Feykir - 28.11.2013, Side 23
2 32 01 3
Stór hluti Kammerkórs Skagafjarðar
samankominn í Áshúsi eftir vel heppnaða
tónleika á Degi íslenskrar tungu.
Anna Þóra
Slóvensk
gerbrauðs rúlluterta
Hráefni:
2 dl volg mjólk
140 gr brætt smjör
4 eggjarauður
30 gr þurrger
600 gr hveiti
140 gr sykur
1 tsk vanillusykur
2 msk rifinn sítrónubörkur (þarf
ekki)
Aðferð: Allt hnoðað saman og
flatt út.
Mauk:
400 gr valhnetur
200 gr sykur
2 dl sýrður rjómi
3 msk romm
1 dl rúsinur
4 eggjahvítur
Aðferð: Rúsínurnar bleyttar í
romminu og allt síðan hrært
saman og sett inn í deigið
og rúllað upp. Bakað í 2-3
jólakökuformum. Í Slóveníu
er vaninn að láta þetta lyfta
sér í 6 klst. en mér hafa alveg
dugað tveir. Bakað við 180°C í
40-60 mín. Tekið úr forminu
sem smurt var með olíu áður.
Látið kólna og stráið svo
flórsykri yfir.
Gunnar Sandholt
Hólableikja að hætti
Gizurar í mysukerinu
(Vel má vera að fleira hafi verið í kerinu
en skrokkurinn af Gizuri og sláturkeppir)
Hráefni:
Hólableikjuflök að vild (með eða
án roðs).
Flökunum raðað á álbakka eða
umslag úr álpappír.
Aðferð: Á hvert flak fer tæpur
hornspónn mysa, nokkrir
sítrónudropar, pipar og salt og
smá dass af uppáhalds kryddi
hvers og eins. Ég notaði
sérstakt grænt fiskikrydd sem
ég keypti í grárri dós, hef líka
notað það sem heitir Svensk
skjärgårdssalt og eru malaðar,
grænar fjörujurtir undan
sænskum sóldýrkendum en
þá sleppir maður saltinu sem
Svíinn hefur sett í blönduna.
Síðan er sáldrað yfir flökin
púðursykri þannig að vel sjáist
að sykrað hafi verið, en þó
ekki þakið. Í stað púðursykurs
má nota fljótandi hunang eða
fíflasíróp sem stundum fæst
í Maddömukoti á Króknum.
Grillið hitað sem mest má og
bakkanum skellt á og grillinu
lokað. Grilltíminn á að vera
stuttur, eða bara þar til að
sykurinn er bráðnaður og allt
kraumar, hámark 7 mínútur.
Auðvitað má baka þetta í ofni
með sömu aðferð. Báða þessa
fiskrétti má bera fram með
góðu hvítvíni, t.d. Riesling
frá Alsace eða Nýja Sjálandi,
eða jafnvel Poully Fume eða
Sancerre víni.
þeir þann 11. desember, kl. 20:30. Á þeim
tónleikum verður brugðið á það nýmæli að
syngja með Kirkjukór Hóladómkirkju, segir
Gígja Sigurðardóttir söngkona. Kórinn æfir
einu sinni í viku, á miðvikudagskvöldum
yfir vetrartímann og nýráðinn kórstjóri er
Helga Rós Indriðadóttir.
Judith
Kryddkaka
Hráefni:
3-4 msk (20 gr) brúnkökukrydd
350 gr púðusykur
1 msk vanillusykur
1 msk kanill
3 msk kakó
200 gr hveiti
100 gr heilhveiti
3 tsk lyftiduft
150 gr möndlumjöl
Aðferð: Hitið 250 ml mjólk
(má ekki sjóða) og bræðið
150 gr smjör í mjólkinni.
Hrærið þetta saman með
hveitiblöndunni og bætið 5
msk hunangi og 4 eggjum
í deigið. Fletjið svo deiginu
út á bökunarplötu með
bökunarpappír. Látið bakast í
u.þ.b. 15 mín.við 200°C. Skerið
í ferninga þegar kakan er búin
að kólna og skreytið með
möndlum og sykurskrift eða
bætið súkkulaðikremi ofan á.
Guðrúr og Boggi
Hólmfríðarkökur
Hráefni:
200 gr smjör eða smjörlíki
2 dl sykur
2 dl púðursykur
2 egg
1 tsk vanilludropar
4 dl hveiti
4 dl kornflex
2 dl kókosmjöl
4 dl haframjöl
Aðferð: Smjör sykur egg
og vanilludropar hrært vel
saman og svo restinni af
þurrefnunum blandað saman
við. Sett á plötu með skeið
eða búnar til litlar kúlur og
þrýst ofaná þær með gaffli.
Bakist við 180-200°C í u.þ.b.
10 mín. eða þar til að þær
eru ljósbrúnar. Gott að dýfa
kökunum í bráðið súkkulaði,
þannig að súkkulaðið þeki
hálfa kökuna.
Nonni & Gígja
Jólasælgæti
Hráefni:
1 dl rjómi
50 gr smjör
300 gr súkkulaði, gróft saxað
2 msk dökkt romm
½ tsk chili-duft
1 dl kakó
Aðferð: Rjómi og smjör
soðið saman. Tekið af
hitanum og súkkulaðinu
bætt út í. Hrært vel saman
og rommi og chili bætt
við. Sett í kæli í a.m.k. 2
klst. Mótið kúlur og veltið
þeim upp úr kakóinu.
Geymist í kæli.
Gunni Sig
Marengskossar
Hráefni:
4 eggjahvítur
1 tsk vanilludropar
Pínulítið salt
1 1/3 bolli sykur
Aðferð: Þetta er þeytt
mjög vel saman.
1 ½ bolli kókosmjöl
1 ½ bolli saxað súkkulaði
Aðferð: Sett út í eggja-
þeytinginn og blandað
varlega samanvið. Sett
á bökunarplötu með
teskeið og bakað í 20 mín
við 150°- 175°C. Gott að
bera súkkulaði á botninn
líka þegar kökurnar hafa
kólnað.