Feykir - 28.11.2013, Page 27
2 72 01 3
Pétur Örn Björnsson er fæddur
á Sauðárkróki árið 1955. Að
afloknu stúdentsprófi frá MT
árið 1975 nam hann Almenna
bókmenntafræði við HÍ og
lauk BA prófi þaðan árið 1980
með lokaritgerð sinni um
list og veruleika í Flateyjar-
Frey, ljóðfórnum Guðbergs
Bergssonar. Eftir það lærði hann
arkitektúr við Arkitektskolen
i Aarhus, lauk þaðan Cand.
Arch. prófi árið 1986 og hefur
síðan starfað samfellt sem
arkitekt. Pétur Örn gekk ávallt
undir nafninu Össi er hann
bjó á Króknum sonur Björns
Daníelssonar skólastjóra og
konu hans Margrétar Ólafs-
dóttur. Feykir sendi Össa
nokkrar spurningar í tilefni
útgáfu bókarinnar og byrjaði á
að forvitnast um það hvernig
það var að alast upp á Króknum.
-Í reynd á ég engar minn-
ingar aðrar en góðar frá þeim
tíma sem ég var að alast upp
á Króknum. Við krakkarnir
bjuggum almennt séð við
mikið frelsi og heimur okkar
þar var sem töfraheimur sem
spannaði allt frá gömlu fjörunni
og um nafir og móa og alla leið
til uppruna lækjarspræna í efstu
hlíðum, gömlum og mislitum
snjóalögum og til útsýnis
af hlíðartoppi þaðan sem
okkur virtist sem töfraheimur
Skagafjarðar væri óendanlegur
og okkur sífellt rannsóknarefni.
Þó var það ekki þannig að
við gengum alveg sjálfala því
bærinn taldi þá einungis um
1100 bæjarbúa og allir þekktu
alla og þegar við komumst í
ógöngur þá virtist alltaf einhver
fullorðinn hafa vitað af ferðum
okkar og af umhyggjusemi
látið foreldra okkar vita ef
ástæða þótti til. Þannig man
ég t.d. eftir því að þegar okkur
nokkra polla tók að reka á haf
út á hriplekum pramma sem
við höfðum neglt saman að
það varð uppi fótur og fit og þó
héldum við að enginn vissi af
Í BIFRÖST HEYRÐIST BANG
Af gömlu og þvældu bréfsnifsi einu saman birtist
okkur nú bíóið (sem það var í einhverju ævintýri
fyrir löngu) í löngu gleymdum (en geymdum)
hlæjandi kátum leirburði okkar krakkanna í
Bifröst:
Bang!
Við hrökkvum í kút
lítinn labbakút.
Loksins kom að því.
Bang! Pang! Bang!
Þrír káf-bojar í bíó dauðir
og við eins og sauðir
og bíóið búið.
Ó, Rómeó!
Ó, Júlía!
Tarsan og Jane eða Roy
og Trigger að hneggja.
Og nú heyrum við enn og aftur Bang! En nú er
það bara hann Ole apótekari Bang að birtast
okkur af ljúfmennsku sinni úr jóreyk tímans að
handan og mér virðist hann segja að hann langi
til að taka einn hátíðarhring sem hvítur Falcon
og svífa yfir götum bæjarins sem værum við öll í
draumi – og öll orðin – vængjuð.
Af kynjum og víddum
…og loftbólum andans
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Fyrsta ljóðabók Péturs Arnar Björnssonar
Í ljóðabókinni Af kynjum og víddum … og loftbólum andans
flæða yrkisefnin milli himins og jarðar, frá fortíð til nútíðar.
Allt frá unglingsárum hefur Pétur Örn fengist við ljóðaskrif
og samhliða námi í menntaskóla og síðar bókmenntafræði skrifaði hann mikið af
ljóðum og birtust nokkur þeirra í blöðum og tímaritum. Ljóðaskrifin urðu strjálli
með árunum en í kjölfar hrunsins haustið 2008 hófust þau aftur af fullum krafti.
Nú, fimm árum síðar, fannst Pétri mál til komið að taka fyrsta þversnið í þann
mikla ljóðahaug sem safnast hefur upp í gegnum árin og setja saman í bókarform.
að reyna með öllum ráðum að
bjarga mér á eigin spýtur og
enda þótt mörgum finnist það
skrýtið að byrja þá að skrifa aftur
ljóð af fullum krafti þá finnst
mér það jafn skrýtið að menn
reyni ekki að nýta hæfileika
sína á þeim sviðum sem þeir
telja sig hafa eitthvað að gefa
öðrum af sjálfum sér til andans
og vitsins ... vonandi. Ég er ekki
hættur sem arkitekt en mín von
er sú að ég geti samhliða gefið
ljóðrænunni aukið vægi í lífi
mínu. Karl Ólafsson læknir,
Kalli á spítalanum, styrkti
útgáfu minnar fyrstu bókar og
fyrir það er ég honum mjög
þakklátur. Mér hefði ekki tekist
að koma bókinni út án tilstyrks
hans. Enda ættu allir að geta
ímyndað sér það að maður sem
hefur skrifað nú nær samfellt í
fimm ár, án nokkurra styrkja
eða launa, eigi varla fyrir
bótinni á buxurnar hvað þá að
leggja út fyrir öðrum kostnaði.
Hvað gerðir þú í tilefni
útgáfu bókarinnar?
-Kalli blés til hófs að
Hannesarholti og ég las upp
úr bókinni fyrir um fimmtíu
manns sem þangað mættu. Það
var mér mjög gefandi að finna
hvað margir hugsuðu þar hlýtt
til mín. Nokkrir gamlir eðal-
Króksarar og aðrir góðir vinir,
frændfólk og velunnarar.
Eitthvað sem þú vilt koma
á framfæri?
-Gamli Krókurinn mun alltaf
verða geirnegldur í hjarta mitt
og minni. Vegurinn að heiman
er vegurinn heim.
Pétur Örn.
Frá æskuárum. F.v. Jóhann Friðriksson, Ingimundur Guðjónsson og Pétur Örn en í sófan-
um situr Margeir Friðriksson á milli tvíburanna Ingibjargar og Sigurðar Guðjónsbarna.
þeirri miklu sjóferð okkar. Þó er
eitt sem enginn fullorðinn vissi
um og það er þegar við Bjarni
Egils, Muggur, Hannes Malla
og Gústi klifum Tindastól
lóðbeint upp frá Skarði um
hávetur, að mig minnir 12 ára
gamlir, og við vissum að það
væri best að enginn fullorðinn
skyldi nokkru sinni vita af þeirri
svaðilför okkar því svo nærri
komumst við þar dauðanum á
flughálum efsta stallinum, bæði
á uppleiðinni og niðurleiðinni,
að við vissum að þar höfðum
við storkað örlögunum einum
of og algjör óþarfi að gera meira
mál úr því.
Nú skrifaði pabbi þinn
sögur og ég man eftir
barnabók eftir hann þar
sem Össi, Bassi og Villi
lentu í ævintýrum. Hvernig
þótti ungum manni að vera
söguhetja þá?
-Þegar pabbi skrifaði litlu
bækurnar um Sílaveiðina og
Skóladaga þá man ég að ég var
ekki alveg sáttur við að nöfnin
sem hann gaf söguhetjunum
því mínir vinir voru þá mestir
og bestir, Jóhann Friðriks.
og Bjarni Egils. Hann sagði
mér hins vegar að ég yrði að
fyrirgefa honum það að Össi,
Bassi og Villi hljómaði betur
í sögunni en Össi, Bjarni og
Jóhann. Ég játti því enda
vorum við pabbi afskaplega
nánir og ég sætti mig við þetta
sem og önnur skáldaleyfi hans
og pabba er tileinkuð mín fyrsta
bók: Af kynjum og víddum ...
og loftbólum andans.
Varstu ungur farinn að
semja ljóð?
-Eiginlega var ég sem krakki
alltaf að skrifa eitthvað á litla
miða sem týndust mér svo.
Maður var strax sem barn alæta
á stórt bókasafn pabba og las
þar flest spjaldanna á milli. En
svo snerist hugurinn jafnvel
enn meira til myndlistar og
jafnvel til þess að blása í allra
gerða blokkflautur og gamlan
saxafón sem ég fann uppi á
háalofti heima á Hólavegi 8 og
sem annar hvor eldri bræðra
minna hafði keypt vel notaðan
af þeim mikla listamanni Hauki
Þorsteins.
Manstu eftir fyrsta ljóðinu
eða vísunni?
-Fyrsta ljóðið var á miða sem ég
týndi fyrir löngu.
Það segir í bókarkynningu
að í kjölfar hrunsins
haustið 2008 hafi ljóða-
skrif hafist af fullum krafti.
Hvernig stendur á því?
-Ég er arkitekt og hafði starfað
sem slíkur alveg frá því ég lauk
námi snemma árs 1986. Eins
og flestir vita þá hefur lítið sem
ekkert verið að gera hjá flestum
arkitektum eftir hrunið haustið
2008. Ég er einyrki og því vanur