Feykir


Feykir - 25.11.2010, Page 29

Feykir - 25.11.2010, Page 29
2010 2 9 Allt um... ...súkkulaði Súkkulaði er matvara unnin úr kakó. Það er algeng uppistaða í margs konar sælgæti, kökum, ís og ábætisréttum. Súkkulaði er eitt vinsælasta bragðefni í heiminum. Súkkulaði er búið til úr kakóbaunum sem eru gerjaðar, ristaðar og malaðar. Baunirnar vaxa á kakótrénu (fræðiheiti: Theobroma cacao) og á það uppruna sinn að rekja til mið Ameríku og Mexíkó, en er núna einnig ræktað í hitabeltinu. Kakótréð hefur verið ræktað frá dögum Maja og Azteka. Kakóbaunir eru beiskar og bragðmiklar. Súkkulaði leysir endorfín út í líkamann og sumir segja að tilfinningin sé lík því að vera ástfangin(n). Afurðir úr kakóbaunum eru: • Kakó, kakóduft: fæst með því að breyta hreinsuðum, afhýddum og ristuðum kakó- baunum í duft. • Kakósmjör: er fita sem fæst úr kakóbaunum eða hluta þeirra. • Súkkulaði er blanda af kakó- dufti og kakósmjöri. Það sem í daglegu máli er kallað súkkulaði er sykruð blanda af kakódufti og feiti sem í er bætt ýmsum öðrum efnum svo sem mjólkurdufti. Súkkulaði er oft framleitt í litlum mótum og tengist neysla þess ýmsum hátíðum. Nafnið súkkulaði kemur líklega úr Nahuatl tungumálinu sem er mál frumbyggja í miðri Mexíkó. Ein kenning er að það komi frá orðinu xocolatl á Nahuatl máli og það merki xocolli sem þýðir beiskur og atl sem þýðir vatn. Málfræðingar hafa bent á að í mörgum mállýskum af Nahuatl sé súkkulaði 'chicolatl' sem er orð yfir eins konar þeytara sem notaðir voru til að hræra í kakódrykkjum. Fundist hafa fornleifar sem benda til að Majar hafi drukkið súkkulaði fyrir 2600 árum. Astekar tengdu súkku- laði við frjósemisgyðjuna Xochiquetzal. Í nýja heiminum var drukkinn beiskur og kryddaður drykkur úr súkkul- aði sem nefndist xocoatl. Í þessum drykk var m.a. vanilla og chilípipar. Xocoatl var notaður sem eins konar orkudrykkur. Súkkulaði var munaðarvara í Ameríku fyrir daga Kristófer Kólumbusar og kakóbaunir voru oft notaðar sem gjaldmiðill. Kristófer Kólumbus færði Ferdinand og Isabellu á Spáni nokkrar kakóbaunir en það var svo Hernando Cortes sem kynnti Evrópumönnum þessa nýju vöru. Fyrsta skráða sendingin af súkkulaði til gamla heimsins var send með skipi frá Veracruz til Seville árið 1585. Á þeim tíma var súkkulaði enn þá neytt sem drykkjar en Evrópumenn bættu við sykri og mjólk, létu chilipiparinn eiga sig en bættu í vanillu í staðinn. Á 17. öld var súkkulaðineysla munaður meðal aðalsmanna í Evrópu. Súkkulaði Hér er einföld og fljótleg uppskrift að súkkulaði sem er ekki bara gott heldur beinlínis hollt :-) 1 bolli kaldpressuð kókosolía 1/2 bolli Agave-síróp 1 bolli lífrænt kakóduft Heitt vatn er látið renna á kókosolíukrukkuna í smástund, svo a olían verði fljótandi. Hellið henni síðan í skál. Hellið Agave- sírópi saman við og hrærið saman. Sigtið síðan kakóduftið út í og hrærið öllu saman. Setjið hræruna í lítil klakabox eða önnur mót og stingið þeim inn í ísskáp eða frysti. Hægt er að setja út í blönduna vanillu, myntu, hnetur, rúsínur og hvað annað sem hugurinn girnist til að auka og bæta bragðið. Kakóbaunir er stundum kölluð fæða guðanna því þær eru fullar af heilsusamlegum efnum

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.