Feykir - 27.11.2014, Qupperneq 35
3 52 01 4
bróðir. Hvar ætli sé nú kveikt
á ljósunum? hugsaði Fannar.
Svo rak hann augun í leiðslu
á jörðinni. Það hlýtur bara
að eiga eftir að stinga henni
í samband, hugsaði Fannar.
Svo gekk hann hokinn á eftir
leiðslunni þangað til hann
rakst á einhvern.
„Sæll Fannar, hvað ert þú
að gera?“ sagði kona með
gleraugu. Þetta var skrítið,
hún er ekki með nein augu,
hugsaði Fannar. Þá tók konan
gleraugun af sér og strauk
móðuna af glerinu og setti
gleraugun upp aftur. Nú er
hún komin aftur með augu,
hugsaði Fannar
og sá þá að þetta
var presturinn.
Hann þekkti hana
pínu lítið. „Ég
ætla að kveikja á
jólatrénu, ég er
nefnilega búinn
að týna mömmu
og pabba,“ sagði
Fannar. „Jæja já,
þú segir nokkuð,
kannski get ég hjálpað þér,“
sagði presturinn.
Þau gengu smá spöl og þá
hittu þau enn aðra manneskju
og presturinn sagði: „Jæja
sveitarstjóri, þessi ungi maður
er búinn að týna mömmu sinni
og pabba. Hann þarf eiginlega
að kveikja ljósin á trénu svo
hann geti fundið þau.“
„Jahá, við hljótum að geta
hjálpað honum með það. Hvað
heitir þú?“ sagði sveitarstjórinn
og leit á Fannar. „Fannar,“ sagði
Fannar frekar aumlega. „Jæja
Fannar, komdu með mér hérna
upp á pallinn og þú hjálpar
mér að kveikja á ljósunum.
Svo skulum við sjá til hvort þú
finnur ekki foreldra þína.“ Svo
talaði sveitarstjórinn heillengi í
míkrófón en svo sagði hún allt
í einu: „Nú skulum við öll telja
niður frá tíu og þá kveikir hann
Fannar hérna á jólaljósunum
en þá vonast hann til að sjá
mömmu sína og pabba... og
kannski nokkra jólasveina.“
Og það var eins og skrifað
í skýin með ósýnilegu bleki.
Fannar sá pabba koma hlaup-
andi um leið og hann hafði
kveikt á ljósunum. Hann var
ekkert reiður, bara feginn.
„Fannar minn, við skildum
ekkert í því hvert þú varst farinn.
Svo ertu bara kominn upp á svið
eins og Bára systir þín. Þú ert nú
meiri grallarinn.“ Svo faðmaði
pabbi Fannar að sér. „Heyrðu,
eigum við að kíkja aðeins á
þessa jólasveina sem eru komn-
ir í bæinn,“ sagði pabbi og það
stóð heima. Sveinkarnir voru
mættir með rauðar húfur og hvít
skegginn, með mandarínur á
lofti og hlátrasköll.
Það leið ekki á löngu þang-
að til einn jólasveinninn var
mættur til Fannars. „Hó-hó-
hó! Heyrðu, varst þú að kveikja
á jólatrénu?“ Fannar kinkaði
kolli og sagði: „Já. En hvað eruð
þið að gera hér, þið eigið ekki að
vera komnir til byggða strax?“
Þá blikkaði jólasveinninn
Fannar. „Ja, við eiginlega
týndum pabba og mömmu,
villtumst aðeins og enduðum
hérna.“ Fannar horfði hissa á
hann og sagði: „Það var skrítið,
það kom það sama fyrir mig í
dag!“ Sveinki hló. „Hvað ertu
að segja. Kannski ertu bara
jólasveinn eftir allt saman?
Þú vilt kannski koma heim
með okkur á eftir, til Grýlu og
Leppalúða?“ Fannar hjúfraði
sig upp að mömmu sinni, hristi
höfuðið og sagði: „Nei, ég vil
frekar vera heima hjá mömmu
og pabba.“
um nágrennið og allt í einu
brast bakarinn í söng „...já ég
vild' að alla daga væru jó-ól,
þá gætu allir dansað og sungið
jólala-ag...“ Það sem maðurinn
gat sungið. Svo var mikið hlegið
og fólkið brosti allan hringinn.
Brátt fór gatan að tæmast
af fólki því nú leið að því að
dagskráin hæfist á torginu.
Fannar var að verða hálf dasað-
ur – það var svo margt að
gerast. Og það var svo mikið af
fólki. Já hérna, en gaman. Fyrst
kom einhver maður sem sagði
öllum hvað ætti eftir að gerast
og síðan kynnti hann barnakór
á svið. Fannar þekkti nokkrar
stelpur í kórnum og
meira að segja tvo
bekkjarbræður sína.
Svo rak hann augun
í Báru systir sína
með jólasveinahúfu,
syngjandi í öftustu
röð. Mamma og
pabbi voru rosalega
stolt og Biggi bróðir
kallaði til hennar:
„Hæ Bála! Bála...“
Allt í einu fannst Fannari
eins og hann sæi Huga vin sinn
í þvögunni, svo hann skaust í
burtu, en Hugi tók ekki eftir
honum. Hann elti hann lengra
en svo missti hann alveg sjónar
á honum. Kannski hafði þetta
ekkert verið Hugi? En hvar
voru nú pabbi og mamma?
Fannar stóð nú einn innan
um allt fólkið og sá ekki neinn
sem hann þekkti. Og það var
orðið svo dæmalaust dimmt.
Skyndilega varð Fannar alveg
rosalega þreyttur og hann var
alveg við það að fara að gráta. En
þarna var jólatréð með öllum
jólaljósunum á. Ef hann gæti nú
kannski kveikt á ljósunum þá
sæi hann örugglega mömmu
og pabba, Báru og Bigga
Smáratorgi 522 7860 • Korputorgi 522 7870 • Glerártorgi 522 7880 Erum á FacebookFull búð af fallegu jóladóti
Hreindýr standandi verð 3.990,-
Hreindýr liggjandi verð 2.990,-
Hnetubrjótar, ýmsar stærðir
og gerðir verð frá 1.990,-
Bakkar allar stærðir
verð frá 990,- 7.990,-
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
w
Fannar stóð nú
einn innan um
allt fólkið og sá
ekki neinn sem
hann þekkti. Og
það var orðið svo
dæmalaust dimmt.
...
Af hvaða tegund eru gælu-
dýrin þín og hvað heita þau?
-Við eigum fjóra hunda,
Hugðu Border collie, Dögg
Australian shepherd, Aríu
þýskur fjárhundur og Ronju
sem er Griffon.
Hafa skapast einhverjar
sérstakar jólahefðir í kringum
gæludýrin, t.d. sérstakur
matur eða eitthvað sérstakt
dekur? -Þær fara í bað fyrir
jólin. Fá að borða Josera
fóðrið sitt og síðan gefum við
þeim uppáhalds beinin sín og
hundanammi.
Hvernig myndir þú lýsa að-
fangadegi hjá gæludýrunum?
-Góður dagur heima með
fjölskyldunni, við förum saman
í göngutúr, borðum góðan
mat og svo fá þau jólagjöf
sem inniheldur góðgæti eins
og þurrkuð svínseyru og
nautaleggi.
Hvernig kann dýrin að meta
þessa fyrirhöfn? -Þau kunna
vel að meta þetta.
Hvað finnst fjölskyldu-
meðlimum um jólahefðir
dýranna? -Sumum finnst
óþarfi að pakka inn gjöfum
fyrir hundana en þau eru
partur af fjölskyldunni og hafa
gaman af því að opna pakka
eins og aðrir.
Eitthvað að lokum? -Ég hvet
alla til að njóta þess að vera
með dýrunum sínum yfir
hátíðirnar og gefa þeim gott að
borða. Einnig að passa vel uppá
hundana yfir áramótin.
Fá góðgæti eins og
þurrkuð svínseyru og
nautaleggi í jólapakkann
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
Hugða, Dögg, Aría og Ronja þeirra Ástríðar Magnús-
dóttur og Hannesar Brynjars Sigurgeirssonar
Dögg, Hugða, Aría og Viktoría Huld.