Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 2 1 . T Ö L U B L A Ð 1 8 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 4 . M A Í 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Þorvaldur Gylfason um
gildasta auðlindasjóð heims. 15
SPORT Sara Björk Gunnarsdóttir
keppir til úrslita í Meistaradeild
Evrópu í dag. 22
LÍFIÐ Hátíðarsýning á Kona fer í
stríð vakti lukku. 40
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK
l ÚT AÐ HLAUPA
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
AR
I F
RE
YR
S
K
Ú
LA
SO
N
23 DAGARí HM
Safnaðu öllum leikmönnunum
12 MANNA
ÁSAMT FYLGIHLUTUM
MIKIÐ ÚRVAL
VERÐ FRÁ KR. 24.990
HNÍFAPARATÖSKUR
LAUGAVEGI 178 – SÍMI 568 9955
VIÐSKIPTI „Þessi umræða hefur
örugglega ekki verið okkur til góðs.
En við höfum reynt að vanda okkur
eins og við getum í okkar störfum,“
segir Guðbrandur Sigurðsson, for
stjóri fasteignafélagsins Heima
valla, um umræðuna sem hefur farið
fram síðustu daga um
hækkun húsaleigu hjá
íbúðaleigufélögunum.
Í dag hefjast viðskipti
með hlutabréf í Heima
völlum á Aðallista
Kauphallar Íslands.
– jhh / sjá síðu 8
Umræðan ekki
verið til góðs
HEILBRIGÐISMÁL Það gerist ítrekað
að lífsnauðsynleg lyf handa lang
veikum börnum eru ekki til á
landinu. Dæmi eru um að foreldrar
þeirra haldi úti skiptimarkaði fyrir
lyf til að tryggja velferð barna sinna.
Lyfin sem um ræðir eru öll undan
þágulyf sem ekki er markaðsleyfi
fyrir hér á landi. Ástæðurnar fyrir
því geta verið margvíslegar. Til að
mynda ef um er að ræða nýtt lyf
sem ekki hefur hlotið skráningu
eða ef lyfið er gamalt og framleið
andi hefur ákveðið að taka lyfið af
markaði.
Ákvörðun um notkun undan
þágulyfs er tekin af lækni viðkom
andi. Sá sendir beiðni þess efnis
sem Lyfjastofnun þarf að samþykkja
hvert sinn. Eftir að samþykki liggur
fyrir hefja umboðsaðilar lyfsins hér
á landi vinnu við að panta það til
landsins. Frá því að ávísun læknis
liggur fyrir og þar til lyfið kemur til
landsins getur liðið langur tími.
„Maður finnur til með fólki sem
er í þessari aðstöðu. Við erum öll af
vilja gerð og höfum hag sjúklinga að
leiðarljósi. En Ísland er lítill mark
aður í stóra samhenginu,“ segir
Gunnur Helgadóttir, framkvæmda
stjóri Vistor. Fyrirtækið veitir lyfja
fyrirtækjum meðal annars þjónustu
við skráningar og aðstoðar við flutn
ing og dreifingu þeirra.
Gunnur segir að þegar um undan
þágulyf sé að ræða hafi framleiðandi
ákveðið að markaðssetja það ekki.
Sem betur fer komi fleiri ný lyf inn
á markaðinn heldur en hitt.
„Þau lyf eru ekki pöntuð eins og
lyf sem pantað er á markaði. Læknir
viðkomandi skráir ákveðið magn og
sjaldnast er mikið flutt inn umfram
það, sérstaklega ef lyfið er almennt
lítið notað. En við hvetjum fram
leiðendur til að skrá lyfin því það er
öruggara,“ segir Gunnur.
„Lyfjaskortur er mál sem við
höfum haft áhyggjur af lengi og tjáð
okkur um,“ segir Valtýr Thors, for
maður Félags íslenskra barnalækna.
Valtýr segir að vandinn sé ekki
einskorðaður við undanþágulyf
heldur komi mjög reglulega upp
ástand þar sem lyf eru ekki fáanleg.
„Oft er sú ástæða gefin upp, sem er
mjög þægileg fyrir birgjana, að það
sé alheimsskortur á því. Staðreynd
in er hins vegar sú að það stenst ekki
alltaf. Við höfum stundum haft sam
band við Skandinavíu og þar eru
þau til og ekkert vandamál uppi,“
segir Valtýr.
Kjarninn sé sennilega sá að birgj
arnir passa sig á því að panta ekki
of mikið til landsins til að sitja ekki
uppi með ónotaðan lager. Sé notk
un skyndilega yfir meðallagi klárist
birgðirnar.
„Slíkt er náttúrulega með öllu
ótækt og ekki hægt að bjóða upp
á það í nútíma vestrænu samfélagi.
Mér þykir mjög heillavænleg hug
mynd að hafa samnorrænan banka
fyrir lyf þannig þetta yrði eitt mark
aðssvæði. Það fyrirkomulag er við
lýði varðandi bóluefni og ég sé ekki
hví það ætti ekki að geta gilt um
önnur lyf líka,“ segir Valtýr.
– jóe / sjá síðu 6
Grípa til örþrifaráða til
að fá lífsnauðsynleg lyf
Foreldrar langveikra barna hafa þurft að leita á náðir annarra foreldra vegna
skorts á lyfjum fyrir börn sín. Formaður Félags íslenskra barnalækna segist lengi
hafa haft áhyggjur af lyfjaskorti. Reglulega séu ýmis lyf ekki fáanleg hér á landi.
Lyfjaskortur er mál
sem við höfum haft
áhyggjur af lengi.
Valtýr Thors,
formaður Félags
íslenskra
barnalækna
Eins og við var að búast voru raddböndin þanin við útskrift hjá Söngskólanum í Reykjavík sem haldin var í gær. Hér syngur Harpa Ósk Björnsdóttir,
nemandi Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur, aríu úr West Side Story eftir Leonard Bernstein við undirleik Kristins Arnar Kristinssonar. „Þetta er með
erfiðari aríum fyrir sópran sem hún söng alveg ævintýralega vel,“ sagði Garðar Cortes, skólastjóri Söngskólans, um flutninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
2
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
3
-2
C
3
0
1
F
E
3
-2
A
F
4
1
F
E
3
-2
9
B
8
1
F
E
3
-2
8
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K