Feykir - 28.11.2013, Blaðsíða 6
2 01 36
Halldór hefur búið að Molastöðum
í 16 ár, ásamt eiginkonu sinni Maríu
Þórunni Númadóttur og eiga þau sex
börn. Halldór er Reykvíkingur en
María uppalin í Fljótum og kynntust
þau í Bændaskólanum á Hvanneyri. Í
dag búa þau með um 450 kindur og
þrjár geitur. Til að sinna rollunum eru
níu fullorðins hrútar og sjö lambhrútar.
„Ég setti sjálfur fimm lambhrúta á en
nágrannar mínir vildu endilega gefa
mér tvo til viðbótar,“ segir Halldór.
Aðspurður segir Halldór best að láta
náttúruna hafa sinn gang þegar kemur
að fengitímanum, það sé einkum
forvarnarstarf sem þurfi að vinna til
að hrútarnir haldi sig innan marka. „Í
sjálfu sér er best að láta hrútana sjá um
þetta sjálfa, en fram að því þarf að rýja
féð, gefa því ormalyf og sortera eftir
aldri og jafnvel lit. Síðan þarf að smíða
öflugar milligerðir, því hrútarnir eiga
það til að mölva spil og vilja heimsækja
næsta hrút á meðan á fengitíma stend-
ur, og þá fer ætternisókhaldið út í
vindinn. Síðan þarf að skipta um hrút
á öðru gangmáli eins og sagt er, en það
kemur fyrir að þeir ná einhverra hluta
vegna ekki að lemba ærnar. Ég hef sem
betur fer ekki lent í því enn,“ útskýrir
Halldór.
En skyldi þetta vera besti tími ársins
hjá hrútunum, þó þeir séu ekki endi-
lega meðvitaðir um að það séu jól?
„Ég reikna með því, en þeir eru ekkert
að eyða orku í þetta brölt nema á
fengitímanum, það er nú annað en við
mannfólkið. Hrútarnir eru oft ósáttir
Jólin eru
hátíð hrútanna
VIÐTAL
Kristín S. Einarsdóttir
Fengitíminn í fjárhúsunum
Aðventan og jólin eru sannarlega mikil hátíð fyrir
hrúta þessa lands, því þá hefst hinn svokallaði
fengitími, en fyrir þá sem ekki vita hvað í því felst þá
er það sá tími sem ástarlíf sauðfjár er í blóma. Hver hrútur þarf að þjónusta
fjölmargar kindur og æskilegt er að þær festi allar fang á þessum umrædda
fengitíma. Feyki lék forvitni á að vita hvernig fengitíminn gengi fyrir sig
og brá sér því í heimsókn til Halldórs bónda Hálfdánarsonar á
Molastöðum í Fljótum.
við fóstra sinn þegar hann tekur þá
úr kvennabúrinu, en þetta eru samt
spakar skepnur. Eftir fengitíma fer
drjúgur tími hjá þeim í að ná aftur
fyrri holdum, en eðlilega grennast
þeir frekar mikið á meðan á fengitíma
stendur, enda afgreiðir góður hrútur
allt að 50-60 ær á hverjum fengitíma.
Hrútunum er síðan sleppt á vorin
eins og öðru fé og halda þeir gjarnan
hópinn allt sumarið.“
Halldór segir það stundum henda
Halldór Hálfdánarson með forystuhrútinn Helga frá Snartarstöðum í Öxarfirði.