Feykir


Feykir - 25.11.2010, Síða 27

Feykir - 25.11.2010, Síða 27
2010 2 7 Krakkarnir í Fjölmiðlavali Árskóla tóku nokkra kennara við skólann tali og spurðu út í mismunandi jól á mismunandi heimilum Hvað finnst þér best við jólin? -Jólamaturinn, jólaljósin og fjölskyldan saman. Hvað er uppáhalds jólamaturinn þinn? Rjúpur með tilheyrandi meðlæti. Hvernig voru jólin þegar þú varst barn? Þau voru mjög lík þeim jólum sem ég held í dag. Hvað langar þig í jólagjöf? Ekkert sérstakt. Hvað er aðallega bakað hjá þér um jólin? Við bökum smákökur, t.d. lakkrískurlkökur, súkkulaðibitakökur og kryddkökur. Hver eru þín eftirminnilegustu jól? Þegar ég var lítil fékk ég nýjan skíðagalla í jólagjöf, fór út á jóladag með vinkonu minni og reif buxurnar á gaddavír. Hlakkar þú til jólanna? Já. Dagur Bjarki Sigurðsson Ég tók viðtal við Aðalheiði Stefánsdóttur um jólin sem eru í vændum. Rjúpur og kryddkökur Hvernig eru jólin hjá þér? Þau eru hátíðleg fjölskyldusamvera. Trúir þú á Grýlu og hennar fjölskyldu, og hver er þá þinn uppáhalds jólasveinn? Nei. Finnst þér vera jól án snjós? Já, en skemmtilegra að hafa dálítið föl. Ertu mikið jólabarn? Nei, ekki mjög. Ekki lengur. Ætli það sé ekki aldurinn. Hvernig voru jólin hjá þér á yngri árum? Þau voru skemmtileg i minningunni. Ég las mjög mikið um jólin og svo voru náttúrulega tilhleypingar í algleymingi. Hvort líst þér betur á jólin eða sumrin? Jólin eru mjög notalegur tími. Sumrin eru enn betri því þau eru lengri en jólin. Í hvað langar þig í jólagjöf? Fyrst og fremst í notalegheit með fjölskyldunni. Góð bók væri ágæt með. Bakar þú mikið þú mikið um jólin? Ég sjálfur? Ekki neitt. Dansar þú um kringum jólatréð? Ekki heima. Bara á litlu jólunum í skólanum. Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin þín? Það er engin ein jólagjöf, ég hef fengið svo margar góðar í gegnum tíðina. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn? Lambalæri eins og Nína matreiðir það. Þorbjörg Jónína Þorfinnsdóttir Gísla Rúnari Konráðssyni kennara í Árskóla finnast jólin vera notalegur tími Góð bók væri ágæt með Hvernig eru jólin hjá þér? Mjög hátíðleg og mikilvæg að því leyti að börnin sem hafa búið mjög dreift hafa yfirleitt komið heim á jólum. Hvernig voru jólin hjá þér þegar þú varst á yngri árum? Svona í minningunni mjög ánægjuleg, ég man meira segja eftir því að jólaeplin hafi verið mjög mikilvæg, enda sjaldgæfari þá. Ertu mikið jólabarn? Ekki í seinni tíð. Hver er besta minning þín á jólunum? Það er nú tengt því að mamma heitin átti afmæli á aðfangadag og á stórafmælum hennar var þetta tvöföld ánægja. Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin þín ? Ég man vel eftir bátnum sem ég fékk í jólagjöf frá frændsystkinum mínum frá Vestmanneyjum. Hann var merkilegur fyrir landkrabba eins og mig. Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Gátta- þefur, ég man svo vel eftir Ómari Ragnarssyni í hans hlutverki. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn? Í seinni tíð rjúpan, enda hún sjaldan á borðum. Bakar þú fyrir jólin? Baka ekki en geri oft kornfleks kökur sem ekki þarf að baka. Finnst þér vera jól án snjós? Nei, þá vantar mikið á stemninguna, en svona innandyra eru þau í fullu gildi þótt rauð séu. Guðrún Ósk Jónsdóttir Hjá Sigurði Jónssyni smíðakennara í Árskóla eru jólin mjög hátíðleg og ekki þykir honum verra að fá börnin sem búa orðið mjög dreift heim yfir hátíðarnar. Geri oft kornflakes kökur Hvernig heldur þú upp á jólin? Reyni að hafa heimilið fallegt og legg mikið upp úr því að ná góðri jólastemningu með kertaljósum og fallegu jólatré. Hvernig voru jólin hjá þér þegar þú varst barn? Ég var alltaf jafn spennt þegar jólin nálguðust. Aðfangadagsmorgnarnir voru alltaf jafn ánægjulegir. Spenningurinn að sjá hvað Kertasníkir setti í skóinn og geta horft á barnaefni í sjónvarpinu nánast allan daginn meðan beðið var eftir jólunum. Bakar þú eitthvað fyrir jólin? -Já svakalega mikið og eingöngu góðar smákökur. Hvað myndir þú vilja í jólagjöf? -Eitthvað fallegt eða gott. Hlakkar þú til jólanna? -Já ég hlakka alltaf til jólanna. Hvað er það besta við jólin? -Samveran með fjölskyldu og vinum. Hver er þinn uppáhalds jólasveinn? -Stekkjastaur. Ferð þú í kirkju á sunnudögum fyrir jól? -Nei það geri ég ekki því þá er ég að baka. Planar þú út jólin? -Nei ég reyni að skipuleggja sem minnst. Ert þú mikið jólabarn? -Já svakalega mikið. Elska jólin. Kolfinna Karen Andersen Óðinsdóttir Þorbjörg Elenóra Jónsdóttir kennari í Árskóla leggur mikið upp úr því að ná góðri jólastemningu á heimili sínu Elska jólin Trúir þú á jólasveina? Nei, eiginlega ekki. Hvernig eru jólin hjá þér? Mér líður alltaf mjög vel í faðmi fjölskyldunnar, við höldum alltaf fjölskyldujól. Hvernig voru jólin þegar þú varst krakki? Ég á bara góðar minningar frá mömmu, pabba, ömmu og afa. Við systkinin erum 5 svo að það var alltaf líf og fjör á jólunum. Hver er uppáhalds jólamaturinn þinn? Rjúpur. Hvað langar þig í jólagjöf? Góða heilsu og að allir séu glaðir og kátir. Hver þrífur og skreytir heima hjá ykkur? Ég og maðurinn minn. Við erum bara tvö á heimilinu. Ertu hrædd við jólaköttinn? Nei, en ég passa mig alltaf á því að allir í fjölskyldunni fái föt svo þau lendi ekki í honum.“ Áttu þér uppáhalds jólalag? Heims um ból. Hefur þú einhverjar hefðir hjá fjölskyldunni þinni um jólin? Já á aðfangadegi þá keyrum við út jólakort og heimsækjum vini og ættingja í leiðinni. Hver er uppáhalds jólakökusortin þín? Vanillu- hringir. Benjamín Baldursson Ólöf Hartmannsdóttir, kennari í Árskóla; er ekki smeyk við jólaköttinn, en passar alla ættingja og vini fyrir honum Ekki hrædd við jólaköttinn skólajól

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.