Feykir - 25.11.2010, Qupperneq 36
20103 6
Bókafréttir - kynning
Það reddast!
Bókaútgáfan Hólar gefur út
margar bækur fyrir jólin líkt og
áður. Þar má fyrst nefna bókina
Það reddast sem er ævisaga
Sveins Sigurbjarnarsonar jöklafara
og ævintýramanns á Eskifirði.
Hann fer
sjaldnast troðnar
slóðir – ef þá
nokkurn tímann;
hefur þvælst
um fjöll og firn-
indi, láglendi og
hálendi og hjarn-
breiður jöklanna
með þúsundir
ferðamanna og
ævintýrin í þessum ferðum eru mörg
og sum býsna skuggaleg. Kappinn lætur
sér þó fátt um finnast, enda sagður
áræðinn, jafnvel bíræfinn og ennfremur
svalur í þess orðs dýpstu merkingu. Í
bók þessari lítur Svenni um öxl og rifjar
upp minningarbrot frá liðinni ævi með
aðstoð nokkurra samferðamanna. Það
er Inga Rósa Þórðardóttir sem skráir
ævisögu Sveins.
Í bókinni Í ríki óttans rekur
hjúkrunarkonan Þorbjörg Jónsdóttir
Schweizer örlagasögu sína. Sem ung
stúlka kynntist hún vistarbandi, en
síðar giftist hún Þjóðverjanum Bruno
Schweizer og flutti með honum til
Þýskalands skömmu áður en seinni
heimsstyrjöldin
skall á. Styrjöldin
kom nokkuð
við fjölskyldu
hennar, einkum
þó eiginmann-
inn, sem varað
hafði við nasism-
anum og var því
ekki í náðinni
hjá nasistum.
Eftir stríðið töldu margir hann hins
vegar tilheyra nasistum og því var
vandlifað fyrir þennan rólyndismann.
Saga Þorbjargar, skráð af Magnúsi
Bjarnfreðssyni, snertir strengi í
brjóstum okkar allra.
Ævisaga Margrét Guðjónsdóttir í
Dalsmynni í Eyjahreppi ber heitið Með
létt skap og liðugan talanda. Hún
ákvað níu ára gömul að giftast aldrei.
Sextán ára hitti hún manninn í lífi sínu
og eignaðist ellefu börn. Þess utan
höfðu þau hjónin fjölmörg börn í fóstri
um skemmri eða lengri tíma svo það
var sjaldnast lognmolla á heimili þeirra.
Mörg af þessum börnum segja hér frá
ævintýralegri vist
sinni í Dalsmynni.
Margrét segist ekki
hafa verið penasta
pían í sveitinni, en
það hélt þó ekki
aftur af henni, því
hún er þekkt fyrir
að hafa skoðanir
á öllu og sumt af
því hefur hún fellt
í ljóðstafi, enda hagyrðingur góður. Það
er Anna Kristine Magnúsdóttir sem
skráir lífssögu Margrétar.
Í bókinni Læknir í blíðu og stríðu
segir Páll Gíslason læknir, skátahöfðingi
og borgarfulltrúi frá viðburðaríkri
ævi sinni. Hann var brautryðjandi í
æðaskurðlækningum og hóf slíkar
aðgerðir fyrstur lækna á Íslandi við
sjúkrahúsið á Akranesi og byggði síðan
upp æðaskurðdeild á Landspítalanum.
Þá hefur hann verið skáti frá 12 ára aldri
og unnið mikið og óeigingjarnt starf
í þeirra þágu. Þeir sem hafa gaman af
græskulausum sögum ættu alls ekki að
láta þessa bók framhjá sér fara. Hér
fljóta mörg gullkornin með og þess utan
eru dregnir fram í sviðsljósið menn á
orð við Albert Guðmundsson, sem ekki
var hátt skrifaður hjá Páli, og Davíð
Oddsson. Hávar Sigurjónsson skráði
ævisögu Páls.
D-dagur – orrustan um Normandí,
eftir Antony Beevor, er eitthvert vin-
sælasta sagnfræðiritið í veröldinni
um þessar mundir. Flugmönnum,
hermönnum og sjóliðum Bandamanna
sem tóku þátt í
orrustunni um
Normandí leið 6.
júní 1944 aldrei
úr minni. Í dag-
renningu var
stærsti innrásar-
floti allra tíma,
mörg þúsund
fley af öllum
stærðum og gerð-
um, kominn að
ströndum Frakklands. Á ströndum
Normandí var þýskt herlið sem fékk
síðbúna viðvörun um það sem í vænd-
um var. Lokahnykkur síðari heims-
styrjaldarinnar var framundan.
Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku
gerir það ekki endasleppt í bókaskrifum.
Hann er vafalítið elstur þeirra sem taka
þátt í jólabókaflóðinu, orðinn 96 ára
gamall, en hann sendir nú frá sér bókina
Feimnismál. Í þessari tuttugustu
bók sinni gæðir hann fortíðina glettni
hins góða sagnaþular; gluggar í gömul
bréf, skoðar kynjamyndir Austfjarða-
þokunnar, segir frá ferðum sínum
með strandferðaskipum og kynnum af
fjölmörgu fólki, m.a. listamönnum og
stjórnmálamönnum, þ.á.m. Ólafi Thors
sem talaði eins vel um framsóknar-
dindlana og hann þorði. Og hvernig
fór svo með hvolpinn sem Vilhjálmur
neitaði að flytja suður?
Primakryddin
klikka ekki
-góð á jólum
prófaðu bara!
Fást í næstu búð
Húnagull inniheldur húðað salt þannig að
það dregur ekki safann úr kjötinu og því
gott að láta kryddið liggja á nokkra stund
fyrir eldun. Húnagull gefur gott bragð,
blandað pipar, hvítlauk og papriku.
Poppsalt er einstaklega
lúffengt á poppkorn sem
er poppað á gamla mátann
og einnig til að bragðbæta
örbylgjupopp.
Best er að strá poppsalti yfir
nýpoppað poppkorn.
-