað eru allir
ánægðir með að hafa
hana með, enda ein af
fjölskyldunni .
Eitthvað að lokum? -Við
eigum góðan slatta af
hrossum og reynum við
eftir getu að kíkja á þau,
ef ekki á aðfangadag,
þá mjög fljótlega eftir
þann dag. Við förum
með brauð og nammi,
spjöllum aðeins við
þau, klöppum og
kjössum þau sem það
vilja og pössum að
allt sé í lagi. Mér hefur
alltaf þótt eitthvað
öðruvísi við að vitja
dýranna á aðfangadag,
hvort sem það voru
kindurnar eða hrossin,
barnslegir töfrar alveg
örugglega en frábært
í minningunni, og
jólabarnið ég er þess
fullviss að dýrin geri sér
grein fyrir því að jólin
séu komin eins og við.
Stórtónleikar í Miðgarði 5. desember
Sönglög á aðventu
í fyrsta skipti
Umfangsmiklir
jólatónleikar, undir
yfirskriftinni Sönglög á
aðventu, verða haldnir
í Menningarhúsinu
Miðgarði föstudaginn
5. desember. Að
tónleikunum stendur
sami kjarni fólks og hefur
staðið að Sönglögum í
Sæluviku. Fram kemur
fjöldi skagfirskra
tónlistarmanna en
sérstakur gestur að
þessu sinni er hin ástsæla
söngkona Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir.
Feykir sló á þráðinn til Jóhönnu
Guðrúnar skömmu fyrir aðventuna
og sagðist hún full eftirvæntingar
að koma í Skagafjörðinn. „Á
dagskránni eru jólalög og
þetta verður voða hátíðlegt og
fallegt, sagði hún um dagskrá
tónleikanna.“ Jóhanna Guðrún
segir jólatónleika frábrugðna öðrum
tónleikum að því leyti að þeir séu
yfirleitt stærri í sniðum. „Oft er bætt
við kór, strengjum eða slagverki og
margir sem koma að þeim. Svo er
þetta hátíðlegra og skemmtilegra,
allt sem tengist jólum er einfaldlega
skemmtilegt.“
Sjálf segist Jóhanna Guðrún
njóta jólanna, þrátt fyrir mikið
annríki í aðdraganda þeirra.
Aðventan er mikil annatími í
tónlistinni og segir hún ánægjulegt
að hitta alla kollegana sem hún
starfar með á þessum annatíma.
„Þetta er óskaplega gaman og
gefandi,“ segir hún.
Á svið með Jóhönnu Guðrúnu
stíga m.a. Óskar Pétursson frá
Álftagerði, Íris Olga Lúðvíksdóttir,
Sigvaldi Helgi Gunnarsson, Kol-
brún Grétarsdóttir, Bergrún Sóla
og Malen Áskelsdætur, Gunnar
Rögnvaldsson og Jón Hallur
Ingólfsson ásamt sameinuðum
barnakór Árskóla og Varma-
hlíðarskóla og sérstakri hljómsveit
kvöldsins. Jón Hallur Ingólfsson
og Óskar Pétursson munu kynna
dagskrána. Miðasala er hafin á
midi.is. /KSE