Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir Pantaðu tiltekt á appotek.is eða í síma 568 0990 Garðs Apótek - í leiðinni Fáðu lyfin send heim með póstinum Pantaðu sendingu á appotek.is Garðs Apótek - um land allt Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar Og þú hitar bílinn með fjarstýringu – Webasto bílahitari -8° -6° -7° 0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 1 27.10.17 14:2 21° Tilfinning BÍLASMIÐURINN HF BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI: 567-2330 www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Amadeus borðstofuhúsgögn Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Komið og skoðið úrvalið Á miðnætti kemur út platan Trúpíter með Aron Can, hans þriðja plata ef við teljum mixteipið Þekkir stráginn með. Þetta eru 15 glæný lög sem Aron segir að séu öll „hittarar“. „Ínótt var kannski svolítið þung plata, munurinn er alveg gríðarleg- ur. Þessi plata er bara við í stúdíóinu að „fokkast“ í heilt ár, þetta er ekki jafn mikið svona verkefni og hin, Ínótt var rosalega mikil plata. Það er geðveikt gaman að prófa bæði. Þekkir stráginn er kannski milli- vegurinn. En þessi er svona „fokk“ – það kemur oft besta útkoman úr því, að vera á flippinu.“ Eins og áður eru það Jón Bjarni og Aron Rafn sem eru mennirnir á tökkunum og bak við Aron, en þeir hafa fylgst að alveg frá byrjun. „Það virkar alltof vel til að fara að breyta því. Þetta er svo náttúrulegt – þetta erum bara við í stúdíóinu og hugmyndirnar koma bara. Við erum kannski búnir að gera hálft lag og þá vitum við alveg hvert við erum að fara með það – það gerist kannski á 10 mínútum.“ Aron er sammála blaðamanni að hljómurinn hafi þróast töluvert og alls ekki staðið í stað – Þekkir stráginn var villtur Atlanta-legur mixteip hljómur og Aldrei heim er svo poppsmellur eins og þeir gerast bestir. „Ég er alltaf að þróa mitt dæmi og Jón og Aron eru líka að þróa sína tónlist sem við látum virka mjög vel saman og koma út á einhverjum punkti þar sem „input“ frá okkur öllum kemur saman. Ég er heima að skrifa texta, þeir heima hjá sér að gera „beats“ – þannig að auðvit- að erum við enn að þróa hljóminn okkar og munum aldrei hætta því.“ Spurður út í titil plötunnar, Trúpíter, segir Aron að honum hafi langað til að nefna plötuna Trúpí en einhverju sinni í ferlinu bak við eitt lag hafi Trúpíter orðið útkoman. „Þetta er „basically“ bara Trúpíter – plánetan sem við erum á, enginn annar.“ Umslagið á plötunni er teikning eftir listakonuna Örnu Beth sem Aron segir að tengist efni plöt- unnar beint – að ef maður hlusti á plötuna og horfi á umslagið þá eigi maður eftir að tengja. Myndum af umslaginu var hent upp á risaskilti fyrirtækisins Billboard til að kynna útgáfuna og fara svo aftur upp í sumar um allt land. „Skemmtilegt að fara nýjar leiðir. Amerískir rapparar gefa út og fá risaskilti á Times Square og mig langaði að gera svipað. Ég keyri Gullinbrúna á hverjum degi og þar sé ég alltaf svona skilti og þaðan kom hugmyndin. Skilti á Gullinbrú eða Grensásvegi er okkar Times Square, er það ekki?“ Aron segir að fram undan sé bara allsherjar spilamennska – hann stefnir á að spila meira erlendis en hann er einmitt nýlega kominn frá Ósló þar sem hann hélt tón- leika fyrir fullum sal. Norðmenn virtust þekkja lögin og Aron segir líka að það hafi verið lærdómsríkt og endurnærandi að komast í aðra orku og í kynni við aðrar skoðanir á tónlistinni. „Það var geðveikt. Fólk að syngja með án þess að kunna orðin – þann- ig að þau voru greinilega búin að hlusta á mig. Það er í alvörunni hægt að gera þetta þó að maður noti íslensku, fólk er að tengja við tónlistina án þess að skilja textann. Það er eins og það skipti ekki máli lengur að skilja hvert orð, þetta er bara væbið – maður skilur ekki allt sem Young Thug segir en nær samt að væba við það.“ Hann er á leiðinni aftur til Noregs í lok júní þar sem hann spilar á tón- listarhátíðinni North Of í Harstad lengst í norðurhluta landsins. „Sumarið verður rosalegt – það er bara að spila, halda áfram að gera tónlist í stúdíóinu og vonandi bara gefa út plötu strax. Eina vanda- málið okkar er að þegar við gefum út plötur erum við bara hálfnaðir með næstu. En við verðum á fullu í stúdíóinu, spila og bara njóta lífs- ins.“ stefanthor@frettabladid.is Glæný plata frá plánetunni Trúpíter Aron Can sendir frá sér plötuna Trúpíter á miðnætti. Hann segir að platan sé stútfull af smellum sem muni keyra sumarið í gang. Aron segir næstu plötu skammt undan enda sé hann alltaf í stúdíóinu. Aron Can fær í sumar andlit sitt á risaskilti á Times Square okkar Íslendinga, Gullinbrú. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ÞeTTA er „bAsiC­ Ally“ bArA TrúpíTer – pláneTAn sem við erum á, enGinn AnnAr. 2 4 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R42 2 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F E 3 -3 F F 0 1 F E 3 -3 E B 4 1 F E 3 -3 D 7 8 1 F E 3 -3 C 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.