Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 30
Síðan höfum við eiginlega búið á Esjunni frá því í apríl en við reynum að fara þangað tvisvar í viku og hlaupum í 1,5 til 4 klst. Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.is Ábyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 Um sex ár eru síðan Reynir Stefán Gylfason endurskoð-andi hóf að stunda hlaup af kappi en þá bjó hann og fjölskylda hans í Sviss. Þau hjónin tóku þátt í sínu fyrsta maraþonhlaupi í Amst- erdam árið 2015 og árið 2017 hóf hann að stunda utanvegahlaup. Síðan þá hefur hann m.a. keppt í 83 km utanvegahlaupi í Annecy í Frakklandi á síðasta ári og er um þessar mundir að undirbúa sig fyrir 105 km hlaup á Ítalíu í sumar. „Ég byrjaði að hlaupa eitthvað af viti í Sviss árið 2012 enda var nán- ast alltaf logn þar og frekar hlýtt. Fyrstu árin var þetta frekar ómark- visst hjá mér og helsta markmiðið var að koma mér í betra líkamlegt form. Eftir að við fluttum heim til Íslands 2014 elti ég eiginkonu mína, Lilju Dögg Stefánsdóttur, í hlaupahópinn Bíddu aðeins, sem í dag heitir Hlaupahópur Breiða- bliks. Undanfarin ár hef ég hlaupið þrjú maraþon, það síðasta í Tel Avív í febrúar. Í dag nýt ég þess að hlaupa einn til þess að hreinsa hugann og um leið að hitta hlaupa- félagana um helgar og njóta félags- skapar þeirra.“ Esjan helsta æfingasvæðið Utanvegahlaupið í Annecy í Frakk- landi kom til með skömmum fyrir- vara að sögn Reynis. „Fjölskyldan var stödd í fríi í Ástralíu þar sem eldri sonur okkar var í háskóla þegar fjórir félagar úr hlaupahópn- um ákváðu að skrá sig í hlaupið. Ég hef alltaf verið til í að takast á við nýjar áskoranir og mér fannst þessi áskorun vera þess eðlis að ég gæti ekki sleppt henni.“ Hann skráði sig því í hlaupið án þess beinlínis að velta því mikið fyrir sér. Frá því í janúar 2017, fram að hlaupi 27. maí, æfði hópurinn 4-6 sinnum í viku og hljóp rúmlega 60 km að meðaltali í viku. „Við fengum Elísabetu Margeirsdóttur til að aðstoða okkur við að búa til æfingaáætlun sem við fylgdum eftir nokkuð samviskusamlega. Lykilæfingin var langt hlaup um helgar sem var frá 2,5 klst. upp í 6 klst. sem var lengsta æfingin. Við höfum reynt að gera meira úr þessum löngu æfingum, förum yfirleitt saman í sund á eftir, tökum spjall og slökum á í heita og kalda pottinum. Lágafellslaug verður gjarnan fyrir valinu enda er hún næst Esjunni sem er okkar helsta æfingasvæði fyrir fjallahlaup.“ Svipaður undirbúningur Hlaupið í sumar á Ítalíu verður öllu lengra eða 105 km og verður hækkunin rúmlega 7.000 metrar, samanborið við 5.200 hækkun í Frakklandi á síðasta ári. „Við vorum að leita að utanvegahlaupi fyrir þetta sumar og Elísabet kom með þessa hugmynd. Hlaupið er haldið á Norður-Ítalíu og hefst í bæ sem heitir Courmayeur. Margir Íslendingar þekkja svæðið sem er vinsælt skíðasvæði á veturna og göngusvæði á sumrin.“ Hann segir undirbúninginn hafa verið svipaðan og á síðasta ári en núna hafi þau byrjað fyrr þar sem hópurinn tók þátt í maraþon- hlaupi í Tel Avív í febrúar sem var hluti af æfingaáætluninni. „Síðan höfum við eiginlega búið á Esjunni frá því í apríl en við reynum að fara þangað tvisvar í viku og hlaupum í 1,5 til 4 klst. Hápunktur æfinga- plansins verður þegar við tökum þátt í Esjumaraþoninu sem verður 9. júní en það er um 45 km og með rúmlega 3.000 metra hækkun.“ Mælir með hlaupahópum Utan Esjumaraþonsins og Ítalíu- hlaupsins er fátt stórt á döfinni í sumar, segir Reynir. „Ég er þó að velta fyrir mér að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst og síðan er aldrei að vita hvað manni dettur sniðugt í hug.“ Aðspurður hvaða góð ráð hann geti gefið þeim sem langar til að byrja að hlaupa mælir hann eindregið með þátttöku í hlaupa- hópum. „Ég ráðlegg helst þeim sem vilja byrja að hlaupa að skrá sig í hlaupahóp en þeir eru mjög marg- ir, a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu. Það er mjög gott aðhald í hlaupa- hópum, skemmtilegur félags- skapur og fólk á öllum stigum hlaupagetu og reynslu. Þannig að allir ættu að geta hlaupið á sínum hraða og fundið sér hlaupafélaga sem er á svipuðu róli. Svo er bara að reima á sig skóna og skokka af stað!“ Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Vatnsheldir gæðaskór Skornirthinir.iS Verð 22.995 Stærðir 36-47 Lytos Cosmic Run Save the Children á Íslandi 2 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÚT AÐ HLAUPA Eftir þriggjalandahlaup í Austurríki þar sem hlaupið var í Þýskalandi, Austurríki og Sviss. Með honum eru Rannveig Borg Sigurðardóttir (t.v.) og Lilja Dögg Stefánsdóttir, eiginkona hans. Við æfingar við Esjuna í vetur meðan enn var snjór. Hlaupafélag- arnir taka stutta pásu við Stein- inn í hlíðum Esjunnar fyrr í vetur. Reynir er fyrir miðri mynd. Þreyttur en mjög glaður eftir utanvegahlaupið í Frakklandi á síðasta ári. 2 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E 3 -4 9 D 0 1 F E 3 -4 8 9 4 1 F E 3 -4 7 5 8 1 F E 3 -4 6 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.