Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 15
Þess vegna sló norska þingið
eign þjóðarinnar á olíu-
lindirnar frá byrjun frekar
en að sleppa þeim í hendur
einkavina líkt og Rússar og
ýmsar aðrar olíuþjóðir hafa
gert. Alþingi fór rússnesku
leiðina í fiskveiðistjórnar-
málinu. Það hefur reynzt
afdrifaríkt. Gúglaðu „bófa-
flokkur“ og nafn Sjálfstæðis-
flokksins kemur upp strax
í fimmtu línu. Þannig fer
ævinlega fyrir þeim sem fara
í útreiðartúr á tígrisdýri.
Hagkvæmt húsnæði
Leit að samstarfsaðilum
Reykjavíkurborg leitar að samstarfsaðilum um uppbyggingu á hagkvæmu
húsnæði á völdum reitum í borginni.
Í vetur auglýsti Reykjavíkurborg eftir hugmyndum til að auka framboð á hagkvæmu
húsnæði fyrir meðal annars ungt fólk og fyrstu kaupendur. 68 aðilar sendu inn
hugmyndir og voru þær meðal annars kynntar á málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Nú er
komið að öðrum fasa verkefnisins þar sem umsóknir um reiti sem lýsa uppbyggingu á
tilteknum svæðum verða metnar á grundvelli matslíkans.
Reitirnir sem um ræðir eru í Úlfarsárdal, á Kjalarnesi, í Gufunesi, í Bryggjuhverfi við
Elliðaárvog, við Stýrimannaskólann, á Veðurstofureit og í Skerjafirði. Skipulag þessara
svæða er mislangt á veg komið. Gert er ráð fyrir því að samstarfsaðilar komi inn í
þróunar- og deiliskipulagsvinnu og geti þannig haft áhrif á endanlegt deiliskipulag.
Umsóknir skal senda í síðasta lagi 20. júní 2018.
Nánari upplýsingar um verkefnið ásamt matsblaði má finna á heimasíðu
Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/hagkvaemt-husnaedi
Jens Evensen hét maður. Hann má kalla höfuðarkitekt þeirrar auðlindastjórnar sem hefur
gert Noreg að fyrirmynd ann-
arra olíuríkja. Evensen varð síðar
hafréttarráðherra Noregs, en hann
var embættismaður í fjármála-
ráðuneytinu í Ósló þegar olían
fannst í norskri lögsögu fyrir 1970.
Hann taldi sér skylt að koma
stjórnmálamönnum í skilning
um að olíuauðinn skyldi skoða
sem sameign norsku þjóðarinnar.
Þannig tókst Norðmönnum að
girða fyrir rentusókn. Nú, hálfri
öld síðar, eru „olíufurstar“ nær
óþekktir í Noregi. Orðið kemur
varla fyrir í máli manna. Öðru máli
gegnir því um Noreg en Ísland þar
sem „kvótakóngar“ og „sægreifar“
hafa lengi verið meðal algengustu
orða í þjóðmálaumræðunni líkt og
fáráðar (e. oligarchs) í Rússlandi.
Gildasti auðlindasjóður heims
Stjórn Norðmanna á olíuauði
sínum markast af því að olía og
gas innan norskrar lögsögu voru
frá öndverðu skilgreind í lögum
sem sameignarauðlindir. Lögin
innsigluðu rétt norsku þjóðar-
innar til auðlindarentunnar, þ.e.
til teknanna af olíulindunum.
Á grundvelli þessara laga hefur
norska ríkið með árunum leyst til
sín um 80% af auðlindarentunni
fyrir hönd skattgreiðenda og lagt
mestan hluta fjárins í olíusjóð sem
heitir nú lífeyrissjóður. Í honum
er nú meira en ein trilljón Banda-
ríkjadala eða 800.000 dalir (80
m.kr.) á hverja fjögurra manna fjöl-
skyldu í Noregi. Engin önnur þjóð
heimsins á gildari auðlindasjóð en
þennan.
Norska þingið setti sjálfu sér og
sjóðnum siðareglur („boðorð“) til
að tryggja að ráðstöfun sjóðsins
gagnaðist núlifandi og óbornum
kynslóðum Norðmanna í senn.
Eftir að Seðlabanka Noregs var
tryggt aukið sjálfstæði 2001 var
bankanum falin stjórn olíusjóðsins
fyrir hönd fjármálaráðuneytisins.
Þetta var gert til að halda stjórn-
málamönnum í hæfilegri fjar-
lægð frá sjóðnum. Þannig hefur
Norðmönnum tekizt að komast
hjá rentusókn og tengdum vanda-
málum sem hafa hrjáð fjölmörg
önnur olíuríki um allan heim.
Jöfn skipting
Skipting þjóðarauðsins í Noregi
er ívið jafnari en í Svíþjóð og mun
jafnari en á Íslandi svo sem fram
kemur t.d. í bók Stefáns Ólafssonar
og Arnalds Sölva Kristjánssonar,
Ójöfnuður á Íslandi (2017, bls.
385). Norðmönnum hefur tekizt að
komast hjá skaðlegum átökum um
skiptingu olíurentunnar eða a.m.k.
girða fyrir að slík átök leiddu til
teljandi misskiptingar. Noregur
var fullþroska lýðræðisríki löngu
áður en olían fannst. Það skiptir
máli. Lýðræðisríki eru ólíklegri
en einræðisríki til að láta menn
komast upp með að sölsa undir sig
eigur annarra, þ.m.t. auðlindir, til
að tryggja völd sín.
Vitlaust gefið
Ólíkt olíustjórn Norðmanna er
fiskveiðistjórnin hér heima reist á
innbyrðis þversögn. Kvótakerfið
er reist á upphaflegri úthlutun
veiðiheimilda sem mismunaði
mönnum og braut þar með gegn
stjórnarskránni eins og mannrétt-
indanefnd Sameinuðu þjóðanna
Forsaga kvótans: Taka tvö
staðfesti 2007 og Hæstiréttur
Íslands hafði áður staðfest 1998.
Frjálst framsal kvóta var æskilegt
af hagkvæmnisástæðum en slíkt
framsalsfrelsi útheimti upphaf-
lega úthlutun án mismununar.
Vandinn liggur því ekki í kvót-
anum sjálfum og viðskiptum með
hann heldur í mismununinni við
upphaflega úthlutun sem var reist
á veiðireynslu áranna 1980-1983.
Vandinn hefur undið upp á sig.
Alþingi gafst loksins upp fyrir
kröfunni um veiðigjald 2002, en
þá aðeins til málamynda. Skv.
útreikningum Indriða Þorláks-
sonar fv. ríkisskattstjóra duga
veiðigjöldin aðeins til að beina
10% fiskveiðirentunnar til rétts
eiganda, fólksins í landinu, meðan
90% renna áfram til útvegsmanna.
Þetta fyrirkomulag er eins langt frá
norskri olíustjórn og hugsazt getur.
Norska fyrirmyndin um auðlindir
í þjóðareigu gat varla nærtækari
verið en hún var ekki rædd á
Alþingi. Fyrstu lögin um fiskveiði-
stjórnina voru samin á skrifstofum
LÍÚ eins og Halldór Jónsson rekur
í ritgerð sinni „Ákvarðanataka
í sjávarútvegi og stjórnun fisk-
veiða“ (Samfélagstíðindi 1990, bls.
99-141).
Frekar en að taka norska olíu-
stjórn sér til fyrirmyndar kaus
Alþingi í reyndinni að fylgja for-
dæmi norskrar fiskveiðistjórnar
þar sem veiðileyfum er úthlutað
til skipa án endurgjalds líkt og
tíðkast annars staðar í Evrópu
þótt fiskstofnar séu þar sumir á
hverfanda hveli. Noregur og önnur
Evrópulönd telja sig hafa efni
á slíku ráðslagi þar eð sjávarút-
vegur skiptir þar ekki miklu máli.
Það á ekki við um Ísland þar sem
sjávarútvegur gegnir mikilvægu
hlutverki í þjóðarbúskapnum og
ekki bara í einstökum fámennum
byggðarlögum líkt og í Noregi og
úti í Evrópu. Þar liggur mikilvægur
munur.
Gúglaðu „bófaflokkur“
Norðmenn ákváðu fyrir löngu að
niðurgreiða sjávarútveg myndar-
lega líkt og landbúnað einkum til
að styrkja Norður-Noreg. Þar eð
sjávarútvegur skiptir litlu máli í
norskum þjóðarbúskap á heildina
litið hafa menn ekki sett kostnað-
inn fyrir sig. Snemma varð ljóst að
olía myndi skipta norskan þjóðar-
búskap miklu máli. Þess vegna
m.a. kom ekki til álita að sóa
olíurentunni líkt og fiskirentunni.
Þess vegna sló norska þingið eign
þjóðarinnar á olíulindirnar frá
byrjun frekar en að sleppa þeim
í hendur einkavina líkt og Rússar
og ýmsar aðrar olíuþjóðir hafa
gert. Alþingi fór rússnesku leiðina
í fiskveiðistjórnarmálinu. Það
hefur reynzt afdrifaríkt. Gúglaðu
„bófaflokkur“ og nafn Sjálf-
stæðisflokksins kemur upp strax í
fimmtu línu. Þannig fer ævinlega
fyrir þeim sem fara í útreiðartúr á
tígrisdýri.
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F I M M T U D A G U R 2 4 . M A Í 2 0 1 8
2
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
3
-3
1
2
0
1
F
E
3
-2
F
E
4
1
F
E
3
-2
E
A
8
1
F
E
3
-2
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K