Feykir - 28.11.2013, Side 39
3 92 01 3
Ragnar Jónasson með nýja bók í Norðurlandssyrpunni
Á ættir að rekja í Blöndudal og til Siglufjarðar
Bækurnar í syrpunni gerast
allar fyrir norðan, sú fyrsta
á Siglufirði, sú næsta í
Skagafirði og á Siglufirði og sú
þriðja einkum í Héðinsfirði.
Sögusviðið að þessu sinni
er Kálfshamarsvík og Kálfs-
hamarsnes, rétt norðan við
Skagaströnd, en þar stóð áður
þorp sem nú er farið í eyði,
(eins og fjallað var um í 43. tbl.
Feykis). Á nesinu stendur einn
af þekktustu vitum landsins,
en Ragnar bætir við einu húsi
á nesið fyrir söguna og er það
miðpunktur fléttunnar.
En hvers vegna varð Norð-
urland fyrir valinu sem sögu-
svið bókanna, og nú Kálfs-
hamarsvík?
-Faðir minn ólst upp á Siglu-
firði og afi minn og amma
bjuggu þar, Þ. Ragnar Jónasson
fræðimaður og bæjargjaldkeri
og Guðrún Reykdal, en síð-
asta bók (Rof) var einmitt
tileinkuð minningu þeirra. Ég
hef komið oftar til Siglufjarðar
en ég hef tölu á, að jafnaði oft á
ári frá því áður en ég man eftir
mér og því lá nokkuð beint
við að velja Siglufjörð sem
sögusvið, enda hefur hann
auk þess margt til að bera sem
hentar vettvangi spennusögu;
bærinn er nokkuð einangr-
aður að vetri til, umhverfið
er eftirminnilegt, há fjöll sem
vernda bæinn, auk þess sem
hann á sér mikla og merkilega
sögu sem miðstöð síldar-
ævintýrisins, segir Ragnar.
-Fyrsta bókin mín sem
VIÐTAL
Kristín S. Einarsdóttir
Í október kom út hjá
bókaforlaginu Veröld fjórða
glæpasagan í Norðurlandssyrpu
Ragnars Jónassonar um lögreglumanninn Ara Þór
Arason. Bókin hefur fengið titilinn Andköf og er
sjálfstætt framhald af fyrri bókum, Snjóblindu,
Myrknætti og Rofi, en eins og greint hefur verið
frá eru Saga Film og Þorvaldur Davíð Kristjánsson
leikari nú að vinna að þróun sjónvarpsþáttasyrpu eftir
bókunum. Feykir setti sig í samband við rithöfundinn
sem rekur ættir sínar á Siglufjörð og í Blöndudal í
Austur-Húnavatnssýslu.
gerðist á Siglufirði kom út
árið 2010, Snjóblinda, og
hef ég haldið áfram að skrifa
um Norðurland. Það eru
hins vegar takmörk fyrir því
hversu marga glæpi hægt
er að "fremja" í bókum í
svona litlum bæ, og af þeim
sökum hef ég nýtt mér aðra
staði á Norðurlandi líka,
m.a. Skagafjörð, Akureyri
og Dalvík. Í nýju bókinni
valdi ég Kálfshamarsvík á
Skaga sem sögusvið, þar sem
sá staður hefur afskaplega
merkilega sögu auk þess sem
umhverfið þar er myndrænt
og dramatískt. Þess má
einnig geta að ég á ættir að
rekja í Húnavatnssýslurnar,
en langafi minn, Jónas
Guðmundsson, bjó þar - í
Blöndudal - og nýti ég mér
dagbækur hans aðeins í nýju
sögunni.
Jólamorðgáta
Nokkrum dögum fyrir jól
finnst ung kona látin undir
klettum í Kálfshamarsvík og
Ari Þór fær það hlutverk að
rannsaka málið. Hann kemst
að því að bæði móðir og
barnung systir hinnar látnu
hröpuðu fram af þessum
sömu klettum aldarfjórðungi
áður. Þeir fáu sem enn búa
á staðnum virðast allir hafa
eitthvað að fela. Og áður en
jólahátíðin gengur í garð
dynur ógæfan aftur yfir.
Segja má að sagan sé
eins konar jólamorðgáta, en
rannsóknin hefst á Þorláks-
messu og henni lýkur rétt
eftir klukkan sex á aðfanga-
dagskvöld. "Bókin gerist um
jól, og þótt umfjöllunarefnið
sé ekkert sérstaklega jólalegt
komst ég í rífandi hátíðarskap
við að lesa þessa bók. Hún fær
því þrjú blóðug jólasokkapör
af fjórum mögulegum," sagði
Gísli Marteinn Baldursson á
dögunum um Andköf.
Ragnar Jónasson er fæddur
árið 1976 og hefur skrifað
fimm skáldsögur auk þess
sem hann hefur fengist við
þýðingar á sakamálasögum.
Tvær bóka hans, Snjóblinda
og Myrknætti, hafa komið
út hjá þýska útgáfurisanum
Fischer Verlage.
Ragnar Jónasson sendi nýverið frá sér fjórðu bókina í Norðurlandssyrpunni um lögreglumanninn Ara Þór Arason.