Fréttablaðið - 24.05.2018, Síða 8
Ford Transit Custom er þekktur fyrir
einstakan búnað, endingu og hagkvæmni.
Með nýrri kynslóð bætir Ford enn í og gerir
Transit Custom enn betri. Hinn nýi Ford
Transit Custom er ríkulega búinn m.a.
olíumiðstöð með tímastilli, upphitanlegri
framrúðu, aksturstölvu, Easy fuel
eldsneytisáfyllingu, upphitanlegu
ökumannssæti, spólvörn, ESP
stöðuleikakerfi, brekkuaðstoð og
14 geymsluhólfum í innréttingu.
NÝR FORD
TRANSIT CUSTOM
– Betri en nokkru sinni
3.590.000 KR. MEÐ VSK.
FÁANLEGUR SJÁLFSKIPTUR
2.895.000 KR.ÁN VSK.
FORD TRANSIT CUSTOM KOSTAR FRÁ:
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16 ford.is
Ford_Transit_Custom_5x15_20180522_END.indd 1 22/05/2018 13:09
Viðskipti „Þessi umræða hefur
örugglega ekki verið okkur til góðs.
En við höfum reynt að vanda okkur
eins og við getum í okkar störfum,“
segir Guðbrandur Sigurðsson, for-
stjóri fasteignafélagsins Heima-
valla, um umræðuna sem hefur
farið fram síðustu daga um hækkun
húsaleigu hjá íbúðaleigufélögum
eins og Heimavöllum, Almenna
leigufélaginu og Íbúðalánasjóði.
Hlutafjárútboð með bréf í félaginu
fór fram í byrjun mánaðar og í dag
hefjast viðskipti með bréfin á Aðal-
lista Kauphallar Íslands.
Í sögum sem leigjendur íbúðar-
húsnæðis hafa sent VR segir til
dæmis frá manni sem greiddi 115
þúsund krónur í leigu á mánuði. Á
einum mánuði hafi leigan hækkað
upp í 170 þúsund. Þá er sagt frá
fjölskyldu sem tók íbúð á leigu
árið 2016 og greiddi 225 þúsund.
Leigan hafi síðan verið hækkuð um
25 þúsund í fyrra og svo aftur um
25 þúsund í ár. Það er 50 þúsund
króna hækkun á tveimur árum.
Þriðja dæmið er um konu sem tók
hús á leigu af leigufélagi árið 2010
og greiddi 200 þúsund krónur í leigu
á mánuði. Í janúar 2017 var leigan
orðin 270 þúsund. Nýlega fékk
hún tilkynningu um að leigan yrði
hækkuð í 400 til 450 þúsund krónur
á mánuði.
Guðbrandur segir að eðlilega hafi
leiguverð hækkað hjá Heimavöllum,
eins og hjá mörgum öðrum, en ekk-
ert í líkingu við það sem rætt hefur
verið um. „Enda hefur ekki verið
bent á slík dæmi hjá Heimavöllum
hingað til.“
Hann segir þó að upp hafi komið
dæmi þar sem Heimavellir hafi
verið að taka yfir eignasöfn þar
sem leigjendur hafi búið í íbúðum
á grundvelli svokallaðrar dæmdrar
leigu. Í slíkum tilfellum sé leigu-
verðið mjög lágt miðað við mark-
aðsleigu.
Dæmd leiga er þegar Íbúðalána-
sjóður hefur eignast íbúð á upp-
boði. Sá sem býr í íbúðinni hefur
þá farið fyrir dómstóla og fengið
seturétt í íbúðinni á því leiguverði
sem dómari ákveður. Guðbrandur
gerir ráð fyrir að mesta hækkunin á
leiguverði hafi verið þegar verið var
að færa leiguverð úr slíkri leigu yfir í
markaðsleigu.
„Ég held líka að það sé mjög til
bóta fyrir umræðuna að sjá reglu-
legan rekstur á svona leigufélögum.
Það er langt í frá að það sé sjálfgefið
að það sé hægt að gera þetta, en
með því að einbeita sér að því að ná
fram stærðarhagkvæmni og vanda
vel valið á íbúðum inn í safnið þá er
þetta algjörlega raunhæfur kostur,“
segir Guðbrandur. Leiguverð verði
alltaf einhver birtingarmynd af
íbúðaverði og vaxtastigi.
„Við erum að vinna á vaxtastigi
sem er í rúmum fjórum prósentum.
Nágrannalöndin eru í tæplega pró-
senti. Ef við gætum lækkað vaxta-
kostnað um helming þá værum
við að ná fram 20 prósent lækkun á
leigu að öllu óbreyttu. En auðvitað
vitum við að ef vextir lækka skart
þá getur það haft áhrif á eignarverð
þannig að það er vandrataður vegur
í þessu.“ jonhakon@frettabladid.is
Telur vaxtalækkun geta lækkað leigu
Í reynslusögum sem leigjendur hafa sent VR er sagt frá íbúðum þar sem leiguverð hefur hækkað um tugi prósenta á
milli ára. Forstjóri Heimavalla segir að leiguverð ráðist af húsnæðisverði og vöxtum. FRéttablaðið/VilHelm
Fyrsta skráning í hálft annað ár
Skráning Heimavalla á Aðallista
Kauphallar Íslands er sú fyrsta
síðan bréf í Skeljungi voru tekin
til viðskipta í desember 2016.
Í hlutafjárútboði Heimavalla
sem lauk 8. maí voru seldir 750
milljón nýir hlutir fyrir rétt rúmlega
milljarð króna. Vegið meðalgengi
í útboðinu var 1,39 krónur á hlut
og var heildarvirði alls hlutafjár að
lokinni hlutafjáraukningu því 15,6
milljarðar króna.
Eignir Heimavalla námu tæplega
56 milljörðum króna um síðustu
áramót og var eigið fé tæplega 17,6
milljarðar króna. Leigutekjur félags-
ins á síðasta ári námu rétt tæplega
3,1 milljarði króna en rekstrar-
kostnaður fjárfestingareigna nam
rúmum milljarði. Hreinar leigu-
tekjur námu því rétt tæplega 2,1
milljarði. Rekstrarhagnaður félags-
ins fyrir matsbreytingu eigna nam
1,6 milljörðum króna.
Stærstu eigendur
Heimavellir munu í dag birta
nýjan lista yfir 20 stærstu hlut-
hafa félagsins. Hinn 23. apríl
síðastliðinn voru 82 hluthafar
í félaginu. Þeir 20 stærstu voru
þessir:
l Heimavellir leigufélag slhf. 10%
l Stálskip ehf. 8,12%
l Snæból ehf. 7,43%
l Gani ehf. 7,43%
l Sjóvá Almennar 4,68%
l Túnfljót ehf. 4,44%
l Vátryggingafélag Íslands hf.
3,86%
l Klasi fjárfesting ehf. 3,80%
l Frostaskjól ehf. 3,77%
l M75 ehf. 3,62%
l Brimgarðar ehf. 2,31%
l Lífsverk lífeyrissjóður 2,29%
l Birta lífeyrissjóður 2,26%
l Eignarhaldsfélagið VGJ ehf.
1,96%
l Orbis Invest ehf. 1,94%
l TM fé ehf. 1,90%
l Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
1,84%
l Fjallatindar ehf. 1,73%
l Laugavegur ehf. 1,71%
l Efniviður ehf. 1,54%
l Aðrir 23,26%
Ég held líka að það
sé mjög til bóta fyrir
umræðuna að sjá reglulegan
rekstur á svona leigufélög-
um.
Guðbrandur
Sigurðsson, for-
stjóri Heimavalla
Forstjóri Heimavalla
segir umræðu um hátt
leiguverð ekki hafa verið
félaginu til góðs. Helm-
ings lækkun vaxta gæti
lækkað leiguverð um 20
prósent. Viðskipti með
bréf félagsins í Kauphöll
Íslands hefjast í dag.
2 4 . m a í 2 0 1 8 F i m m t U D a G U R8 F R é t t i R ∙ F R é t t a B L a ð i ð
2
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
3
-6
C
6
0
1
F
E
3
-6
B
2
4
1
F
E
3
-6
9
E
8
1
F
E
3
-6
8
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K