Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 16
Nú rétt fyrir sveitarstjórnar-kosningar hefur hitnað verulega í kolunum í
umræðum um Hvalárvirkjun í
Ófeigsfirði. Sannleiksástin er ekki
alltaf í fyrirrúmi hjá öllum sem tjá
sig um verkefnið. Þar sem málið
er VesturVerki skylt, sem fram-
kvæmdaaðila virkjunarinnar, erum
við knúin til að bregðast við.
Í aðsendri grein í Fréttablaðinu á
þriðjudag fer Tómas Guðbjartsson
enn á stúfana í baráttu sinni gegn
verkefninu. Tómas kemur svo í
viðtal í útvarpsþáttinn „Í bítið“ á
Bylgjunni þann sama morgun þar
sem hann fylgir grein sinn eftir og
fer mikinn.
Svo margt í málflutningi Tómasar
þarfnast leiðréttingar en hér verður
aðeins tæpt á örlitlu. Vegna pláss-
leysis í blaðinu gefst hvorki svig-
rúm til að fjalla um rangfærslur
hans um raforkumál almennt og
umhverfisáhrif virkjunarinnar né
fölsuðu fossamyndina sem hann
birtir með. Það er efni í aðra grein.
Sár yfir fundarsókn
Tómas ber sig aumlega yfir því að
vestfirskir ráðamenn hafi ekki sótt
fyrirlestur og myndasýningu hans
á Ísafirði fyrir skömmu. Hins vegar
hafi fjölmenni sótt opinn fund um
raforkumál á Vestfjörðum, sem
haldinn var af VesturVerki viku
síðar. Dylgjar Tómas um að sam-
hengi hljóti að vera þar á milli.
Hið rétta er að fyrirlestur Tóm-
asar var illa auglýstur hér vestra og
fréttu margir Ísfirðingar af honum
með dags fyrirvara. Engir forsvars-
menn sveitarfélaga fengu boð á
fyrirlesturinn og enn síður við
hjá VesturVerki. Einnig var tíma-
setningin óheppileg enda voru
margir bæjarbúar að undirbúa hina
árlegu Fossavatnsgöngu, risastórt
samfélagsverkefni hér á Ísafirði.
Fundur VesturVerks var hins vegar
ágætlega auglýstur hér heima og vel
sóttur fyrir vikið.
Lítið gert úr Vestfirðingum
og vilja þeirra
Því miður fellur Tómas í þá freistni
að gera lítið úr Vestfirðingum og
áherslum þeirra á uppbyggingu í
fjórðungnum. Hann gefur í skyn
að valdamiklir aðilar hljóti að stýra
umræðunni, orkurisar og ámóta.
Starfsmenn VesturVerks eru tveir
og hjá HS Orku, meirihlutaeiganda
VesturVerks, eru 60 starfsmenn.
Þessi fyrirtæki standa seint og illa
undir nafnbótinni „orkurisi“. Eftir
stendur að Tómas álítur Vestfirðinga
ekki færa um að leggja sjálfstætt mat
á það hvað er þeim fyrir bestu og
með hvaða hætti sé skynsamlegast
að nýta náttúruna, sem þeir kjósa að
búa í sátt við.
Ekki þarf að leita lengra en til
Orkubús Vestfjarða, Landsnets,
Orkustofnunar og Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga til að sjá að
samhljómur er um mikilvægi Hval-
árvirkjunar fyrir Vestfirði í heild
ásamt þeim tengingum sem nauð-
synlegar eru. Rannsóknastofnun
Háskólans á Akureyri kemst að
sömu niðurstöðu í mati sínu á sam-
félagsáhrifum virkjunarinnar sem
unnið var fyrir VesturVerk nýverið.
Aldargömul hugmynd til hags-
bóta fyrir Vestfirði
Fyrstu hugmyndir um virkjun Hval-
ár í Ófeigsfirði eru í það minnsta
aldargamlar. Fyrir röskum ára-
tug fór verkefnið að verða áhuga-
vert. Einstaklingar á Ísafirði drógu
vagninn, sömdu við landeigendur
og fengu síðan nýja hluthafa til liðs
við sig þegar verkefninu óx fiskur
um hrygg. Þetta eru stórhuga heima-
menn, sem unna náttúru Vestfjarða
ekkert síður en aðrir landsmenn.
Þeir komu Hvalárvirkjun á kortið í
þeirri bjargföstu trú að hún yrði til
hagsbóta fyrir Vestfirði og landið
allt. Rétt er að halda þessu til haga.
Tómas tungulipri
Um helgina fara sveitarstjórn-arkosningar fram. Þá gefst okkur öllum tækifæri til að
kjósa okkar fulltrúa í borgarstjórn
og bæjarstjórnum úti um allt land.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð hefur átt sæti í ríkisstjórn
síðan fyrir áramót. Á þeim stutta
tíma sem ríkisstjórnin hefur starf-
að hefur margt áunnist. Af verk-
efnum ríkisstjórnarinnar má nefna
að fjárframlög til heilbrigðismála
hafa verið stóraukin, áætlun um
stórátak í byggingu hjúkrunarrýma
hefur verið kynnt af hálfu velferð-
arráðuneytis, ákvörðun um aukna
göngudeildarþjónustu við Land-
spítala hefur verið tekin og unnið
hefur verið að innleiðingu neyslu-
rýma í Reykjavík. Vinna við endur-
skoðun jafnréttislaga er hafin
og stýrihópur um úrbætur hvað
varðar kynferðislegt ofbeldi hefur
verið stofnaður. Í umhverfismálum
hefur vinna við loftslagsstefnu og
aðgerðaráætlun í Stjórnarráðinu
verið hafin, fjármagni verið veitt
í endurheimt votlendis og þver-
pólitísk nefnd um stofnun mið-
hálendisþjóðgarðs verið stofnuð,
svo fátt eitt sé nefnt.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð hefur einnig átt sæti í meiri-
hluta í borgarstjórn Reykjavíkur á
síðastliðnu kjörtímabili. Meirihlut-
inn í Reykjavík hefur unnið hörð-
um höndum að bættri Reykjavík.
Meðal þess sem áunnist hefur er
að leikskólagjöld hafa lækkað um
85 þúsund krónur á ársgrundvelli
og því eru þau lægst í Reykjavík á
höfuðborgarsvæðinu. Framlög til
leikskólanna hafa verið aukin um
2 milljarða króna og uppbygging
ungbarnadeilda til að börn komist
fyrr inn á leikskóla er hafin. Vinnu-
vikan hefur verið stytt hjá 2.200 af
8.500 starfsmönnum borgarinnar,
Bjarkarhlíð var opnuð, þar sem
brotaþolum kynferðisofbeldis er
veittur stuðningur og ráðgjöf, frí-
stundastefna var bætt, auk þess
sem málstefna var sett hjá Reykja-
víkurborg. Svona mætti lengi telja.
Fyrrnefnd dæmi sýna að það
skiptir máli hver stjórnar, hvort
sem um er að ræða ríkisstjórn eða
í borgarstjórn. Ef Vinstrihreyfingin
– grænt framboð á sæti við borðið
þar sem ráðum er ráðið tryggjum
við að umhverfismál, jafnréttis-
mál og félagslegur jöfnuður séu í
forgrunni. Vinstri græn eru skýr
valkostur fyrir þá sem vilja tryggja
góða vinnu í borgar- og sveitar-
stjórnum landsins. Því sterkari
sem við verðum þegar talið verður
upp úr kjörkössunum um helgina,
þeim mun meiri líkur eru á því að
vinstristefnan hafi áhrif á næsta
kjörtímabili í sveitarstjórnum.
Enginn annar flokkur en VG getur
náð raunverulegum árangri með
vinstri stefnu og skýr græn sjónar-
mið.
Það er vissara að kjósa Vinstri
græn á laugardaginn.
Kjósum Vinstri græn
á laugardaginnBirna
Lárusdóttir
upplýsingafull
trúi VesturVerks
á Ísafirði Fyrstu hugmyndir um
virkjun Hvalár í Ófeigsfirði
eru í það minnsta aldar-
gamlar. Fyrir röskum áratug
fór verkefnið að verða áhuga-
vert.
Svandís
Svavarsdóttir
heilbrigðis
ráðherra
Á fjögurra ára fresti geta kjós-endur valið hverjir fara með stjórn borgarinnar. Á laugar-
daginn göngum við til kosninga og
valið er einfalt. Annaðhvort óbreytt
ástand eða breytingar.
Síðustu fjögur árin hefur húsnæðis-
verð hækkað um 50% og leiguverð
heldur áfram að hækka. Ekkert hefur
orðið af þeim 3.000 leiguíbúðum
sem var lofað enda byggt upp á
dýrum þéttingarreitum og borgin
innheimtir mjög há byggingargjöld.
Fólk eyðir meiri tíma en áður á
leiðinni í vinnuna eða heim. Íbúar í
austurhluta borgarinnar mega búast
við því að heil vinnuvika á ári fari í
tafatíma í umferð miðað við fyrir sex
árum. Þessu þarf að breyta. Þeir sem
kjósa núverandi borgarstjórnarflokka
eru um leið að sætta sig við verkleysi
meirihlutans í borgarstjórn. Biðlistar
á leikskóla og svifryksmengun eiga
að heyra sögunni til. Ekki er búið
að semja við grunnskólakennara og
skuldasöfnun borgarsjóðs er mikil í
góðæri. Af hverju er ekki búið að taka
á þessum málum?
Samfylkingin hefur stjórnað borg-
inni óslitið í átta ár. Og borgarstjóri
búinn að vera í borgarstjórn í 16 ár.
Öll kerfi hafa gott af uppstokkun.
Annars staðna þau. Við viljum beita
okkur fyrir breytingum í borginni og
vera það hreyfiafl sem þarf. Við ætlum
að minnka stjórnkerfið sem hefur
þanist út á síðustu árum og setja fjár-
magnið í skólana. Fjölga hagstæðum
búsetukostum og minnka álögur á
húsbyggjendur. Leysa umferðarhnút-
ana með heildstæðum og raunsæjum
lausnum. Opna fyrir Sundabraut og
jafna umferðina sem er of þung á
morgnana inn í borgina og of þung
út úr henni síðdegis. Þetta gerum við
með því að opna fyrir uppbyggingu
á Keldum fyrir stofnanir, fyrirtæki og
byggð. Framtíðarsvæði fyrir spítala.
Á síðustu árum hefur umferðin
þyngst vegna ákvarðana í skipu-
lagsmálum. Vantað hefur svæði til
uppbyggingar og margir hafa leitað í
Kópavog. Nú þarf Reykjavík að vera
aftur leiðandi afl. Við bjóðum fram
krafta okkar til að breyta borginni
til hins betra. Með ykkar stuðningi
getum við leitt fram þær lausnir sem
nauðsynlegar eru. Nýtum kosninga-
réttinn og kjósum breytingar.
Kjósum breytingar í Reykjavík
Eyþór Arnalds
skipar 1. sæti á
lista Sjálfstæðis
flokksins
í Reykjavík
Svarið við
erfiðustu
spurningu
dagsins er ...
..
. K
jú
kl
in
ga
pa
sta
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Þú finnur
uppskriftina á
kronan.is/
uppskriftir
1899 kr.kg
Krónu kjúklingabringur
322 kr.stk.
Piparostur, 150 g
299 kr.pk.
Tagliatelle pasta
261 kr.stk.
Rjómi, 250 ml
2 4 . M A Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
3
-2
C
3
0
1
F
E
3
-2
A
F
4
1
F
E
3
-2
9
B
8
1
F
E
3
-2
8
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K