Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 8
Ford Transit Custom er þekktur fyrir einstakan búnað, endingu og hagkvæmni. Með nýrri kynslóð bætir Ford enn í og gerir Transit Custom enn betri. Hinn nýi Ford Transit Custom er ríkulega búinn m.a. olíumiðstöð með tímastilli, upphitanlegri framrúðu, aksturstölvu, Easy fuel eldsneytisáfyllingu, upphitanlegu ökumannssæti, spólvörn, ESP stöðuleikakerfi, brekkuaðstoð og 14 geymsluhólfum í innréttingu. NÝR FORD TRANSIT CUSTOM – Betri en nokkru sinni 3.590.000 KR. MEÐ VSK. FÁANLEGUR SJÁLFSKIPTUR 2.895.000 KR.ÁN VSK. FORD TRANSIT CUSTOM KOSTAR FRÁ: Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 ford.is Ford_Transit_Custom_5x15_20180522_END.indd 1 22/05/2018 13:09 Viðskipti „Þessi umræða hefur örugglega ekki verið okkur til góðs. En við höfum reynt að vanda okkur eins og við getum í okkar störfum,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, for- stjóri fasteignafélagsins Heima- valla, um umræðuna sem hefur farið fram síðustu daga um hækkun húsaleigu hjá íbúðaleigufélögum eins og Heimavöllum, Almenna leigufélaginu og Íbúðalánasjóði. Hlutafjárútboð með bréf í félaginu fór fram í byrjun mánaðar og í dag hefjast viðskipti með bréfin á Aðal- lista Kauphallar Íslands. Í sögum sem leigjendur íbúðar- húsnæðis hafa sent VR segir til dæmis frá manni sem greiddi 115 þúsund krónur í leigu á mánuði. Á einum mánuði hafi leigan hækkað upp í 170 þúsund. Þá er sagt frá fjölskyldu sem tók íbúð á leigu árið 2016 og greiddi 225 þúsund. Leigan hafi síðan verið hækkuð um 25 þúsund í fyrra og svo aftur um 25 þúsund í ár. Það er 50 þúsund króna hækkun á tveimur árum. Þriðja dæmið er um konu sem tók hús á leigu af leigufélagi árið 2010 og greiddi 200 þúsund krónur í leigu á mánuði. Í janúar 2017 var leigan orðin 270 þúsund. Nýlega fékk hún tilkynningu um að leigan yrði hækkuð í 400 til 450 þúsund krónur á mánuði. Guðbrandur segir að eðlilega hafi leiguverð hækkað hjá Heimavöllum, eins og hjá mörgum öðrum, en ekk- ert í líkingu við það sem rætt hefur verið um. „Enda hefur ekki verið bent á slík dæmi hjá Heimavöllum hingað til.“ Hann segir þó að upp hafi komið dæmi þar sem Heimavellir hafi verið að taka yfir eignasöfn þar sem leigjendur hafi búið í íbúðum á grundvelli svokallaðrar dæmdrar leigu. Í slíkum tilfellum sé leigu- verðið mjög lágt miðað við mark- aðsleigu. Dæmd leiga er þegar Íbúðalána- sjóður hefur eignast íbúð á upp- boði. Sá sem býr í íbúðinni hefur þá farið fyrir dómstóla og fengið seturétt í íbúðinni á því leiguverði sem dómari ákveður. Guðbrandur gerir ráð fyrir að mesta hækkunin á leiguverði hafi verið þegar verið var að færa leiguverð úr slíkri leigu yfir í markaðsleigu. „Ég held líka að það sé mjög til bóta fyrir umræðuna að sjá reglu- legan rekstur á svona leigufélögum. Það er langt í frá að það sé sjálfgefið að það sé hægt að gera þetta, en með því að einbeita sér að því að ná fram stærðarhagkvæmni og vanda vel valið á íbúðum inn í safnið þá er þetta algjörlega raunhæfur kostur,“ segir Guðbrandur. Leiguverð verði alltaf einhver birtingarmynd af íbúðaverði og vaxtastigi. „Við erum að vinna á vaxtastigi sem er í rúmum fjórum prósentum. Nágrannalöndin eru í tæplega pró- senti. Ef við gætum lækkað vaxta- kostnað um helming þá værum við að ná fram 20 prósent lækkun á leigu að öllu óbreyttu. En auðvitað vitum við að ef vextir lækka skart þá getur það haft áhrif á eignarverð þannig að það er vandrataður vegur í þessu.“ jonhakon@frettabladid.is Telur vaxtalækkun geta lækkað leigu Í reynslusögum sem leigjendur hafa sent VR er sagt frá íbúðum þar sem leiguverð hefur hækkað um tugi prósenta á milli ára. Forstjóri Heimavalla segir að leiguverð ráðist af húsnæðisverði og vöxtum. FRéttablaðið/VilHelm Fyrsta skráning í hálft annað ár Skráning Heimavalla á Aðallista Kauphallar Íslands er sú fyrsta síðan bréf í Skeljungi voru tekin til viðskipta í desember 2016. Í hlutafjárútboði Heimavalla sem lauk 8. maí voru seldir 750 milljón nýir hlutir fyrir rétt rúmlega milljarð króna. Vegið meðalgengi í útboðinu var 1,39 krónur á hlut og var heildarvirði alls hlutafjár að lokinni hlutafjáraukningu því 15,6 milljarðar króna. Eignir Heimavalla námu tæplega 56 milljörðum króna um síðustu áramót og var eigið fé tæplega 17,6 milljarðar króna. Leigutekjur félags- ins á síðasta ári námu rétt tæplega 3,1 milljarði króna en rekstrar- kostnaður fjárfestingareigna nam rúmum milljarði. Hreinar leigu- tekjur námu því rétt tæplega 2,1 milljarði. Rekstrarhagnaður félags- ins fyrir matsbreytingu eigna nam 1,6 milljörðum króna. Stærstu eigendur Heimavellir munu í dag birta nýjan lista yfir 20 stærstu hlut- hafa félagsins. Hinn 23. apríl síðastliðinn voru 82 hluthafar í félaginu. Þeir 20 stærstu voru þessir: l Heimavellir leigufélag slhf. 10% l Stálskip ehf. 8,12% l Snæból ehf. 7,43% l Gani ehf. 7,43% l Sjóvá Almennar 4,68% l Túnfljót ehf. 4,44% l Vátryggingafélag Íslands hf. 3,86% l Klasi fjárfesting ehf. 3,80% l Frostaskjól ehf. 3,77% l M75 ehf. 3,62% l Brimgarðar ehf. 2,31% l Lífsverk lífeyrissjóður 2,29% l Birta lífeyrissjóður 2,26% l Eignarhaldsfélagið VGJ ehf. 1,96% l Orbis Invest ehf. 1,94% l TM fé ehf. 1,90% l Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 1,84% l Fjallatindar ehf. 1,73% l Laugavegur ehf. 1,71% l Efniviður ehf. 1,54% l Aðrir 23,26% Ég held líka að það sé mjög til bóta fyrir umræðuna að sjá reglulegan rekstur á svona leigufélög- um. Guðbrandur Sigurðsson, for- stjóri Heimavalla Forstjóri Heimavalla segir umræðu um hátt leiguverð ekki hafa verið félaginu til góðs. Helm- ings lækkun vaxta gæti lækkað leiguverð um 20 prósent. Viðskipti með bréf félagsins í Kauphöll Íslands hefjast í dag. 2 4 . m a í 2 0 1 8 F i m m t U D a G U R8 F R é t t i R ∙ F R é t t a B L a ð i ð 2 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E 3 -6 C 6 0 1 F E 3 -6 B 2 4 1 F E 3 -6 9 E 8 1 F E 3 -6 8 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.